Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1984, Page 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. APRIL1984.
5
Nýjungfrá Iðnaðarbankanum:
Capital Available
USA Investment Bankers with
Capital Available. Bank Guaran-
tees and Letters of Credit with
Sinking Funds for Businesses
requiring Expansion Capital. Will
also consider quality Real Estate
Projects.
REPRESENTATIVE
Needed to act as Liaison for us in
the processing of these financing
applications.
Venture Capital Consultants, Inc,
Investment Bankers
16311 Ventura Blvd, Suite 999
Encino, CA 91436
Telex: 651355 Vencap LSA
Tel. (818) 7890422
CS-360
CS-250
Það er allt sem
mælir með
A I %A/ A® útlit, ending og
r\ I Wr\ hljómgæði.
Verð
frá kr.
6.980,-
ARMULA 38 iSelmúla megim - 105 REYKJAVIK
SIMAR 31133 83177- POSTHOLF 1366
„Aukið frelsi,
betri kjöi,’
I þeirri samkeppni sem nú hefur
skapast á innlánsmarkaönum kynnti
Iðnaðarbankinn nýlega á blaðamanna-
fundi sína nýjung í vaxtamálum undir
kjörorðinu „aukið frelsi — betri kjör”
og vísar það til IB bónussins.
IB bónus er 1,5 prósent vaxtabónus
sem leggst sjálfkrafa, auk venjulegra
vaxta, viö innistæðu á bundnum reikn-
ingi tvisvar á ári ef ekki er tekið út af
honum, að því er Bragi Hannesson
bankastjóri sagði.
Arsávöxtun á bundnum sex mánaða
reikningi í Iönaðarbankanum með IB
bónus verður því 21,6 prósent. IB
bónusinn er reiknaöur í júlí og janúar
ár hvert og verður því næst reiknaöur í
júlí nk.
A blaöamannafundinum kynnti
bankastjórnin jafnframt nýja banka-
reikninga. Bundnir sex mánaða
reikningar verða nú tvenns konar:
verðtryggðir að fullu með 1,5 prósent
vöxtum eins og verið hefur en vextir
verða færðir tvisvar á ári.
Overðtryggðir reikningar sem áður
voru til tólf mánaöa, verða nú til sex
mánaða og vextir 19 prósent reiknast
tvisvar á ári sem fyrr. Sama regla
gildir um úttekt á báðum reikningum.
Þeir eru lausir tvisvar á ári, mánuð í
senn, á sama hátt og verðtryggðir
reikningar hafa verið.
Frjálst er að færa innistæðu milli
nýrra verðtryggðra og óverðtryggðra
reikninga án lengingar binditíma.
Þegar bónusinn verður fyrst
reiknaður í júlí nk. leggst 1,5 prósent
vaxtabónus auk vaxta við alia sex
mánaða reikninga, verðtryggða og
óverðtryggða, sem verið hafa án út-
tektar frá 15. apríl til 30. júní.
Eigendur bundinna sex mánaða reikn-
inga þurfa ekki að koma í bankann til
að millifæra eða endurnýja reikninga
sína. Þeir fá vaxtabónus sjálfkrafa
tvisvar á ári.
Sagði Bragi Hannesson að telja
mætti upp fjóra kosti tengda IB
bónusnum, ávöxtun sem væri 21,6
prósent fyrir alla, öryggi vegna
heimildar til millifærslu, þægindi þar
eð bónusinn reiknast sjálfkrafa og í
fjórða lagi hraðann sem fólginn er í því
að bónus reiknast strax á alla sex
mánaöa reikninga. HÞ
Umræðuf undir og skemmtikvöld
íNorrænahúsinu
Friöarvikan, sem hófst sl. laugar-
dag, er enn í fullum gangi með þétt-
skipaðri dagskrá í Norræna húsinu.
Dagskráin í gær hófst með
myndlistarsýningu en seinni partinn
var haldinn fræðslufundur þar sem
tveir stjórnmálafræðingar fjölluðu um
afvopnunarmál, þeirGunnarGunnars-
son og Þórður Ægir Oskarsson. Dag-
skránni lauk síðan með „Halldórs
Laxness kvöldi” með upplestri úr
verkum skáldsins og söng.
Á dagskrá friöarvikunnar í dag er
m.a. fræðslufundur um utanríkismál
Islendinga og munu fulltrúar allra
þingflokka flytja erindi.
Friðarvikunni lýkur 2. í páskum. A
dagskránni næstu daga eru margir
umræðufundir þar sem m.a. verður
f jallað um íslenskt friðarfrumvkæði af
Kristínu Ástgeirsdóttur, um vígbúnað
á norðurslóðum af Áma Hjartarsyni,
um varnarviðbúnað á Islandi af Kjart-
ani Gunnarssyni og hugmyndir um
kjarnorkuvopnalaus Norðuriönd af
Þórði Yngva Guðmundssyni.
Á föstudag er dagskrá á vegum Sam-
taka lækna gegn kjarnorkuvá þar sem
m.a. verður. f jallað um uppbyggingu
og eðli ‘kjarnorkuvopna, áhrif
kjamorkusprenginga á mannvirki og
mannslíkamann.
A fimmtudagskvöld er tónlistar-
kvöld á dagskrá, á föstudagskvöld er
blönduð dagskrá en á laugardagskvöld
er ljóöadagskrá. Á lokafundi friðarvik-
unnar 2. í páskum verður m.a. f jallaö
um friðarstarf þar sem fulltrúar að-
standenda þessarar friðarviku munu
gera grein fy rir stefnumiðum sínum.
HÞ
Eitt þúsundkróna seðillinn og tiu króna myntin.
Nýir peningar koma í umferð f sumar:
Þúsund króna seðill
og tíu króna mynt
Eitt þúsund króna seöill og tíu lengri en 500 króna seðillinn.
króna mynt koma í umferð væntan-
lega í júlí eða ágúst næstkomandi.
Viðskiptaráöuneytið hefur samþykkt
tillögur Seðlabankans um útlit
peninganna.
Eitt þúsund króna seðillinn er
teiknaður hjá Auglýsingastofu
Kristínar hf. Aöallitur seöilsins er
fjölublár. Stærð hans er 7X15
sentímetrar eða hálfum sentímetra
Á framhlið er mynd af Brynjólfi
biskupi Sveinssyni en mynstur í
grunni og ramma eru meðal annars
úr rekkjarrefli í Þjóöminjasafni ís-
•lands og eru talin vera frá 17. og 18.
öld.
A bakhliö seðilsins er Brynjólfs-
kirkja í Skálholti séð að framan,
sneiðing langsum eftir kirkjunni og
gerð hennar að innan sýnd, en neðst
til hægri er mynd af hring Brynjólfs.
Tíu króna myntin er teiknuð af
Þresti Magnússyni teiknara. Hún er
slegin úr kopar/nikkel eins og fimm
krónu myntirnar. Stæröin er 27,5
millimetrar í þvermál og þyngdin
átta grömm.
Á framhlið myntarinnar eru land-
vættirnar fjórar eins og á fimm
króna myntinni. Á bakhlið eru f jórar
loðnur. -KMU.
Leyniverkfall í Búöardal
. __ . _ ... 1_f.. .1.1.: -.21X r_: 1-- (nomnnn Þo nnfnl n ni’pT inrno r Hniln o A r*nAo ITinn ViQÍmil/i orrTV) Anr
Starfsfólk á skrifstofu Kaupfélags
Hvammsfjarðar í Búðardal lagði
óvænt niöur vinnu í hálfan annan
sólarhring fyrir nokkru. Hið sér-
kennilega er aö viðkomandi aöilar
hafa ekki viljað skýra frá hvers
vegna verkfallið var.
DV hefiu- rætt við kaupfélags-
stjóra, fulltrúa kaupfélagsstjóra,
nokkra aðra starfsmenn skrifstof-
unnar, formann kaupfélagsstjórnar
og starfsmenn fleiri deilda
kaupfélagsins en enginn vill að
opinberlega komi fram hvers vegna
skrifstof ufólkið lagði niður vinnu.
Ekki virðist hafa verið um kjara-
deilu að ræða. Einn heimildarmaður
blaðsins sagði að þetta væri innan-
hússdeila milli skrifstofu og annarr-
ar deildar kaupfélagsins. Hann sagöi
málið varöa bókhald og uppgjör.
-KMU.
Urval
ÚRVALSEFNI
VIÐ ALLRA HÆFI
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
27022
AIWA AIWA AIWA
Fermingarg j öfin
íárer
AIWA-ferðatæki