Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 4
4 DV. MANUDAGUR 27. AGUST 1984. Þetta snúningsleiktæki, sem fær menn til aö halda sér fast, á mikium vinsældum aö fagna í Laugardalnum. DV-mynd APH. ELDUR í LYFJA- VERSLUN RÍKISINS Slökkviliöinu í Reykjavík var gert viövart um eld í húsnæöi Lyfja- verslunar ríkisins, Borgartúni 6, á þriðja tímanum aöfaranótt laugar- dags. Eldur logaöi í rafmagnstöflu á þriöju hæð hússins. Tveir slökkviliös- menn í körfu fóru inn um glugga á þriöju hæö hússins og gekk þeim greiðlega að slökkva eldinn. Skemmdir uröu litlar af völdum hita, reyks og vatns. Allt tiltækt lið var kallaö á staðinn er fregnir bárust af brunanum en betur fór en leit út fyrir f fyrstu. -SGV. Slökkviliðsmenn aö störfum við Lyf javerslunina. DV-mynd S. Verðkönnun ítívolíum: Svipaö verðlag í báðum tívolíunum Er þaö ómæld bjartsýni Reyk- víkinga aö nú eru skyndilega starfandi tvö tívolí í höfuöstaönum? Sigurður Kárason, tívolístjóri á Melavelli, er aö minnsta kosti ekki svartsýnn á framtíðina. „Eg lít á þetta sem fyrsta skrefið aö heilsárstívolíi í Reykjavík. Þetta hefur gengiö ágætlega fr£un aö þessu og á laugardaginn varmikil aðsókn.” Á laugardaginn var, eins og menn muna, þokkalegt veöur og því tilvalið að bregöa sér í tívolí. Á Heimilissýningunm hittum viö Olaf Gústafsson, framkvæmdastjóra sýningarinnar, sem sýnir okkur hvaö tívolíið þar hefur upp á aö bjóöa. Hann segir okkur aö leiktækin séu frá Dan- mörku og verði þarna þar til sýningunni ljúki, eöa til 9. september. Hvað kostar í tækin? Það var reyndar á sunnudag sem blaðamaöur brá sér í þessi tvö tívolí. Þá var kominn rigningarsuddi og lítið fýsiiegt aö fara í útiskemmtigarð. Tívolíiö á Melavellinum á, aö sögn Siguröar Kárasonar, eftir aö stækka þegar fram líöa stundir. Þar er nú boðiö upp á fimm möguleika. Fyrst eru þaö kastþrautir ýmiss konar sem kostar 30 - 40 krónur aö reyna og eru verðlaun í boöi ef hittnin er meö. I hringekju með litlum flugvélum kost- ar 60 krónur. I svokallaða gocartbíla kostar 100 krónur. Þeir ganga fyrir bensíni og eru mjög vinsælir. I hina sígildu klessubíla kostar 70 krónur fyrir tvo og 50 krónur kostar í litla hringekju sem er vel viö hæfi þeirra minnstu. Klessubílamir eru aö sjálfsögöu í tívolíinu í Laugardalnum og kostar fyrir tvo 60 krónur. I kolkrabba, sem sveiflar sér í allar áttir á fleygiferö, kostar 60 krónur. Síöan er eitt ógn- vekjandi tæki en ákaflega skemmtilegt sem heitir uppsnúningur (round up) og kostar í það 70 krónur. Þarna er líka hefðbundinn hringekja fyrir þau minnstu og kostar í hana 40 krónur. Þá er þar uppblásinn kastali og geta krakkar ærslast þar og hoppað aö vild og borga fyrir þaö 20 krónur. I kastleikina kostar 20 krónur og eru verölaun í boöi. Aö lokum eru smá- happdrætti. Einn miði kostar 15 krónur, f jórir 50 kr. og 10 80 krónur og ýmiss konar verölaun eru í boði. Til aö komast í tívolíið í Laugar- dalnum verður að borga sig inn á Heimilissýninguna og kostar þaö 150 krónur fyrir fullorðna og 50 krónur fyrir börn. Niöurstaöan er sú að tívolí lífgar upp á tilveruna og þó að rigni eilítið er engin ástæöa til aö sitja heima og sleppa tívolíinu. aph Reykjavíkurmaraþon 1984: _r__________________ r VIÐBUIN, TILBUIN, NU — um 280 „maraþonar” á faraldsfæti í gær Viðbúin, tilbúin, nú. Um 280 Alls hlupu 85 maraþonhlaupiö, 42 Þrátt fyrir rigningu og örlítinn hlauparar voru mættir í startstöðuna km, um 75 í hálfu maraþoni, 21 km, og mótvind tókst hlaupurunum vel upp í Reykjavíkurmaraþoninu um klukkan afgangurinn, 120 hlauparar, hlupu 8 og tóku sporiðléttir í lund. tíu í gærmorgun. Lagt var af staö á km eða hinn svokallaða ,/un-run” DV-myndKAE. móts viö Fríkirk ju veg 11. hring. I dag mælir Dagfari _____________I dag mælir Dagfari____________j dag mælir Dagfari Af kvennafari knattspymumanna Sérkennileg uppákoma varö á DV í síðustu viku. Ritstjórl blaðsins skrif- aði heilan leiöara til að biðjast afsök- unar á íþróttafrétt af meintu kvenna- fari Liverpool liösins sem hér var í heimsókn. Það er ekki á hverjum degi sem ritstjórar sjá ástæðu til aö vísa kvennafarssögum knattspyrnu- manna á bug og það jafnvel þótt þær séu úr lausu lofti gripnar. Allar sög- ur af kvennafari fyrr og síðar eru gróflega ýktar, enda hefur þaö þótt merki sannrar karlmennsku að ljúga upp á sjálfan sig og aðra kvennafari og kvenhylli. Þær afrekasögur sem ganga mann fram af manni eins og rauður þráður í íslandssögunni um kvennadaður og kvensemi frægra Is- lendinga mundu fljótt missa Ijómann ef færa þyrfti sönnur á þær. Þaö þyk- ir þjóðlegur siður og fullgildur að grobba sig af kvennafarl og enginn minni maður fyrir. Það fer vel á því í nútímablaða- mennsku að greina frá kvennafari, iognu eða sönnu, á íþróttasíðum. Hvort tveggja er til líkamlegrar heilsuræktar þótt ekki séu þar skor- uð mörk eða skráð met. Væri það vel þegið að duglegir íþróttafréttaritarar tækju þaö upp í föstum dálkum á síðum sínum aö greina frá kvennafari íþróttamanna almennt, til að mynda eftir hverja heigi. Slík fréttaþjónusta verður ekki síður lesin en frásagnir af lyfjatök- um íþróttakappa, skeggrækt eða heilsufari almennt. Elnnig kæmi sér það vel fyrir stúlkurnar að fá upplýsingar um þá skemmtistaði þar sem hetjurnar halda sig svo að samskiptin gangi greiðar fyrir sig. Úr því að kvenna- far og mætingar á skemmtistöðum eru orðnar að fréttamat, af hverju þá ekki að gera þetta almennilega? íþróttafréttaritarar ættu eiginlega að fá að fylgjast með allt til enda og fram á morgun'. Ritstjórinn tók þann kostinn að bera kvennafarsfréttina af Liverpúl- urum til baka. Þar fór í verra. Ef það er rétt aö Liverpoolmannskapurinn komst ekki á kvennafar þá er þaö ekki honum að kenna. Og heldur ekki íslenska kvenfólkinu. íslenskar stúlkur hafa ávallt haft mikið dálæti á erlendum karlmönn- um. Ekki hefur maður mátt ganga inn á dansiball eða diskótek hér á landi og mæla á erlenda tungu ööru- visi en að honum hafi veriö tekið fagnandi af viðstöddum kvenpen- ingi. Erlendir gestir, sem hingað koma, hafa hvergi annars staðar upplifað slíkar móttökur, enda eru gerðar út sérstakar heigarferðir frá útlöndum til dvalar á reykvískum skemmtlstöðum til uppörvunar fyrir karlrembur sem hafa fyrir löngu týnt og tapað sjarma sínum í heima- landinu. Hér á ísaköldu landi verða allir sjóraftar að heimsins mestu Kasanóvum fyrir það eitt að tala út- lensku. Liverpool liðinu hefði ekki verið skotaskuld úr því að leggja kvenfólk- ið að velli. Sem þýðir auövitað líka að kvenfólkið hefði lagt Liverpoolliðið aö velli um lelð. Það hefði ekki verið amalegur sigur þegar svo víðfrægt kapplið á í hlut. Einhver kynni að segja að fót- boltaliðið hefði ekkl legið á liði sínu undlr þeim kringumstæðum, en það heföu ungfrúrnar gert og enginn sagt neitt við því. Eða hver færi að agnúast út í orðstír íslenska kven- fólksins fyrir að liggja á liði sinu þeg- ar kapparnir frá Liverpool eru í heimsókn. Nú hefur það því miður verið upp- lýst í leiðara DV að hvorki Liver- púlurum né ungfrúnum gafst kostur á að viðhalda þeim þjóðlega sið að bjóða útlendingum á kvennafar. Slikt má ekki henda aftur. Það gæti spillt áiiti okkar út á við. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.