Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 29
DV. MÁNUDAGUR 27. AGUST1984.
33
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
• Friðfmnur Hermannsson — skoraði
glæsilegt mark fyrir KA.
|p mmm mm ■■ mmm mmm mam wmm h^|
i Erlingur j
i ekkimeira j
i meðKA J
I Sigur KA yfir Þrótti var dýr-
keyptur því . að miðvörðurinn |
■ sterki, Erlingur Kristjánsson, fékk .
I að sjá gula spjaldið í leiknum og á §
*hann yfir höfði sér tveggja leikja ■
|keppnisbann — var kominn með I
Ifjórtán refsistig fyrir leikinn. Er- I
lingur mun því ekki leika tvo síð- ■
Iustu leikina í 1. deild með KA — I
gegn Breiðablik í Kópavogi og J
iFram á Akureyri. Þetta er mikil |
■ blóðtaka fyrir KA, þar sem Erling- .
| ur er lykilmaðurinn í vörninni.
. Erlingur mun því ekki leika |
|meira með KA-liöinu í 1. deildar I
Ikeppninni í sumar.
-SOS 1
L —— — — — J
Argentína
tapaði
Argentínumenn, sem hafa orðið fyrir
mikilli blóðtöku í sambandi við knatt-
spymulandslið sitt, urðu að sætta sig
við tap 0—1 fyrir Colombíu í vin-
áttuleik í Bogota á laugardaginn. 35
þús. óhorfendur sáu leikinn. Það er
greinilegt að Argentína verður að gera
stórátak til að komast í HM í Mexíkó
1986. Argentínumenn leggja nú hart að
Diego Maradona að koma heim til að
leika leiki Argentínu í undankeppni
HM. -SOS
Strömberg
handleggs-
brotnaði
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni
fréttamanni DV í Svíþjóð: — Svíar
hafa orðið fyrir áfalli. Tveir af bestu
knattspymumönnum þeirra — þeir
Glen Strömberg, sem leikur með
ítalska félaginu Atlanta, og Dan
Corneliussou, sem leikur með Como á
ítalíu, eru meiddir og geta að öllum
líkindum ekki leikið með í HM-leik
Svía gegn Portúgal 12. september.
Strömberg handleggsbrotnaði í
sínum fyrsta leik — eftir að hafa
skorað fallegt mark. Comeliusson er
meiddur í hné. -GAJ/-SOS.
Kúla offan á kúlu
Það undarlega atvik átti sér stað á
NM í golfi í Grafarholti um helgina að
einn erlendu keppendanna fann kúlu
sina utan brautar ofan á annarri kúlu.
Mun sú kúla sem undlr var hafa verið
frá einhverjum kylfingi fyrir mótið.
Sá sem hér um ræðir sló kúlu sína,
tók síðan annan bolta á eftir og dæmt
var í málinu eftir keppnina. -SK.
(þróttir
„Þessi sigur var sætur
— sagði Baldvin Gústafsson, þjátfari KA, eftir að Akureyrarliðið hafði unnið Þrótt 3-2 á elleftu stundu
— Þessi sigur var sætur og hann
kom svo sannarlega á elleftu stundu.
Við vomm undir 0:2, en strákarair
gáfust ekki upp, náöu að jafna, og það
var ólýsanlega tilfinning að sjá Hafþór
Kolbeinsson skora sigurmark okkar
rétt fyrir leikslok. Heppnin var með
okkur í þessum leik, sagði Gústaf
Baldvinsson, þjálfari KA-Iiðsins frá
Akureyri, sem vann sætan sigur 3:2
yfir Þrótti á Valbjaraarvöllum á
laugardaginn.
— Það var sorglegt að missa
unninn leik niður og horfa á eftir
þremur dýrmætum stigum, sagði
Ásgeir Elíasson, þjálfari Þróttar.
Þróttarar fengu óskabyrjun þegar
Þorsteinn Sigurðsson skoraði 1:0 fyrir
þá eftir 6 mín. og síðan átti Páll Olafs-
son skalla í stöngina á marki KA.
Þorvaldi Jónssyni, markveröi KA,
urðu á mikil mistök í upphafi seinni
hálfleiksins þegar hann skoraði sjálfs-
mark eftir innkast frá Agnari Friðriks-
syni. Agnar kastaði knettinum að
marki KA og engin hætta virtist á ferð-
inni. Þorvaldur var vel staðsettur viö
nærstöngina og ætlaði að góma knött-
inn. Öllum til undrunar sló hann knött-
inn í eigið mark — inn í hliðametið.
Þrátt fyrir þetta mótlæti gáfust leik-
menn KA ekki upp og á 60. mín. náði
Birgir Steingrímsson að skora hjá
Þrótti eftir að Guðmundur Erlingsson,
markvörður Þróttar, hafði varið auka-
spyrnu frá Ásbirni Björnssyni. Guð-
mundur hélt ekki knettinum, sem
hrökk út í vítateig. Þar kom Birgir á
fullri ferð og skoraði örugglega.
KA-menn jöfnuðu síðan á 70. mín.,
þegar Friðfinnur Hermannsson skaut
föstu skoti, sem Guðmundur réði ekki
við, af 25 m færi — knötturinn fór út við
stöng.
Eftir þetta fengu Þróttarar tvö
dauöafæri, en þeim brást boga-
listin.Það var svo þegar 85 sek. voru til
leiksloka aö KA skoraði sigurmarkið.
Ársæll Kristjánsson geröi þá mikil
mistök í vörn Þróttar — missti knött-
inn til Hafþórs Kolbeinssonar, sem
komst á auðan sjó. Hafþór lék á
Guðmund, markvörð Þróttar, og hljóp
með knöttinn að marklínu, en þaöan
sendi hann knöttinn í netið — 3:2, við'-
geysilegan fögnuö KA-manna.
Maður leiksins: Friðfinnur Hermanns-
son.
-sos
EMM
HÆKKUM V©
IMniÁMSVEKTI
Vaxtabreytingar frá 27. ágúst:
SparireiKningar með 18 mán. uppsögn hækka í 25%, ársávöxtun 26,6%
Innlánsskírteini 6 mánaða_hækka í 24,5%, ársávöxtun 26%
Verðtryggðir sparireikn. 3ja mánaða binding hækka í 3%
V/erðtryggðir sparireikn. 6 mánaða binding hækka í 6,5%
Tékkareikningar__:______hækka í 10%
Aðrir veKtir eru óbreyttir frá 13. ágúst 5.1.
HÆ5TU
BAIÍKAVEXTIRMIR!
5parireikningar Búnaðarbankans með 18 mánaða uppsögn
bera 26,6% ávöxtun á ári.
Þetta eru hæstu bankavextir sem bjóðast.
Búnaðarbankinn mun ávallt leitast við að veita sparifjáreigendum
hæstu vexti 5em í boði eru hverju sinni.
fTBÍNAÐARBANKI
VQ/ ÍSLANDS