Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1984, Qupperneq 6
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Sýktu kartöflurnar
frá Finnlandi
DV. MÁNUDAGUR 16. APRlL 1984.
SU.ÐARVOGI 3-j, 10.4 REYKJAVÍK S 687700
í þremur sendingura af kartöflum sem komu hingað til landsins helur
komið í ljós að hluti þeirra er með bakteríusjúkdóminn hringrot. Þetta gerð-
ist þrátt fyrir að matvælaeftirlitið í Finnlandi hefði kannað þessar kartöf lur
áður en þær föru þaðan. Kartöflurnar sem hér um ræðir eru frá þrernur
framleiðendum og alls munu þetta vcrða um 52 tonn. Þessi sjúkdómur hefur
ekki verið hér á landi fram að þessu og mikilvægt að gerðar verði allar
hugsanlegar varúðarráðstafanir til þess að hann nái ekki að festa rætur hér
á landi. I nýrri reglugerð um innflutning á plöntum er nú algjörlega bannað
að flytja inn kartöfiur frá fraraleiðendum sem hríngrot hefur komið fram
hjá undanfarin tvö ár. APH
Sýktu kartöflurnar frá Finnlandi eru nú geymdar í geymslum grænmetisverslunarinnar. Það er mikilvægt að
varúðar sé gætt svo smit berist ekki í aðrar kartöflur. Þessar kartöflur verða síðan grafnar í jörðu til að fyrir-
byggja alla hugsanlega smithættu.
DV-myndBj.Bj.
Sýktu kartöflumar geymdar
hjá Grænmetisversluninni
„Það er alltaf ákveöin hætta á
smiti, sérstaklega þegar bæði matar-
kartöflur og útsæði fara í gegnum
sömu geymslur. En þó að smit-
hættan sé fyrir hendi er hún
hverfandi lítil. Tíöni sjúkdómsins er
einnig mjög lítil og sem dæmi um þaö
má nefna aö í einum 25 kg poka sem
hringrot var í var einungis ein
kartafla sýkt. Til þess aö smit geti
borist milli sýktra og heilbrigöra
kartaflna verður bakterían að berast
inn í heilbrigðu kartöfluna. Það ger-
ist ekki nema hún sé borin á milli t.d.
Gæðakönnun
á kartöf lum
— niðurstöður
væntanlegar
I síðustu viku stóðu Neytenda-
samtökin fyrir könnun á gæðum
innfluttra kartaflna. Kartöflurnar
voru flokkaðar eftir gildandi gæða-
mati hér. Niöurstöður þessarar
könnunar hafa ekki enn verið birt-
ar en búist er viö að þær sjái dags-
ins Ijós nú á næstu dögum.
Það verður fróðlegt að sjá hverj-
ar niöurstöðurnar verða úr þessari
könnun og vonandi varpa þær ljósi
á þá óánægju scm hefur ríkt meðal
neytenda meö innfluttar kartöflur
sem hafa veriö hér á markaði nú i
vetur. -APH
meö verkfærum og komist í snert-
ingu við opið sár á heilbrigöri
kartöflu. Hættan á smitun er fyrst og
fremst fólgin í því að smit berist í út-
sæði. Utsæðið er geymt í annnarri
geymslu en sýktu kartöflumar og er
því þessi hætta nokkuö lítil. En þaö
er aldrei hægt að útiloka að hún geti
átt sér stað,” sagöi Sigurgeir
Olafsson plöntusjúkdómafræðingur
þegar DV spurði hann hvort einhver
hætta væri á því að hringrot næði að
festa rætur hér á landi.
„Það er einnig mikilvægt aö þess-
ar kartöflur veröi ekki notaðar sem
útsæði. Þær hafa reyndar verið
spíruvarðar en hugsanlega geta ver-
ið kartöflur innan um sem geta
spírað. Við höfum varað alla þá sem
framleiða útsæði hér á landi við þess-
ari hættu. Einnig höfum við verið
með fræöslufundi fyrir kartöflu-
bændur á Norður- og Suðurlandi þar
sem varað hefur verið við því að nota
þessar kartöflur sem útsæði,” sagöi
Sigurgeir.
Hann sagöi aö sýktu kartöflumar
væru nú í geymslum Grænmetis-
verslunarinnar og væri verið að
vinna aö því að flokka þær frá heil-
brigðum kartöflum. Hér væri um aö
ræöa 52 tonn frá þremur fram-
leiðendum í Finnlandi.
Aðspurður hvort ekki hefði verið
hægt að komast hjá því að fara
með þessar sýktu kartöflur í geymsl-
ur Grænmetisverslunarinnar sagði
Sigurgeir að hér væri um þrjár
sendingar að ræða. Þegar fyrsta
sendingin kom og vart varð við þenn-
an sjúkdóm var ekki talið að heimild
væri fyrir því aö stöðva sendinguna
vegna þess að ekki var gert ráð fyrir
hringroti í þágildandi reglugerð.
Þeirri reglugerð hefur nú verið
breytt á þann veg aö ekki er heimilt
að flytja hingaö til landsins kartöflur
frá framleiðendum sem þessi sjúk-
•dómur hefur komið upp hjá undan-
farin tvö ár. Þegar svo önnur send-
ingin kom var ekki hægt aö flokka
sýktu kartöflumar úr á hafnar-
bakkanum vegna veðurs og var taliö
að hætta væri á frostskemmdum.
Þriðja sendingin var hins vegar
flokkuð á hafnarbakkanum vegna
þess að þá voru viöunandi veöurskil-
yrði.
Þrjár tegundir kartaflna eru flutt-
ar inn frá Finnlandi, bintje, rekord
og sabina. Sjúkdómurinn hefur ein-
ungis komið fram í rekord tegund-
inni.
Sigurgeir sagði að þaö væri mikil-
vægt að ailar sýktu kartöflurnar frá
þessum þremur aðilum kæmu fram.
Að ósk Finna verða þessar kartöflur
síðan grafnar í jörðu og að átta mán-
uöum liðnum hverfur smithættan af
þeim.
Eftirlitiö í Finnlandi er með þeim
hætti að 600 kartöflur frá hverjum
framleiðanda eru skomar í sundur
og kannaöar. Þetta eftirlit virðist
ekki hafa verið nægilegt í þessi
skipti. Einnig er hugsanlegt aö sjúk-
dómseinkennin hafi komið greinileg-
ar í ljós á meöan á flutningunum
hingað til landsins stóð.
-APH
Kartöflusjúkdómurinn:
Eftirlitið í Finnlandi brást
„Það er full ástæða til þess að
brýna fyrir fólki að láta ekki
finnskar kartöflur komast í
snertingu við aðrar kartöflur, svo
sem íslenskar, og einnig ástæöa til að
minna á aö þaö ætti enginn að setja
þessar kartöflur niöur,” sagði
Eðvald Malmquist, yfirmatsmaöur
garöávaxta, í viðtali við DV.
Hann sagði einnig að það væri
mikilvægt að gera allt til að foröast
þaö að þessi sjúkdómur, sem orðið
hefur vart við í finnskum kartöflum
verði landlægur hér á landi. Þessi
sjúkdómur gæti verið mjög skæður.
Hann olli miklu tjóni í Ameríku fyrir
nokkrum árum. Þessi sjúkdómur
væri landlægur í Finnlandi og einnig
heföi borið á honum í Norður-Noregi.
Norðmenn vora búnir aö ákveða að
kaupa kartöflur frá Finnlandi í vet-
ur, en hættu viö þaö þegar í ljós kom
að þessi sjúkdómur var í þeim.
„Þessi sjúkdómur er mjög lúmsk-
ur og getur verið hættulegur og þess
vegna ætti ekki að kaupa kartöfiur
frá löndum þar sem hans hefur orðið
vart,” sagði Eðvald. „Það ætti frek-
ar áð kaupa kartöflur frá löndum þar
sem ekki væri um þessa sjúkdóma að
ræða, s.s. í Póllandi eða Holiandi.”
Eðvald sagði að þessar finnsku
kartöflur heföu einnig mjög lítið
geymsluþol og væru í þeim ýmsir
geymslusjúkdómar. Þó svo að reynt
væri aö tína úr þeim hér áöur en'
þeim væri pakkað væri nokkuð mikið
af skemmdum kartöflum sem kæmu
í hendur neytenda. Það væru því
mjög ódrjúg innkaup fyrir neytendur
að kaupa þessar kartöflur vegna
þess hversu úrgangssamar þær
væru.
Það mikilvægasta, aö sögn
Eðva lds, er að gera allt til aö forðast
þaö að þessi sjúkdómur nái að setj-
ast að hér á landi. Það heföi átt aö
koma fram í Finnlandi að þessar
kartöflur væru sýktar en eftirlitið
þar hefði brugðist.
-APH
HÚSBYGGJENDUR -
MÁLARAR
í Málingarvörudeild hinnar nýju og glæsilegu
Byggin8avöruverslunar Húsasmiðjunnar býðst
einstakt úrval lita og tegunda málningar
ásamt ýmsum gerðum fúavarnar- og þéttiefna.
Notfærið ykkur reynslu starfsmanna Málningar-
vörudeildarinnar við ráðgjöfum litaval, magn
innkaupa og þá tegund málningar og áhalda sem
best henta hverju sinni. Notið tækifærið og kynnið
ykkur samtímis hið ótrúlega og vandaða vöruval í
öðrum deildum Byggingavöruverslunar Húsasmiðjunnar.
MALNINGAVORUR
Jafnt til eigin nota sem í atvinnuskyni
HÚSA
SMIOJAN