Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1984, Page 10
rr
10
Mwr ,n«qA ar HiroAnuviÁM vn
DV. MÁNUDAGUR16. APRIL1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Sikkar velgja
Nýju Delhí
undir uggum
Þaö líöur sjaldan langt á milli
þess aö blóðugar erjur brjótist ein-
hvers staðar út á Indlandi á milli
ólikra þjóöarbrota. I fyrra kostuöu
átökin í Assamfylki í noröaustur-
hluta landsins flest mannslífin. Nú
eru sikkarnir í Punjab (sem á landa-
mæri aö Pakistan) í suöupunktinum.
Morð og óeirðir.
Aö undanfömu hafa nokkrir
franunámenn, þaj' á meöaJ einn þing-
maöur, veriö ráönir af dögum af
hryðjuverkamönnum sikka, fyrir
utan töluveröan fjölda fallinna og
særöra í óeirðum. Hefur verið lýst
yfir neyöarástandi í Punjabfylki og
þangað hefur veriö sendur liðsauki
20.000 hermanna og 30.000 lögreglu-
manna, til þess aö reyna aö halda
hryöjuverkaöflunum í skefjum. Hafa
þeim veriö gefin fyrirmæli um aö
skjóta á óeirðarseggi án frekari viö-
vörunar.
Arnarhreiður hryðjuverkamanna
er í helsta helgidómi sikka. I hinu
gullna musteri í borginni Amritsar
hafa leiötogar hinna róttækari
hreiöraö um sig meö fylgismönnum
sínum og birgðum nýtískulegra
vopna, auk hinna eldri og heföbundn-
ari. — Landsyfirvöld kinoka sér viö
að taka musterið meö áhlaupi af ótta
viö aö þá muni allt fara í bál og
brand.
vangur grænu byltingarinnar og á
flestum sviöum stendur þaö betur en
flest önnur fylki Indlands. Lífskjörin
eru almennt betri, meiri menntun,
heilsugæsla betri og félagslegt skipu-
lág.
Samtímis hafa sikkar haft óskert
frelsi til þess aö iöka sína trú, sem oft
hefur verið lýst eins og nokkurs kon-
ar afleggjara af hindú, eöa mitt á
milli hindú og íslam. Meöal þeirra
sjálfra gætir umburöarlyndis gagn-
vart öðrum trúarbrögðum, og til
dæmis eru hindúar velkomnir í must-
erisikka.
1/eimegunarþjóð
Þegar ólgunnar tók fyrst aö gæta í
Punjab, fyrir um tveim árum, kom
það mjög flatt upp á menn. Engin
teikn höfðu sést þess sem venjulega
gæti leitt til uppþota og uppreisnar.
Ekkert félagslegt óréttlæti, engin
undirokun. Þvert á móti hafa sikkar
bæöi fyrir og eftir aö Indland öölaöist
sjálfstæöi 1947, notiö góöra lífskjara
og velmegunar, haft greiöan aögang
aö valdaembættum og meiri áhrifum
raunar en fjöldi þeirra gæti sagt til
um. Af 700 milljónum manna, sem á
Indlandi búa, eru sikkar milli 15 og
18miljónir.
Leiðtogi ofsatrúar sikka, Jarnail
Singh Bhindranwaie, sem „rétt-
trúaðir" kalla „dýrling" en
andstæðingar „hryðjuverka-
mann". Hann sést hér á meðal
fylgismanna i gullna musterinu i
Amritsat.
Zail Singh, forseti Indlands, er
sikki. Æöstráöandi í flugher Indlands
er sikki og sömuleiðis bankastjóri
seðlabanka Indlands. Raunar ber
mjög á sikkum í foringjaliöi hersins.
Trúfrelsi
Punjab hefur veriö einn aöalvett-
öfgarnir fá hljómgrunn
Samt sem áöur hafa öfgaöflin,
undir forystu ofsatrúarmannsins
Jamail Singh Bhindranwale, fundiö
frjósaman jaröveg meðal trúbræöra
sinna fyrir hryðjuverkastefnu
þeirra.
Einhverjir sikkanna láta sér
næg ja aö kref jast þess að trúarbrögö
þeirra veröi viöurkennd sjálfstæö
trúarbrögö og látin sitja þannig við
sama borö og hindú og íslam. Hafa
þeir nokkuö tii síns máls um aö þau
hafi meira eða minna veriö dregin í
dUk meö hindú. — Landsyfirvöld
hafa ítrekaö lýst því yfir aö þau taki
þessa kröfu tU greina.
Jafnframt vilja aörir sikkar
aukna sjálfstjórn til handa Punjab
fylki og hjá öfgaöflunum heyrast
kröfur um aö Punjab rjúfi alfarið
sambandið við Nýju Delhí, sem
stjórnin þar getur alls ekki tekið tU
greina. Sikkar eru raunar aöeins í
naumum meirihluta í Punjab.
Afgangurinn eru hindúar.
Fælast nýja tíma
Aö baki hryðjuverkum öfga-
manna sikka grUUr í tvær skýringar.
I aöra röndina finnst mörgum sikk-
um þeir ekki fá aö njóta nema lítUs
hluta ávaxta sinna. I hina, sem er
mikilvægara, kvíöa þeir því að þeir
séu aö glata þjóöarsérkennum sín-
um, og eiga þeir þaö sameiginlegt
með mörgum öörum þjóðarbrotum
og minnihlutahópum. Meöal ungra
nútímalegri sikka er þaö aö verða al-
gengara aö þeir leggi tU hUöar vefj-
arhöttinn eöa túrbaninn og raki af
sér skeggiö, auk þess aö láta af ýms-
um gömlum siðum og jafnvel kvæn-
ast út fyrir stéttina, þar sem konan
leiðir þá út í nýjan lífsstíl.
Þaö ööru fremur hefur framkallaö
viöbrögö ofstækismannanna sem
fylgja Bhindranwales. Þeii' ætla að
vemda með valdi ef nauösyn krefur.
Þótt sítt skeggiö, klæönaöurinn og
annaö yfirbragö sikkanna minni
helst á tíma Gamla testamentisins
hafa þeir kannski aUra þjóöarbrota
mest á Indlandi oröiö fyrir nútíma-
legum áhrifum. Má vera aö þessar
hræringar núna séu í því tUliti af
svipuöum toga og ólgan, sem bylti
keisaranum í Iran þegar hann ætlaöi
aö nota oUumUljaröana til þess aö
færa þjóöhættina til nútímalegra
sniös.
En aUt um þaö eru góð ráö dýr
fyrir stjórn Indíru Gandhí í leit að
lausn á þessum vanda. Því harðar
sem hún tekur óeirðarseggjum, því
meir harönar andstaöan. Eftirgjafir
fela þó í sér ýmsar hættur eins og
hvatningu fyrir önnur þjóöarbrot aö
rísa upp.
Rafeindatækn-
ináaðstöðva
flóttafólkið
Að baki miklum byggingarfram-
kvæmdum meðfram landamærun-
um, sem deUa Þýskalandi í tvennt,
Uggur sú hugmynd aö skipta á hinum
banvænu sjálfskjótandi hindrunum
/ gaipla múrsins og hlaöa í staöinn
• upp annan, nútímalegri rafeinda-
múr, sem gerir strok vestur yfir enn
torveldara. Ekkert ríki kemst þá
meö tærnar þar sem Alþýöulýöveldiö
Þýskaland (austur) hefur hælana í
landamæravörslunni.
Vegna 22 ára gamals rafeinda-
fræöings, Bernd Enders frá Eisen-
ach í A-Þýskalandi, veit Bonn-
stjómin upp á hár, hvaö þaö er sem
Austur-Þjóðverjar eru aö reisa meö-
fram landamærunum. I febrúar í
vetur fór hann ásamt tveim starfs-
bræörum sínum í fylgd tveggja
„Grepo” (landamæravaröa) aö
landamærunum til viögeröa á
skemmdum eftir flóö, skemmdum á
landamæragiröingunni. Honum
tókst aö stinga hina af og komst yfir
þriggja metra háa síöustu girö-
inguna meö því aö stökkva af bílþaki
flutningabílsins.
skothríö. Þaö vekur menn til um-
hugsunar um þaö hvort yfirvöld A-
Þýskalands hafi afturkallað fyrir-
mælin, sem áöur giltu, um aö skjóta
á hvem þann sem reyndi aö strjúka.
Kannski er þaö árangur af viðleitni
Helmuts Kohls kanslara til þess aö
draga úr kalanum milli hægri afl-
anna í V-Þýskalandi og kommúnista-
stjórnarinnar í austri. Kannski
hugsa leiötogar alþýðulýðveldisins
aö nóg sé komiö af blóðdrjúpandi
fyrirsögnum vestrænna fjölmiöla um
flótta yfir múrinn, og hví kalla yfir
sig sh’ka landkynningu fyrir einn og
einn strokumann, þegar 500 A-Þjóö-
verjar fá leyfi til þess að fara dag-
lega meö löglegum hætti til vesturs?
Hættir að skjóta?
Þaö óvenjulegasta viö flóttann
þótti þá, að aftur henti þaö aö landa-
mæraveröirnir létu vera að hefja
Öflugur múr
Af síðustu árskýrslu landamæra-
vörslu Vestur-Þýskalands, sem birt-
ist í mars, kemur fram að „giröing-
in” meðfram 1393 km löngum landa-.
mærunum er hvergi farin aö láta á
sjá að austanverðu. Tvær háar jám-
girðingar liggja meö landamærun-
um, en misjafnlega breitt á milli
þeirra. Þar tU viðbótar kemur 154,4
km langt jarösprengjubelti, 392,2 km
kafla er gætt af sjálfskjótandi dráps-
vélum, 29,7 km eru steinsteyptur
múr, 241,3 km eru baðaðir
Umsjón: Guðmundur Pétursson
ljóskösturum og 86,6 km er gætt af
samtals 1063 grimmum úlfhundum.
Þar aö auki hefur alþýöulýðveldiö
látið grafa 838 km langan skurö til
þess aö hindra að aka megi þungum
vörubílum á giröinguna, ogmeöfram
þessu öllu eru 786 skotbyrgi og 713
varðtumar. Landspildan meöfram
giröingunni er plægð reglulega svo
aö sjá megi strax fótsporin ef ein-
hver laumast yfir.
Frá því í september síöasta haust
hafa austurþýsk yfirvöld látiö taka
niöur sjálfskjótandi drápsvélar meö-
fram 54 km kafla og reisa í staðinn
rafeindavædda girðingu, sem liggur
um 500 metrum aö baki landamæra-
línunni. Þessi nýtækni-girðing er
raunar oröin um 90 km löng nú
þegar.
Fyrst er steinveggur steyptur hálf-
an metra niöur í jörðina, en síöan er
tildraö ofan á hann jámgiröingu meö
skörpum brúnum. Þetta jám er
fengið aö vestan í aukinni verslun
þýskra viö þýska. Þetta geröi er 2,5
metrar á hæö og inn í þaö er ofið 20
rafeindaþráöum, auk átta til viðbót-
ar ofan á geröisveggnum, en allir
gefa þeir viðvörunarmerki. Ofan á
geröisveggnum liggja strengir í v-
laga víravirki og efst er gaddavírs-
strengur.
Ef einhver strokumaöur rýfur
straum (60 volta spenna er á
strengjunum), veit landamæravarsl-
an nákvæmlega hvar hún á strax aö
hef ja leitina. Hún hefur rúman tíma,
því að langt er enn til landamæranna
frá giröingunni. Hliðin í þessum
mikla þýska múr eru rafeindastýrð
og opnast ekki nema landamæra-
vöröur segi í símann rétta lykiloröið
og um þaö er skipt daglega.
Ráðið frá því
að strjúka þessa ieið
Ymsir veikleikar eru þó á rafgirð-
ingu þessari. Rjúfa verður raf-
strauminn í þrumuveðrum og raf-
tæknifræöingar treysta sér til aö
tengja framhjá svo aö í friöi megi
skera sig í gegn. Ekki er þó mælt
meö slíku og raunar hafa yfirvöld í
Bonn varaö austantjaldsmenn viö
því aö reyna strok í gegnum giröing-
una.
Þeim fer fækkandi sem sleppa
þannig yfir. I fyrra komust 51 vestur
yfir (þar af níu í einkennisbúning-
um), en 72 árið áöur. Fremur er
reynt aö flýja frá öðrum austan-
tjaldslöndum.
RUNTAL OFNARNIR FRÁ ONA ERU BETRIKOSTUR.
OFNASMÐJA NORÐURLANDS
FUNAHÖFÐA 17-v/ÁRTÚNSHÖFÐA
SÍMI82477 - 82980 -110 REYKJAVÍK
i
m§mwmmmmtmwwmmFwmwm§amnmn i n
. *•. i»- -