Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1984, Page 3
DV. MIÐVKUDAGUR11. APRIL1984.
3
Rækjuverð hef ur fallið um 30 prósent og birgðir hafa aukist um helming:
Engin batamerki sjáanleg á árinu
—segir Óttar Yngvason rækjuútflytjandi
„Rækjuveröiö hækkaöi í fyrra en
upp úr áramótum hefur það fariö lækk-
andi, mest tvo síöustu mánuöi og nálg-
ast nú aö vera 30 prósentum lægra en
þegar þaö var best í fyrra. Nú er þaö
álika og það var fyrir hálfu ööru ári,”
sagði Ottar Yngvason, framkvæmda-
stjóri Islensku umboössölunnar, í viö-
taliviðDV.
Ottar sagði þetta mun meiri sveiflu
en venja væri til í þessum viöskiptum,
menn þekktu betur sveiflur upp á svo
sem 15 prósent til eöa frá. Hann gisk-
aöi á að birgðir væru nú um það bil tvö-
falt meiri en á sama tíma í fyrra, eða
einhvers staðar á biiinu 400 til 600 tonn.
Þrjár ástæöur nefndi hann fyrir
þessu ástandi. Norömenn veiddu 76
þúsund tonn af rækju í fyrra á móti 54
þúsund tonnum áriö áður sem þýöir
stóraukiö framboð á markaði okkar og
þeirra í Bretlandi og V-Evrópu.
Reyndar jukust okkar veiöar líka úr 9
þúsund tonnum í 13 þúsund.
Þá hefur rækjuslysiö í Hollandi í
janúar sL, þegar 14 manns létust eftir
aö hafa neytt Asiurækju, dregiö dilk á
eftir sér, en áhrif slyssins eru þó þverr-
andi upp á siðkastiö.
Loks gat Ottar þess aö þegar veröið
fór hvaö hæst í fyrra hafi sölutregða
fylgt í kjölfarið. Hans skoöun á stöö-
unni nú er að erfiöleikar veröi á þess-
um markaöi a.m.k. út þetta ár, enda
ætla Norðmenn að veiða álíka magn og
í fyrra og búast má viö aö veiðar okkar
fari upp í svo sem 18 þúsund tonn.
-GS.
Á myndinni eru tveir af verðlaunahöfum „Átaks '84", Berglind Johansen
og Ingi Gunnar Jóhannsson, ásamt Heimi Hannessyni, formanni Ferða-
málaraðs og Bjarna I. Árnasyni, Sveini Sæmundssyni og Jóni Gauta Jóns-
syni sem sæti eiga i nefndinni sem starfað hefur að þessu máli.
Vinningshafar í„Átak '84” heiðraðir:
„Njótum lands,
níðum ei” hlaut
fyrstu verðlaun
Ferðamálaráö hefur nú kunngert
úrsUt í samkeppni þeirri er það efndi
til í baráttu fyrir bættri umgengni við
náttúru landsins, um leið og hvatt er til
aukinna feröalaga um eigið land.
Samkeppni þessi kaUast Atak ’84 og
var leitaö eftir slagoröum sem nota
mætti sem áróöur fyrir bættri um-
gengni.
AUs munu hafa borist um 4.000 tU-
lögur en þrjár voru verðlaunaðar. Það
voru:
1. „Njótum lands, niöum ei”. Höfund-
ur Sigurður Baldursson, Lundar-
brekku Báröardal.
2. „Arfteiöum börnin aö enn betra
landi”. Höfundur Jónína Helgadóttir,
Hvannavöllum 6 Akurey ri.
3. „Verndum fagurt viðkvæmt land”,
BergUnd Johansen, Laugarásvegi 46
Reykjavík.
Auk þess var ákveðiö aö kaupa eina
teiknaöa hugmynd. Höfundur hennar
er Ingi Gunnar Jóhannsson, Sæviöar-
sundi 60 Reykjavík. Slagorð þessi
veröa notuð á spjöldum frá Ferða-
málaráöi og veröur þeim dreift um aUt
land.
SigA.
20th Century Fox hópurinn í Vestmannaeyjum:
Borga 1000 kr. á
mann í húsaleigu
fyrir sólarhring
Um 70—80 manna hópur frá 20th
Century Fox er nú staddur í Vest-
mannaeyjum og er ekki til hótelpláss
fyrir nema um helming hópsins. Hinn
helmingurinn mun búa í heimahúsum
og er nokkur eftirspum eftir slíkum
leigjendum þar sem Fox mun borga
1000 kr. fyrir manninn i húsaleigu á
sólarhring.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
DV hef ur aflað sér eru dæmi um aö f ólk
hafi flutt úr ibúðarhúsum sinum og
leigi þau í heilu lagi til 5 manna og fái
þannig 5000 kr. fyrir húsiö á sólarhring
í leigu. Inni í þessu verði er hins vegar
falin ýmis þjónusta viö leigjenduma.
„Vestmanneyingar eru ákaflega
gestrisnir en viö erum meö óvenjulega
stóran hóp þarna núna og hótelrými er
ekki nægilegt. Því hafa heimamenn
tekið aö sér aö hýsa hluta af hópnum,”
sagði Gísli Gestsson hjá Víðsjá í sam-
tali viö DV en Víösjá sér um Fox-hóp-
inn hérlendis.
„Fólk hefur boöist til aö flytja úr
heilu íbúöarhúsunum til að koma þess-
um hópi fyrir en við stefnum að því aö
flytja hluta hópsins aftur upp á Skóg-
arsand og sennilega verður hópurinn
ekki nema viku til 10 daga í Eyjum. Viö
erum Eyjamönnum þakklátir fyrir það
hve vel þeir hafa tekiö okkur,” sagði
hann.
-FRI.
ÚRVALSEFNI
VIÐ ALLRA HÆFI
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
27022
NÚ KAUPA ALLER
AFBURÐABÍL Á AFBURÐA
GÓÐU VERÐI
HVERGIBETRIKJÖR
Bíll arsins 1984
Uno!
1. Þú semur um útborgun, allt niö-
ur í 75.000 ln.
2. Viö tökum gamla bílinn sem
greiöslu uppí þann nýja. Þaö er
sjálfsögö þjónusta, því bílasala
er oklcar fag.
3. Eftirstöövarnar lánum viö og
reynum aö sveigja greiöslutím-
ann aö getu þinni.
i
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
aana
Smidjuvegi 4. Kópavogi. Simar 77200 - 77202.