Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1984, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1984, Blaðsíða 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1984. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Kaupfébgshretió Sá sem r*ður veöri og vindum fylgist gjörla með því sem mennirnir haf- ast að á jörðu niðri og er gjarn á að láta stjórnast af þvi hvemig honum iikar brölt þeirra. Norðanlands er það útbreidd skoðun að ekki sé hann kaupfélagssinnaður, al- valdurinn þessi, þvi eins lengi og menn muna hefur hann skeytt skapi sínu á aðalfundi KEA. Sá fundur er haldinn á vorin þegar veður era orðin góð en alltaf skal allt fara úr skorðum við kaupfélagsfund- inn. Siðasta belgl var engin undantekning. Lengi á undan hafði sólin skinið glatt og hitastigið milli 15 og 20 stig dag eftir dag. Fljótlega eftlr fundarsetningu á föstudegi fór það niður undir núllið og var svo í tvo daga meðan fundurinn stóð. Strax á sunnudegi fór að skána og á mánudegi var kaupfélags- hretið alkunna búið og kominn 12 stiga hiti. Mikið tap? Þó alllr vilji nú hafa stór- markaði og slegist sé um lóðir undir slík fyrirbœri virð- ist það þó ekki elns gróðavæn- legt að reka stórmarkað og að eiga t.d. myntsláttu. Þannig segir sagan að tapið á Mikia- garði, helstu túristaattrak- sjón í Reykjavik, nemi 12 mllljónum. Nú er það spurningin, er það mikið eða litiðtap? Handagangur í handbohafram- boði Þing Handknattlelkssam- bands Islands verður haldlð dagana 25. til 26. mai nk. og er mikil spenna kringum framboðsmál. Núverandi for- maður, Friðrik Guðmunds- son, gefur kost á sér áfram til Július Hafstoin. þess embettis en ekki eru allir sammála um ágeti hans og mótframboð er nú i bígerð. Það er Pétur Rafnsson sem býður sig fram gegn sitjandi formanni og hefur Pétur haft samband við ýmis félög og falast eftir stuðningi. Hann á sér dugiegan stuðningsmann þar sem Júlíus Hafstein, fyrr- verandi formaður sambands- ins, er. Júlíus hyggur ekki á framboð sjálfur en hugmyndir eru í gangi um framtak sem geti eflt mjög völd Júliusar innan HSl. Hugmyndir þessar miðast við að Július gangist fyrir stofnun stuðningsmannahóps HSl en svipað fyrirberi er til í knattspyrnuhreyfingunnl. Yrðl Július formaður þess hóps og þar með í raun með annan fótinn i stjóra sambandslns. Rykský Til eru þeir menn í Reykja- vík sem hafa áhyggjur af því að rónum bejarins hafi nú svo fekkað, eftir tilkomu SÁA og vegna aukins áróðurs fyrir bindindi, að rónarnir séu nú í útrýmingarhettu. Vilja þesslr menn að stofnuð verði friðunarsamtök og reynt að bjarga nokkrum eintökum til að h'alda bejarbragnum. Einn þessara manna var svo þreyttur og leiður orðinn á rónaleysinu i mlðbenum að hann sagði að það væri líkleg- ast búið að þurrka alla rón- ana upp. „Ef maður sér einhvers staðar rykský i benum er það róni að míga! ” Það varða aJdrei franskar úr þossum. isiendingarnir verða að éta þær. Kartöflur Þó ekki gangi allt sem skyldi hjá Grenmetisversiun landbúnaðarins og neytendur vogl sér að kvarta undan kartöflum sem boðið er upp á í verslunum er samkeppnin hörð á kartöflumarkaðnum ogekkert gefiðeftir. Eins og allir vita eru tver verksmiðjur sem framleiða franskar kartöfiur og aörar tegundir unninna kartaflna fyrir innleudan markað. önnur er í Þykkvabenum en hin á Svalbarðsströnd. Verksmiðjan á Svalbarðs- strönd kennir afurðir sinar við Fransmann og er dreif ing afurða verksmiöjunnar að hluta i höndum Grenmetis- verslunarinnar en að hluta í höndum fyrirtekisins Garra. Þaö teljast eðlilegir viðskiptahettir að veita stórum viðskiptavinum afslátt og fá stórmarkaðir og sterri verslanir 5% afslátt frá dreifingaraðilum. Nú mun Grenmetisverslunin hafa aukið afsiátt sinn tli þessara viðskiptavina upp í 11% og reynir þannig aö losna við hinn dreifingaraðilann, Garra. Þó það sé erfitt að flytja inn kartöflur er markaöurinn þó þess virði að berjast fyrir honum. Umsjónarmaður: Ólafur B. Guðnason Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Bíóhöllin—Þrumuf leygur Þrumari Heiti: Thundorball. Þjóöerni: Ensk. Leikstjórn: Torronco Young. Handrit: Richard Maibaum, John Hopkins. Aöalhlutverk: SeanConnery, Claudine Auger, Adolfo Coli. Ami Samúelsson í Bíóhöllinni hefur nú að undanfömu verið að sýna gamlar myndir sem hann hefur keypt sýningarréttinn á. Nú eru í gangi þrjár slíkar og fleiri munu á ieiðinni. Ein þessara mynda er Thunder- ball, þar sem 007 er á fullri ferö og er þaö Sean Connery sem er James Bond í þessari mynd. Eg hef í raunninni aldrei verið neinn Bondaðdáandi, raunar leiðst myndir um hann frekar en allt annað, en viðurkenni þó fúslega nauðsyn mynda af þessu tagi. Hvaö viðvíkur þessari mynd, Thunderball, þá er hún barn síns tíma, anno 1965. Þá var tæknin ekki sú sama og í dag en Bondsi samt jafnklár, svona hlutfallslega. Ymsar tæknibrellur eru hjákát- legar í augum þeirra sem alist hafa upp í bíóheimi geimtrilógíunnar (og fer stækkandi) Star Wars. Maöur synti rétt hjá hákarli og glöggir gestir kvikmyndahússins sáu að hann var bundinn með bandi. Það er að sjálfsögðu hákarlinn sem er bundinn, en ekki maðurinn, slíkt væri óhentugt. Samkvæmt viðtekinni venju fæst James gamli við klikkaðan bófafor- ingja og þó þetta hafi kannski verið í fyrsta skipti sem kjamorkuvopni er stoliö þá er þetta ekki í þaö síðasta. Inn í þetta blandast svo huggu- legar dömur en heldur hefur Bondý verið slappur á þessum „unglings- árum” því mér taldist til að hann hefði aðeins lagt fjórar dömur að velli í myndinni og er þó ekkifull- vissa með eina þeirra. Þaö skapast oft góð spenna i þessum þáttum en myndin veröur kannski hjákátleg í augum þeirra sem vanir eru háþróuðum tækni- brellum. Engu að síður ætla ég að lýsa þessu sem hinni ágætustu afþreyingu sem auðvitað er mark- miðið. Sigurbjöra Aðalsteinsson. Scan Connery og Ciaudine Auger í Þramufleyg. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir SMÁAUGLÝSINGAÞJÓNUSTA Y1D GETUN LETT ÞER SPORIN OG AUDVELDAD ÞÉR FYRIRHÖFN * Afsöl og sölutilkynningar bifreiða * Húsaleigusamningar (löggiltir) * Tekið á móti skriflegum tilboðum Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá um að svara fyrir þig símanum. Við tökum á móti upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær i góðu tómi virka daga kl. 9—22 OPIÐ: laugardaga 9—14 sunnudaga kl. 18—22 Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17. SÍMINN ER 27022. ATHUGIÐ Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17föstudaga. SMÁAUGLÝSINGADEILD, ÞVERHOLT111, SÍMI 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.