Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1984, Page 3
DV. MÁNUDÁGUR16. APRÍL1984.'
3
Sendibílstjórar mótmæla
Upi 90 sendibílstjórar óku farartækjum sínum i fylkingu um bæinn á laugar-
dag til að mótmæla því sem þeir segja að sé inngrip leigubílstjóra í þeirra
verksvið, með því að leigubQstjórar flytja pakka um bæinn. Óku sendibQ-
stjóramir, sem bér sjást leggja af stað í Síðumúlanum, víðsvegar um bæinn,
m.a. frambjá leigubQastöðvum, í lögreglufylgd. Sigurður Jónsson, for-
maður Trausta, félags sendibQstjóra, sagði í viðtali við DV í gær að ekki
væru frekari aðgerðir fyrirbugaðar í bQi. DV-mynd S.
Við bjóðum hinar vin-
sælu OASIS-íbúðir og
HOTEL REGINA
MARIS við GLYFADA
ströndina, skammt
fyrir utan AÞENU.
Glæsilegar íbúðir og
hótel í SANTA
PONZA, MAGALUF
og ARENAL.
Brottför alla þriðjudaga
Fáið nánari
upplýsingar á
skrifstofu okkar
Feröaskrifstofan
Laugavegi 66 Sími. 28633
Harður árekstur varð í fyrra-
dag á horni Sóleyjargötu og
Njarðargötu. Farþegi i
öðrum bíinum, Öfrísk kona,
var flutt á fæðingardeild en
við athugun þar kom í Ijós
að meiðsli hennar voru
minni en á horfðist og ekk-
ert amaði að barninu.
DV-mynd S.
Þórhallur Vilmundarson prófessor
Hver var hetjan
íhólminum?
Fyrirlestur Þórhalls
Vilmundarsonar í kvöld
I kvöld kl. 20.40 flytur Þórhallur Vil-
mundarson prófessor fyrirlestur í
hátíðarsal Háskóla lslands og nefnist
hann Hver var hetjan í hólminum?
I fyrirlestrinum verður einkum
fjallaö um Haröar sögu en einnig
verður vikiö aö Grettis sögu og Gísla
sögu Súrssonar. Rætt veröur um
uppruna og tQurö Harðar sögu og reynt
aö svara spumingunni í heiti fyrir-
lestrarins. örnefni mun bera á góma
og vikið verður aö sundi Helgu og
Grettis. Myndir verða sýndar tU
skýringar.
Ollumerheimiliaögangur. -óbg.
SÓLSKINSBÍLLIIMN
Sunny þýðir sólríkur og þess vegna köllum við hjá
Ingvari Helgasyni. Nissan Sunny sólskinsbíl-
inn. Sólskinsbíllinn á líka ríkulega skilið svo fal-
legt nafn. Ekki bara af því að hann er óumdeilan-
lega mjög fallegur bíll, heldur líka vegna þess að
hann er tæknilega einhver fullkomnasti bíll sem
almenningur á völ á að eignast. Sólskinsbíllinn er
framhjóladrifinn, 5-gíra með 1500 cc ohc vél sem
vakið hefur mikla undrun og aðdáun fyrir snerpu
(84 hestöfl) og sparneytni (4,8 1 á hundraðið á 90
km hraða).
Bíllinn er með fullkominni sjálfstæðri gorma-
fjöðrun á öllum hjólum og 17,5 cm undir lægsta
punkt, sem gerir bæði skíðaferðirnar og sumar-
ferðalögin skemmtileg og pottþétt. Láttu þitt
eigið ímyndunarafl ráða ferðinni við að velja þér
bíl nákvæmlega samkvæmt þínum eigin óskum
því að sólskinsbíllinn er til í 14 gerðum.
Við tökum allar gerðit eldri bíla upp í nýja.
Þú kemst í sólskinsskap þegar þú sérð verðið á sólskinsbílnum.
2 INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.