Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 16
16 DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984. Spurningin Finnst þér að atvinnurekendur eigi að gefa starfsmönnum frí þegar veður er gott? Ingibjörg Faaberg kennari: Þaö finnst mér alveg sjálfsagt. Eg væri þá til í aö vinna fríiö af mér þegar veöriö væri slæmt. Elínborg Siguröardóttir kennari: Alveg hiklaust ef fólk á þess kost aö vinna þaö af sér. Halla Arnardóttir húsmóöir: Af hverju ekki? Svo vinnur fólk þaö af sér þegar rigningin kemur. Ágúst Bjarnason: Þaö væri gaman ef þaö væri hægt en það hentar því miöur ekkiöllum. Ingibjörg Sigurðardóttir afgreiðslu- stúlka: Mér finnst þaö sanngjarnt því það er svo sjaldan gott veður hérna. Maöur getur svo unnið þaö upp seinna. Eiður Marinósson sjómaður: Þaö er oft erfitt að gefa frí. En ef þaö er mögulegt þá finnst mér það alveg sjálfsagt. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur ffvar er frjálsa samkeppnin? Valur Heiðmarsson skrifar: Nú er ég oröinn steinhissa á allri þessari vitleysu í okkur Islending- um. Við erum búnir aö berjast viö veröbólgu í mörg ár meö misgóðum árangri en nú á aö slá öllu viö. Að vísu gerir hin háttvirta ríkis- stjórn allt sem hún getur til aö sporna viö henni. En hvaö gera hinir? Ekkert, alls ekkert. Maöur getur lengi taliö upp þá vitleysu en ég ætla aöeins aö ininnast á þaö sem ég var að heyra í sjónvarpinu. Nú er semsé allt að veröa vitlaust út af því aö verslun ein í okkar kæru borg vill selja okkur kæru neytend- um nýjar og góöar kartöflur, í staö- inn fyrir fúlu kartöflurnar sem viö fengum í vor frá Grænmetisverslun- inni, á lægra veröi en við neytendur getum skiliö. Ræður ekki kaupmaðurinn sjálfur hvort hann selur ódýra vöru eöa ekki? Þarf alltaf aö hafa veröiö eins hátt og hægt er hverju sinni? Ef kaupmaðurinn getur boöiö vöru á lægra veröi finnst mér hann mega þaö án afskipta. Mér finnst einnig aö hann megi semja eins og honum sjálfum sýnist. Miöaö viö þaö sem á undan er gengið, t.d. í sjávarútvegi, veröur hver og einn að reyna aö bjarga sínu skinni. Af hverju þarf allt aö vera miöað viö sama verð? Hverjir trúa því t.d. aö það kosti þaö sama aö flytja olíu frá Noregi til Islands og frá Saudi-Arabíu til Islands nema aö sjálfsögöu forstjórar olíufélaganna. Hvenær endar eiginlega þessi leiöin- legi sirkus á Islandi? Eg ætla að biöja háttvirta ráö- herra um aö fara nú aö nota topp- stykkin og hætta aö tefla í vinnutím- anum. Mér finnst ekki vanþörf á því. Svo að lokum, þá myndi ég losa okkur hið allra fyrsta viö þaö sem viö köllum bifreiöaeftirlit ef ég fengi aö ráöa. Þaö er kolruglað fyrirbrigði. HVER ER HINN RAUNVERU- LEGIVINNSLUKOSTNAÐUR? Ingvi Einarsson skipstjóri skrifar: I vetur var grein í DV, skrifuð af Ing- ólfi Stefánssyni, framkvæmdastjóra FFSI, en hann var þá fyrir hönd sjó- manna í samningum um verö á loönu. Hann greindi frá því aö ekki fengist vitneskja um, þegar lagður væri fram vinnslukostnaður á loðnu, frá hvaöa verksmiöju þær tölur kæmu. Og nú spyr ég eins og hann, hverju er verið aö leyna? Eru lagðir fram falspappír- ar eða er hér lagður fram vinnslu- kostnaður frá verst reknu verk- smiðjunum? Ekki öfunda ég þá menn sem standa í samningaviðræðum um verö, aö vera meö pappíra i höndunum og eiga að vinna eftir þeim. Pappíra sem ekki fást neinar sannanir fyrir að séu réttir og eru bara búnir til af einhverjum. Verksmiðjunum má skipta í þrjá flokka: Nr. 1. Verksmiðjur sem reknar eru af ríkinu. Nr. 2. Verksmiöjur sem reknar eru af blönduðum fyrirtækjum. Nr. 3. Verksmiðjur sem reknar eru ein- ar sér af fyrirtæki sem ekki hefur ann- an rekstur. Að mínu mati eru verksmiðjurnar í lið 3 einu verksmiðjurnar sem geta lagt fram sannanlegan vinnslukostn- að. Ríkisverksmiðjurnar eru reknar meö byggðasjónarmiö í huga. Mann- skap er hrúgaö í vinnu viö þær hvort sem þörf er fyrir hann eöa ekki. Allur rekstrarkostnaður er í hámarki, auk þess eru rangar fjárfestingar ekki til aö laga ástandið. Manni finnst einnig skjóta nokkuð skökku viö aö verksmiðjurnar í liö 2 skuli leggja sinn hagnaö til f járfesting- ar í veiðiskipum í staö þess aö endur- nýja verksmiöjurnar sjálfar sem eru meira og minna úreltar. „Hver gerir svona nokkuð?” Léttu bifhjóli stolii Lilja Magnúsdóttir hringdi: Þann 14. ágúst kom sonur minn, 15 ára, heim úr vinnu kl. 6. Hann var á létta bifhjólinu sínu, rauðri Hondu MT 50 — R-1253, og hann lagði því fyrir neðan eldhúsgluggann aö heimili okk- ar, Kleppsvegi 50, en viö búum á 1. hæö. Hann var inni í ca hálftíma og þeg- ar hann kom út var hjólið horfið. Mig langar aö spyrja: Hver gerir svona nokkuö? Ekki vitum viö mæðgin þaö en mig langar til aö koma þeim tilmælum á framfæri til foreldra og uppalenda aö þeir athugi hvað böm þeirra hafa í höndunum. Hvort þar sé nokkuð um iila fengna hluti aö ræða? Þeir sem veröa hjólsins varir eru vinsamlegast beönir aö hafa samband viö lögregluna eða hringja í heima- síma minn, 36850. Allar ábendingar eruvel þegnar. Bronsaðir barnaskór Freygerður Kristjánsdóttir hrindi: Mig vantar upplýsingar um einhvem aðila sem bronsar barnaskó. Eg hef verið aö reyna að spyrjast fyrir um þetta en þaö hefur lítiö gengið. Eg yrði því fegin ef einhver einstaklingur, sem er kunnugur þessu, léti mig vita. Sím- inn hjá mér er 36347. ,HESTURINN OKKAR’ Valdimar Kristinsson ritst jórnarfull- trúiskrifar: I lesendadálki DV, föstudaginn 17. ágúst sl., birtist bréf frá Andrési Guðnasyni sem inniheldur gagnrýni á tímaritið Hestinn okkar. Áöur en lengra er haldið vil ég lýsa undrun minni á því að Andrés skuli ekki hafa farið fram á birtingu þess í Hestinum okkar frekar en aö byrja hjá Eiöfaxa og síðan DV þar sem Eiöfaxi haföi ekki pláss eöa hugrekki til aö birta bréfið. En svo viö víkjum aö efni bréfsins þá byrjar Andrés á aö gagnrýna birtingu á leiðarlýsingu þeirra Ottars Kjartanssonar og Þorkels Jóhannessonar. Telur Andrés alltof mikið að eyða 15 síöum á lýsingar á hrauni og ófærð, eins og hann kallar þaö. Þótt hann hafi ekki áhuga á leiöarlýsingum má benda á aö tilgangur þeirra er m.a. aö foröa mönnum eins og Andrési frá aö klungrast í hrauni og ófærð þegar farið er í ferðalög á hestum. Ein ástæöan fyrir birtingu þessara leiðarlýsinga er ályktun ársþing LH um söfnun leiðarlýsinga og eru greinarnar viöleitni í aö framfylgja þessu stefnumáli LH. Má í þessu sambandi minna á aö Hesturinn okkar er málgagn LH. Síðan segir hann aö það sem skrifað sé í blaðiö komi fleirum viö en örfáum sér- vitringum og gefur hann í skyn aö 99% af lesendum blaðsins lesi ekki þessar leiðarlýsingar. Þetta eru stórar fullyrðingar, aö kalla allan þann fjölda sem stundar feröalög á hestum „örfáa sérvitringa” og hvaö 99 prósentunum viövíkur mætti halda aö Andrés hefði gert nákvæma könnum meðal lesenda blaðsins. Slíkur slagorða- og fullyrðinga- málflutningur er vísasta leiðin til að eyöileggja góöa og réttmæta gagn- rýni. Við á Hestinum okkar erum opnir fyrir allri gagnrýni sem er málefnalega fram sett og teljum við að senda beri slíka gagnrýni til blaðsins því aö óneitanlega er þaö vafasamt þegar gagnrýnandinn veigrar sér við aö snúa máli sínu beint til þess sem gagnrýnina á. Næst eru það ritnefndarmennirnir sem fá sinn skammt og er rétt aö leiðrétta misskilning, eöa réttara sagt vanþekkingu Andrésar. Þegar gefið er út blað þarf aö gera ýmislegt annaö en aö skrifa í þaö og má þar nefna prófarkalestur, snúninga út af prentun, ritnefndarfundi, fjármála- stjórn og ótal þætti sem tengjast út- gáfu. I ritnefnd sitja níu manns og er tilgangurinn með svo mörgum mönnum sá aö dreifa starfinu þannig aö þetta bitni ekki of mikið á fáum aðilum og hitt að hafa fulltrúa frá ýmsum landshlutum sem tengiliöi viö landsbyggöina. Nú og svo er ekkert sem segir að ritnefndarmenn einir eigi aö skrifa í blaöiö, allt utan- aökomandi efni er vel þegið þó að því tilskildu aö þaö sé vel fram sett og þaö sama má segja um góðar myndir. Færi sennilega best á því aö Andrés riöi á vaðið í þessum efnum og skrifaöi grein um efni sem honum er hugleikiö og sendi okkur á rit- stjórn og væri það þá forsmekkurinn aö því hvað sé gott og vandað efni aö mati Andrésar. Ef þörf er á ljós- myndun í tengslum viö greinina Svarvið gagnrýni f lesendabréfi getur hann haft samband við undir- ritaöan. Enn einu er ósvaraö. Andrés segir aö blaöiö eigi aö flytja efni sem hestamönnum kemur við, bæöi með lýsingum á starfsemi hestamanna- félaga og einstaklingum sem láta sig málefni hestamennskunnar eitthvað varða. Þetta efni er í Hestinum okkar og má benda á f jóröa tölublað hvers árs sem inniheldur annála frá öllum hestamannafélögum landsins og í flestum öörum blöðum eru viötöl viö hrossaræktendur og hestamenn. I stuttu máli sagt: „Það er skoðun Andrésar Guönasonar að Hesturinn okkar sé lélegt blaö og er honum velkomiö aö hafa þá skoðun, hins vegar er ekki hægt aö merkja það á viðbrögöum lesenda blaðsins aö' Andrés eigi sér marga skoöana- bræður.” En rétt er aö minna á í lokin á tækifæri Andrésar til aö bæta blaðið og ef skjótt verður brugðið viö gæti það komist í þriðja tölublaðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.