Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Page 26
26 DV. MÁNUDAGUR27. AGUST1984. íþróttir vorum heppnir” — sagði Bjami Sigurðsson, markvörður Skagamanna „Þetta var mikill baráttuleikur og í lokin var það reynslan sem sagði til sín og gerði út um leikinn. Vlð hættum ekki þrátt fyrir að við værum marki undir,” sagði Bjarni Sigurðsson, markvörður Skagamanna, eftir leikinn gegn Fram. „Mér fannst Fram-liðið brotna niö- ur eftir að það fékk markiö á sig, þaö er jöfnunarmarkið. Eftir það kom reynsla okkar vel í ljós. Mér fannst sig- urinn geta lent hvorum megin sem var. Það var spuming um heppni. Við vorum heppnir i dag,” sagði Bjami Sigurðsson. -SK. „Sanngjam sigur” — sagði Gunnar Sigurðsson „Þaö var það langbesta við þennan leik að við skyldum vinna. Nú höfum við brotið blað í sögu Akranes- liðsins. Eftir mörg töp í úrslitaleikjum hefur okkur tekist að sigra þrisvar sinnum í röö," sagði Gunnar Sigurðsson, stjórnarmaður hjá SKI og Skagamaöur, eftir leikinn. „Við spiluðum betur fyrstu tuttugu mínúturnar. Þá komu Framarar meira inn í leikinn. 1 síðari hálfleik var mikið jafnræði með liðunum. Þetta var sanngjarn sigur hjá mínum mönnum og eftir að staöan var oröin 1—1 var aldrei spuming hvorum megin sigur- inn myndi lenda,” sagði Gunnar. -SK. „Við vorum mikiu betri” — sagði Sigurður Jönsson „Þetta var i einu orði sagt stórkost- legt. Leikurinn sem slíkur var kannski ekki sá besti sem maður hefur séð en það var frábært að vinna. Það var aldrei vafi á því hvort liðið var betra,” sagði Sigurður Jónsson, leikmaður með ÍA, en hann hefur verið frá keppni um nokkuð langan tima vegna meiðsla sem kunnugt er. „Framliðið var hvorki betra né verra en ég bjóst viö í þessum leik. Það var mikil barátta um yfirráðin til að byrja með en síöan kom reynsla okkar manna vel í ljós og hún átti stærstan þátt í sigrinum aö minu mati,” sagði Sigurður Jónsson. -SK. íþróttir íþróttir íþróttir íþr „Heppinn hershöfðingi er góður hershöfðingi” ★ Skagamenntryggðusérbikarinn þriðja árið í röð á Laugardalsvellinum ★ Framarar voru aðeins 176 sekúndum frá bikarnum Skagamenn höfðu svo sannarlega heppnina með sér á Laugardalsvellinum í gær þar sem þeir tryggðu sér sigur í bikarkeppni KSÍ þriðja árið í röð — lögðu Framara að velli, 2—1, í framlengingu. Framarar voru aðeins 176 sek. frá bikarnum því að Skagamenn náðu að tryggja sér jafntefli, 1—1, á 87.04 mín. leiksins þannig að fram- lengingu þurfti. Það er svo sannarlega hægt að segja að Skagamenn hafi haft heppnina með sér því að Guðmundur Baldursson, markvörður Fram, missti hálan knöttinn frá sér. Guðbjörn Tryggvason náði að spyrna í knöttinn sem fór rétt inn fyrir marklínuna. Sigurmark Skagamanna kom síðan eftir aðeins 32 sek. af framlengingunni er Höröur Jóhannesson skallaði knöttinn að marki Fram. Sverrir Einarsson bjargaði á marklínu og þeg- ar hann var að mynda sig til að spyrna knettinum frá marki kom Árni Sveins- son á fullri ferð og þrumaði knettinum í netið. Þetta mark Árna tryggði Skagamönnum bikarinn — þeir gerðu út um leikinn á aðeins 208 sekúndna kafla og Framarar, sem höföu leikið betur en Skagamenn lengst af, sátu eftir með sárt ennið. „Heppinn hershöfðingi..." Þegar Skagamenn tóku við bikarnum fyrir framan hina 3.675 áhorfendur komu ummæli Napóleons, fyrrum Frakklandskeisara, upp í hug- ann: — „Heppinn hershöföingi er góöur hershöfðingi.” Skagamenn fögnuðu sigri en Fram- arar sátu eftir með sárt ennið. Þeir höfðu leikið vel og eftir að Guömundur Steinsson skoraði gullfallegt mark fyrir þá var eins og Skagamenn væru búnir — náöu aldrei aö skapa sér hættuleg tækifæri. Jöfnunarmark þeirra kom eins og þruma úr heiðskíru lofti — engin hætta virtist á feröinni þegar Skagamenn skoruöu jöfnunar- markiö. Sigþór Ómarsson átti háa sendingu fyrir mark Fram — knötturinn barst til Harðar Jóhannes- sonar sem var staddur við mark- teiginn fjær. Hann skallaði knöttinn fyrir mark Framara og Guðmundur Baldursson, markvörður Fram, kastaöi sér niöur til að handsama knöttinn. Um leið kom Guðbjörn Tryggvason aðvífandi. Augnabliki síðar skaust knötturinn aö marki Fram og rétt inn fyrir marklínu án þess aö Sverrir Einarsson, fyrirliöi Fram, kæmi vörnum viö — hann stóö inni í markinu en gat ekki komið í veg fyrir að knötturinn færi inn fyrir mark- línuna. Barátta um miðjuna Þaö var greinilegt þegar leikurinn hófst aö leikmenn liöanna ætluðu sér aö ná yfirhöndinni á miöjunni. Það var hart barist en Skagamenn voru mun á- kveðnari. Sóknarleikmenn þeirra fengu lítil tækifæri þar sem þeir Þor- steinn Þorsteinsson og Þorsteinn Vil- hjálmsson höfðu góöar gætur á Sigþóri Omarssyni og Heröi Jóhannessyni. Besta tækifæri Skagamanna kom á 30. mín. þegar Siguröur Halldórsson átti skalla rétt yfir mark Fram, eftir hornspyrnu. Framarar fengu gullið tækifæri á 43. mín. þegar Guömundur Torfason komst á auöan sjó — brunaði aö marki Skagamanna. I staðinn fyrir aö klára dæmið sjálfur átti hann mis- lukkaða sendingu til Guðmundar Steinssonar og sóknin rann út í sand- inn. Glæsimark Guðmundar Þegar 7,49 mín. voru liönar af seinni hálfleik skoraði Guömundur Steinsson eitt glæsilegasta mark sem sést hefur í bikarúrslitaleik á Islandi. Guömundur fékk knöttinn á miðjum valiarhelmingi Skagamanna og brunaði fram með hann — lék fyrst á Sigurð Halldórsson og skaust síöan inn í vítateig Skaga- manna og lét skotið ríöa af. Og þvílíkt þrumuskot — knötturinn þandi út þak- netiö á marki Skagamanna. Bjarni Sigurðsson, hinn snjalli markvörður Skagamanna, átti ekki möguleika á að verja fast skot Guðmundar. Framarar sækja stíft Þaö var eins og þetta mark væri rothögg á hina leikreyndu leikmenn Skagamanna því aö Framarar sóttu án afláts og meö smáheppni gátu þeir bætt mörkum við. • Ömar Jóhannsson á skot rétt fram hjá marki Skagamanna á 56. min. • Guðmundur Steinsson á þrumu- skot í hliöarnet Skagamanna á 60. mín. • Guðmundur Torfason á skalla rétt yfir mark Skagamanna á 62. mín., eftir hornspyrnu Omars Jóhanns- sonar. Þaö var ekki fyrr en á 75. mín. aö lífsmark kom í Skagamenn. Sigurður Lárusson komst í gott færi — en bjarg- aö í horn. Rétt á eftir átti Júlíus Ingólfsson, sem kom inn á sem vara- maður, þrumuskot, sem Guömundur Baldursson varöi meistaralega í horn. Það virtist ekki ætla að bíta á leik- menn Fram sem léku yfirvegaö og á stundum eins og þeir væru bikarmeist- ararnir — biöu aðeins eftir flautu dómarans aö leik væri lokiö. Skagamenn geröu örvæntingarfulla tilraun til að jafna. Á 82. mín. hitti Hörður Jóhannsson ekki knöttinn í fullnu færi. Framarar brunuðu upp og Guðmundur Steinsson sendi knöttinn fyrir mark Skagamanna. Guðmundur Torfason var þar fyrir opnu marki en áöur en hann náöi að skjóta var Skaga- maður kominn á bak hans og skot Guömundar geigaði — fór rétt framhjá stöng. Aðeins fjórum mín. seinna var Guðmundur aftur á ferðinni, en á nýjan leik rataöi knötturinn ekki rétta leið. Eins og fyrr þá jöfnuöu Skagamenn á 87.04 mín. Framarar gerðu eftir þaö örvæntingarfulla tilraun til aö skora sigurmarkið og þegar aöeins 30 sek. voru til leiksloka náöi Bjarni Sigurösson aö verja skot frá Guömundi Steinssyni. Skagamenn náðu sér aldrei á strik í leiknum — fengu ekki tækifæri til þess. Besti leikmaður þeirra var Sveinbjörn Hákonarsson en hann varð að yfirgefa völlinn í seinni hálfleik vegna meiðsla á fæti. Framarar léku vel í leiknum — áttu einn sinn besta leik í sumar. Vörn þeirra var sterk þar sem Þorsteinn Þor- steinsson, sem er orðinn einn besti varnarleikmaöur Islands, leikur stórt hlutverk og þá var Sverrir Einarsson góöur. Omar Jóhannsson baröist vel á miðjunni og svo Trausti Haraldsson. Guömundur Steinsson var hættulegur í sókninni ásamt Guðmundi Torfasyni. Liösheild Fram var góö en þaö dugöi ekki. Liöin sem léku voru þannig skipuð: Akranes: Bjami, Guðjón, Jón Ás., Sigurður L., Sigurður H., Ámi, Guðbjöm, Sveinbjöm (Júlíus), Hörður, (Olafur Þ.), Karl og Sigþór. Fram: Guðmundur B., Hafþór (Gísli H.), Þorsteinn V., Sverrir, Þorsteinn Þ., Trausti, Viðar (Bragi), Kristinn J., Omar, Guðmundur S. og Guðmundur T. -SOS. • Bikarmeistarar Akraness 1984. „Grátleg mistök hjá Eysteini” — sagði Sverrir Einarsson, fyriríiði Fram „Eg var svo viss um aö dómarinn heföi dæmt aukaspyrnu að ég var farinn að undirbúa mig undir aö taka hana þegar ég gerði mér ljóst að Eysteinn hefði dæmt þetta ólöglega mark gilt,” sagði Sverrir Einarsson, fyrirliði Fram, eftir leikinn í gær. „Það er grátlegt að tapa úrslita- leik á svona mistökum hjá dómara. Við vorum mun betri aðilinn í leikn- um og áttum svo sannarlega skilið aö sleppa viö svona dómaraskand- al sem kostaði okkur sigurinn. Þaö eru ólýsanleg vonbrigði aö tapa úr- slitaleik á svona vitleysu eftir allt þaö sem við erum búnir að leggja á okkur. Við vorum og erum miklu betri en Skagamenn en heppnin sem eltir Uðið og hefur elt það í sumar gerir það að verkum aö nær ómögulegt er að sigra þá,” sagði Sverrir Einarsson. -SK. • Sigurður Lárusson, fyrirliði Skagamanna, sést hér hampa bik- arnum að leik loknum. DV-mynd: Brynjar Gauti. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.