Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1984, Síða 20
IS
20
DV. MÁNUDAGUR16. APRlL 1984.
HAFNIR
Upplýsingar hjá Magnúsi B. Einarssyni. Simi 92-6958.
BREIÐDALSVÍK
Upplýsingar hjó Steinunni Arnardóttur, simi 97-5628.
DJÚPIVOGUR
Upplýsingar hjó Steinunni Jónsdóttur, simi 97-8916.
Einnig eru aiiar uppiýsingar á afgreiðslu DV Þver-
hoiti 11, sími27022.
Við fljúgum
án tafar-
innanlands sem utan
LEIGUFLUGÍjc^
Sverrír Þóroddsson \í&r)
REYKJAVÍKURFLUGVELU ^ 28011 N_/
ÁHUGAVERT, EKKISATT?
: «m
.. n
ÞU FJERÐ FERMINGAR-
GJÚFINA HJÁ OKKUR
Opið laugard. kl. 10 — 17.
Opið sunnud. kl. 14—17.
Hamraborg 12,
|r« síS,
Sendum í póstkröfu.
EURDCARD
Mál ekkjunnar sem fær ekki makalíf eyri hjá Líf eyrissjóði VR:
Eign sjóðsins vegna
sjóðfélagans nemur nú
um 450 þúsund kr.
Frétt DV um hiö óvenjulega mál sem
upp er komiö hjá Lífeyrissjóöi
verslunarmanna, þar sem ekkja ein
fær ekki makalífeyri þar sem hún er
aðeins 39 ára gömul, hefur vakiö
nokkra athygli og allmargir lesendur
DV hafa haft samband viö blaöið
vegna þessa máls. Þaö sem þeir vilja
helst vita er hversu há upphæö þaö er
sem viðkomandi sjóöfélagi heföi borg-
aö lífeyrissjóönum á þeim 26 árum sem
hann var í sjóönum.
„Þessi tiltekni sjóöfélagi hefur greitt
42 þúsund kr. til sjóösins sjálfur en at-
vinnurekandi hans hefur greitt 64
þúsund kr. þannig að alls eru þetta 106
þúsund kr. Ef tekist heföi aö
verðtryggja þessi iögjöld, miöaö viö
laun, ætti sjóöurínn núna 705 þúsund
kr. og er þá ekki reiknað meö vöxtum,-
En lán til lífeyrissjóðsins hafa löngum
verið óverötryggö og miöaö viö vexti af
þeim lánum á sjóöurinn nú 450 þúsund
kr. til þess aö mæta skuldbindingum
vegna þessa manns,” sagöi Pétur
Blöndal, forstjóri Lífeyrissjóös VR, í
samtali við DV er við spuröum hann
um inneign sjóöfélagsins hjá sjóönum.
Pétur sagöi einnig aö í þessu
sambandi væri rétt aö benda á aö
Lífeyrissjóður verslunarmanna hóf
fyrstur lífeyrissjóöa aö verðtryggja út-
lán 1979 sem mun rétta þennan halla af
þegar fram í sækir.
Dygði í 3 ár og 3 mánuði
„Ef makinn fengi óskertan maka-
lífeyri þá næmi sá lífeyrir 138 þúsund
kr. á ári. Það er því ljóst aö núverandi
Frótt D V afmálinu.
eign sjóðsins vegna þessa sjóöfélaga
dugar til greiðslu makalífeyris í 3 ár og
3 mánuöi. Verötryggö eign (705
þúsund) dygöi aftur á móti í 5 ár og 1
mánuö. 39 ára kona á eftir ólifuö 42 ár
aö meðaltali og ævilangur makalif-
eyrir mundi kosta 5,8 milljónir,” sagöi ’
Pétur.
Þá kom ennfremur fram hjá Pétri að
ef sjötugur maður heföi átt sam-
bærileg réttindi fengi hann 127 þúsund
kr. á ári í lífeyri. Eign sjóðsins (450
þúsund kr.) dugar þá í 3 ár og 6
mánuði...” en sjötugur maöur getur
vænst þess aö lifa i 12,5 ár aö
meðaltali. Dæmiö er þvi ekkert sérlega
aölaöandi,” sagöi hann.
„Þaö er hlutverk lífeyrissjóös aö
tryggja sjóðfélaga fyrir tekjumissi af
völdum dauöa, örorku og elli. Niöur-
staöa þessara útreikninga hér aö
framan sýnir að menn þurfa að huga
vel að því hvaö þeir vilja tryggja og
hvað er ekki þörf á aö tryggja. Þaö er
til dæmis ekki talin þörf á aö tryggja
makalífeyri ævilangt til þrítugs barn-
lauss karlmanns þó kona hans falli frá.
Aftur á móti er verið að vinna aö
reglugerðarbreytingum hjá lífeyris-
sjóöi VR til aö milda þau skörpu skil
sem leiða af því að makalífeyrir er
háöur bamalífeyri,” sagði Pétur.
-FRI.
Klóaklykt að drepa kennara og nemendur á Akranesi:
„MUNUM EKKITAKA UPP
KENNSLU AÐ HAUSTI
— nema viðgerð hafi farið fram”
„Þaö var samþykkt á kennarafundi
á mánudag aö skora á bæjaryfirvöld
aö laga þetta fyrir haustiö annars
treystu menn sér ekki til aö taka upp
kennslu,” sagði Sveinn Kristinsson,
trúnaöarmaöur kennara í Fjölbrauta-
skóla Akraness, í samtali viö DV.
Illt ástand hefur aö undanfömu
veriö í Fjölbrautaskóla Akraness
vegna bilunar í skolplögnum. Leggur
fnykinn um allan skólann svo nær ólíft
þykir þar inni.
„Þetta hefur alltaf gosið upp með
vissu millibili,” sagöi Sveinn. „Um
þverbak keyrði fyrir nokkram dögum
og komu þá menn frá bænum til að
hreinsa lagnirnar svo aö eins og er er
stundarfriður. Þeir losuöu stíflur svo
aö í raun var þetta engin viðgerö.
Skólahúsiö er tíu ára gamalt og
sennilega eru lagnirnar í húsinu ónýt-
ar.
Viö gerum okkur fyllilega grein fyrir
því að þetta er mikið verk sem ekki er
hægt aö gera á nokkrum dogum. Þess
vegna höfum við ákveðið aö klára aö
kenna á þessari önn. Hins vegar er
einhugur í mönnum aö þetta veröi lag-
aö því þaö er engin aöstaöa til vinnu í
húsi þar sem klóaklykt er aö drepa
mann.”
— Eraö þiö bjartsýnir á aö þetta
verðilagað?
,,Já, við erum það,” sagði Sveinn
Kristinsson.
-KÞ.
BARNALEIKTÆKI
fyrir allskonar Itiksvctdi barna,
bcrði við sambýlishús, sumarbústaði,
Ieikvelli o.lI.
ÍÞRÓTTATÆKI
fyrir íþróttasali og íþróttavelli.
Leitid upplýsinga
Vélaverkstœði
BERNHARQS HANNESSOHAR >I.
Suðurlandsbraut 12. Reykjavik
Sími 35810