Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1984, Blaðsíða 4
4
DV. MÁNUDAGUR16. APRÍL1984.
Menning Menning Menning
Fjörmikil sýning
Menning
Úr sýningu Leikfélags Akureyrar á Kardemommubænum eftir Thor-
björn Egner.
Leikfólag Akureyrar:
Kardemommubœrinn
eftir Thorbjöm Egner.
Þýöing: Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá
Djúpalœk.
Leikstjóri: Theódór Júlíusson.
Leikmynd: Þráinn Karlsson. Búningar: Frey-
gerflur Magnúsdóttir.
Dýragervi: Anna G. Torfadóttir.
Lýsing: Viflar Garðarsson.
Hljómsveitarstjóri: Roar Kvam.
Fólk og ræningjar í Karde-
mommubæ trúi ég aö þetta stykki
hafi upphaflega heitiö þegar
Guölaugur Rósinkranz valdi þaö til
sýninga í Þjóðleikhúsinu. Frægöar-
ferillinn hófst 27. janúar 1960 og
óslitið hefur þaö átt gífurlegum
vinsældum aö fagna hjá nokkrum
kynslóöum áhorfenda. Hylli leiksins
á sér nokkrar skýringar, þar bland-
ast saman áhrif víöa aö: Akureyr-
ingar áttu sinn hlut í Kardemommu-
bænum þegar í upphafi — söngvana
þýddi Kristján frá Djúpalæk af al-
kunnri smekkvísi. Danir áttu sinn
fulltrúa í sviðsetningunni, Erik Bid-
sted þá ballettmeistara Þjóðleik-
hússins. En aðalstraumurinn kom
frá Egner, fjölhæfum listamanni og
mannvini, þaö var hlýr straumur.
„Okkar líf er yndislegt"
Þessi vetur veröur í minnum
haföur hjá Leikfélagsmönnum á
Akureyri, hvert stórvirkiö af öðru
ráöast þeir í: eitt á eftir aö líta dags-
ins ljós, þeir máttu fresta Galdra-
Lofti vegna Ladýinnar, eins og þeir
segja. Kardemommubærinn er
síöasta verkefnið á leikárinu og
veröur örugglega vinsælt, þetta er
fjörmikil sýning og kraftaverki næst
aö hún skuli rýmast á þröngu
sviöinu, þökk sé haganlegri leik-
stjóm og leikmynd sem gerö er af
mikilli útsjónarsemi. Litauögi og
suöræn sæla skín af öllum umbúnaöi.
En meinbugir em á sýningunni,
einkum í nettleika sem nauðsynlegur
er gamanleik af hvaöa tagi sem er.
Þaö er verulegur áhugamanna-
bragur á sýningunni í leikstílnum,
ekki vantar að þaö heyrist skýrt í öll-
um, og einhvern veginn á svokölluð
norölenska vel viö málblæ Tobíasar
og Kaspers, synd aö ekki skuli fleiri
hafa tamið sér hann. Mikiö væri
gaman ef allur leikhópur Leikfélags-
ins legði sig eftir því. Hér á landi
gleymist það alltaf að til eru lands-
bundin máleinkenni, við emm ekki
lengra komin í leikmenningu okkar.
Stóra táin á Jesper
Sem sagt hiö smáa í gaman-
seminni veröur útundan, stundum er
ofgert, til dæmis hjá Sunnu Borg í
Soffíu frænku. Hjá öörum vantar á,
Bastían Bjöms Karlssonar náöi of
skammt, Jónatan rak ööru hvoru
upp kunnuglega skræki sem brutu í
bága viö snotra manngerð Gests E.
Jónassonar. Ljósastur var skortur
leikaranna á litlum, fyndnum brögö-
um í söngvum sem eru náma af til-
efnum til þess háttar leikbragða. Þar
bar mest á gróft dregnum dráttum.
Kardemommubærinn er samt
skemmtilegur á Akureyri. Börnin
nutu hans sannarlega og fullorönir
líka. Verkið er fjölskylduskemmtun
og oft sprenghlægilegt, aldrei leiöin-.
legt. Og ekki mega bæjarbúar fyrir
nokkum mun láta sýninguna fram
hjá sérfara.
„.. .því það er svo gaman"
Mikiö er þaö furöulegt aö bæjarfé-
Leiklist
Páll B. Baldvinsson
lagið skuli enn láta leiklistarstarf-
semi L.A. búa viö jafnþröngt hús-
næöi og raun ber vitni. Er ekkert
fariö aö huga aö nýbyggingu? Hvers
vegna höföu verkalýðsfélögin ekki
sýningarsal í nýja húsinu sínu? Ætl-
ar bæjarstjómin á Akureyri aö vera
jafnaum og sú í Reykjavík sem lét
alltof langt líöa áöur en byggt var
Borgarleikhús og er nú aö heykjast á
aö koma því upp 1986? Er þetta ekki
höfuðstaður Norðurlands?
Þaö þarf máski einhvers konar
Soffíur til aö reka slyöruoröiö af
Bastíönum bæjarstjómar Akureyr-
ar. Leikfélagið getur ekki oft ráðist í
verk sem em mannmörg og viða-
mikil, einkum ef listræn gæði minnka
vegna skorts á húsnæði, tíma,
kröftum og peningum. Að ógleymdri
listrænni ögun og hugviti.
I hljómsveitargryfjunni spilar
hópur af ungu hljómlistarfólki
skringilega skemmtilega tónlist
Egners. Bíður það þeirra aö reisa
húsnæöi sem hæfir verkum sem
þessu? Veröa þaö krakkarnir í hlut-
verkum Tomma, Kamillu, hunda og
katta sem njóta aðstöðu sem Leik-
félag Akureyrar á skilið?
Kona rænd
á Sunnutorgi
Seint í fyrrakvöld var framiö rán viö
sölutuminn viö Sunnutorg og komst
ræninginn undan meö um 40 þúsund
krónur.
Málsatvik voru þau aö afgreiöslu-
stúlka í söluturninum var á leið inn í bíl
sinn að lokinni vinnu. Meö sér haföi
hún tvær handtöskur, aöra sem inni-
hélt peningana en í hinni voru persónu-
legir munir. A meðan hún var aö opna
dyrnar á bílnum lagöi hún töskurnar
frá sér á gangstéttina. Skipti þá engum
togum aö maður kom aövífandi og
hrifsaði með sér töskuna meö
peningunum í og hljóp á brott.
Konan gat litla sem enga lýsingu
gefiö á manninum þar sem hann var
klæddur hettuúlpu.
Eins og fram kemur af málsatvikum
virðist ránið hafa veriö skipulagt. -SþS.
DV-mynd S.
Lögreglan kannar kringumstæður við söluturninn við Sunnutorg þar sem ránið var framið.
Li't WtM Eiiil ffé 1 <*i| ■ /j » .■ - g 11 Ð
Itfjal L • Ui
I dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
Veggfóðursala stjórnarformannsins
Þaö er nú meira hvað Þjóðviljan-
um og kommunum er uppsigað við
Halldór H. Jónsson. Því er slegiö upp
á forsíðu með heimsstyrjaldarletri
aö Halidór hafi selt Eimskipafélag-
inu innréttingar frá eigin heildversl-
un. Rétt eins og mennirnir haldi aö
Halldór geti selt innréttingar og
veggfóöur frá öðrum en sjálfum sér!
Og til hvers haida þeir að heild-
verslanir séu nema tii þess aö selja
vörur? Ef heildverslun Garðars
Gisiasonar flytur inn veggfóður þá er
það til þess að selja veggfóður. Ut á
það gengur bisnessinn, hvort sem
kommamir skilja þaö eða ekki.
Gagnrýni Þjóðviljans sýnist
beinast að því að Halldór sé stjórnar-
formaður hjá Eimskip og þess vegna
megi ekki kaupa veggfóður frá Garð-
ari.
En mætti í allri vinsemd benda
þeim Þjóöviljamönnum á þá stað-
rcynd að Halldór er einnig formaður
og aö minnsta kosti stjómarmaður í
fleiri fyrirtækjum. Hann situr í
stjóra Bændahallarinnar, íslenskra
aðalverktaka, Áburðarverksmiðj-
unnar og gott ef ekki einnig í stjóm
íslenska álfélagsins. Ekki kæmi á
L -______
óvart þótt hann hefði útvegað þess-
um fyrirtækjum veggfóður frá Garð-
ari og ekki talið sig minni mann fyr-
ir. Ef blessaöur maðurinq vUI leggja
það á sig að gerast formaður og
stjómarmaður í aðskiljanlegum
fyrirtækjum til þess aö geta selt
þeim veggfóöur þá er ekki nema allt
gott um það aö segja. Þaö sýnir að
Haildór hefur bisnessvit. Og ein-
hvem veginn verður að selja vegg-
fóðrið. Ekki getur heildvcrslun Garð-
ars Gíslasonar setiö uppi með birgðir
af fínu og óseljanlegu veggfóðri fyrir
þá sök eina aö tengdasonur fyrir-
tækisins er stjórnarformaður í öllum
meiriháttar fyrirtækjum i landinu.
Eða til hvers ætti Halldór að leggja
slikar fundarsetur og ábyrgöarstörf
á síg ef þaö þýddi að ekkert vegg-
fóður seldist hjá Garðari?
Þeir sem á annað borð hafa kynnt
sér frásögn Þjóöviljans af veggfóðr-
inu hjá Eimskip og afskiptum Hali-
dórs H. Jónssonar af þvi máli hljóta
einnig að iesa svar Halldórs sem
hljóðar á þessa leið:
„Eg er tiltölulega vandur að virð-
ingu minni svo ég held að ég myndi
ekki gera það ef ég teldi svo vera,”
sagöi Halldór aðspurður hvort hann
teldi ekki óeölilegt að hann hannaði
sjálfur verk hjá Eimskip og seldi
þeim síðan veggfóður.
Af þessu svari sést að Halldór telur
sig tiltöluiega vandaðan mann. Ekki
■l'.Wl"]"?'!’!'
kannski fullkomlega og algjöriega
vandaðan en tiltölulega vandaðan.
Þegar menn eru tiltölulega vandaðir
er það fullgild ástæða og heiðarleg
skýring á hvaða veggfóðurssölu sem
er.
Það hljóta allir að skiija og þess
vegna vekur þaö furðu aö Þjóðviljinn
er að ofsækja mann með svo tiltölu-
lega vandaða virðingu. Á því er ekki
nema ein skýring. Halldór geldur
þess að vera útvalinn og löggiltur
erindreki Sjálfstæöisflokksins í öii-
um þeim þýðingarmiklu formanns-
stöðum sem flokkurinn getur úthiut-
að. Hefur svo verið um árabil enda
mun almannarómur meðal sjáif-
stæðismanna vera sá að dugiegri og
fjölhæfari flokksmann sé ekki að
finna. Þeir em svo sannarlega ekki á
hverju strái kandidatarair sem bæði
geta stýrt fyrirtækjunum, teiknað
fyrir þau húsin og selt þeim vegg-
fóður á spottprís. Hlýtur að vera af
þessu geysimikið hagræði, bæði fyrir
fyrirtækin og flokkinn að sameina
alla þá kosti í einum og sama mann-
inum. Þeir gerast ekki margir siíkir,
veggfóðraramir á íslandi.
Dagfari.
l.'.U". B.i'.U.'IIU'
j
___________J