Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1984, Side 8
DV. MÁNUDAGUR16. APRIL1984.
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Útlönd
Múslimar berjast
innbyrðis í Trípófí
Sjö menn létu lífið og 35 særðust í
áköfum bardögum milli múslima inn-
byrðis í Trípólí í gær. Hófust átökin á
því að skotiö var á bifreið sem flutti fé-
laga í samtökum vinveittum
Sýrlendingum, en meirihluti múslima í
hafnarborginni er andsnúinn veru sýr-
lenska herliðsins í Líbanon.
Breiddust skotbardagarnir fljótt út
um stóran hluta borgarínnar og héldu
áfram fram eftir nóttu. Oftsinnis hefur
komið til bardaga milli þessara and-
stæöu fylkinga en bardagarnir i gær
þykja með þeim alvarlegustu.
I Beirút hefur stjórnin slegið á frest í
bili framkvæmd áætlunar um að stía
sundur fylkingum kristinna manna og
múslima en ætlunin hafði veriö að
Margfaldir þrettán
Skíöamaöur í bresku Kólumbíu
lenti í snjóskriðu 13 mínútur yfir
klukkan 13 föstudaginn 13. apríl.
Var hann þá staddur hjá fjalla-
skaröi sem kallað er „Föstudagur-
inn þrettándi”.
Maðurinn grófst upp að mitti í
snjónum en þrír skíöamenn aðrir
sáu til hans og meðan einn sótti
hjálp grófu hinir tveir hann upp.
Meiddist maðurinn innvortis og
beinbrotnaöi.
setja stjómarhermenn til vopnahlés-
eftirlits meöfram allri „grænu lín-
unni”, sem aðskilur hverfi kristinna
manna frá íbúöarhluta múslima.
Alls var þaö um 2000 manna lög-
reglu- og herliö sem þama átti að
ganga á milli og koma í veg fyrir
árekstra kristinna manna og múslima.
Um 1250 mönnum hafði verið komið
fyrir í varöstöðu en þá þótti vanta liðs-
auka. Stöku sinnum í gær mátti heyra
skothríð við grænu línuna.
Stórskotahríð var haldið uppi á
hverfi kristinna manna á föstudaginn
og létu 20 manns líf ið.
Tveim útlendingum sem rænt var í
febrúar, bandarískum háskólaprófess-
or og Frakka einum, var sleppt í gær
að viðstöddum fréttamönnum. Fyrir
lausn þeirra stóðu Amalsamtök músl-
ima en þau vildu ekki upplýsa hverjir
hefðu ræntmönnunum.
sntnuiHHM
SÖLUBOÐ
nr SYKUR 2 KG
Juvel HVEITI 2 KG
LENI SALERNIS PAPPÍR
SMJÖRLÍKI
KARTÖFLU
SKRÚFUR
/C\ PÁSKAEGG
\gjmóna NO. 8
...vöruverð í lágmarki
Götubardagi í Beirút, en vopnahléið hefur verið ótryggt þótt aðilar séu orðnir
sammála um framkvæmd eftirlits.
2 BANDARÍSKIR
DIPLÓMATAR FÓR-
UST í SPRENGINGU
SKÆRULIÐA
Tveir bandarískir diplómatar létu
lífið þegar sprengja sprakk í gær í
norðurhluta Namibiu (Suðvestur-
Afríku) í gær. Sprengingin lagði í rúst
bensínstöð í Okatana (um 80 km frá
landamærum Angóla) en þar höfðu
diplómatarnir haft viðkomu til aö taka
bensín.
Einn staðarmanna fórst og fjórir
særðust.
Yfirvöld kenna skæruliðum SWAPO
um sprengjutilræðið en þeir hafa bar-
ist gegn yfirráðum S-Afríku í Namibíu.
Bandaríkjamennimir hafa starfaö í
Windhoek í Namibíu við eftirlit meö
því að S-Afríka kallaði heim herlið sitt
sem sent hafði verið inn í suðurhluta
Angóla. Voru þeir á ferðinni í slíkum
erindrekstri.
Hartsigr-
aöií
Arizona
Gary Hart þakkaði sigur sinn i for-
kosningum demókrata í Arizona í gær
því aö kjósendur heföu óbeit á
ómerkilegum áróðri Walter Mondale
gegn honum.
Sigur Harts yfir Mondale var þó ekki
stór því að Hart fékk 45% á meöan
Mondale fékk 40%. — Fékk Hart 17
landsþingfulltrúa en Mondale 15. —
Jesse Jackson fékk 13%.
Mondale er nú eftir sigrana í New
York og Pennsylvaníu kominn meö
1068 landsþingsfulltrúa á bak við sig og
þarf 1967 til þess að tryggja sér útnefn-
ingu á demókrataþinginu í júní. Hart
hefur595.
Tundurdufla-
herferðin ber
fítinn árangur
Tundurduflalagnir hægrisinna
skæruliða í Nicaragua hafa ekki spillt
aö ráði kaupsiglingum frá landinu, en
um þessar mundir stendur sem hæst
útflutningur á baðmull og kaffi.
Skæruliðamir hafa leitast við að
leggja tundurduflin við hafnarborgina
Corinto, en þaöan er skipað út um 90%
af útflutningi Nicaragua. Corinto tekur
jafnframt á móti mestallri olíunni sem
Nicaragua flytur inn.
Að minnsta kosti tíu skip frá Japan,
Hollandi, Panama, Líberíu og
Sovétríkjunum skemmdust af tundur-
duflum í síðasta mánuöi.
Skæruliðamir njóta stuðnings
Bandaríkjastjórnar og margir þeirra
hafa hlotið þjálfun hjá CIA-erindrek-
um. Náðu þeir á sitt vald smá-
hafnarbæ sunnariega á Kyrrahafs-
strönd Nicaragua í gær og búa sig
undir að halda honum.
Báðar deildir Bandaríkjaþings hafa
ályktað að taka eigi fyrir f járveitingar
til aðstoðar skæruliðunum við tundur-
duflalagnir. — Hefur tundurduflaher-
ferðin mælst illa fyrir erlendis.