Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 7
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984. 7 Pað verða margir hissa, þegar þeir sjá hvað er innifalið í einni ljósmyndatöku hjá okkur. 12-15 prufur 9x12 cm 2 prufur 18 x 24 cm, önnur þeirra í gjafamöppu,hin í veglegum gylltum ramma. Petta góða tilboð stendur til 10. september. Pantaður myndatöku núna, það borgar sig. LJÓSMYNDASTOFA KÓPAVOGS SÍMI 43020 LJÓSMYNDASTOFAN MYND SÍMI 54207 Neytendasamtökin leggjast gegn áformum bænda um stjórn Grænmetisverslunarinnar Grænmetisversl- unin þarf samt aö gjörbreyta hlutverki sínu „Við höfum ekki tekið afstööu til þessa einstaka máls. En skoðun okkar liggur ljós fyrir og hún er sú að neyt- endur eigi að geta keypt þær vörur sem þeir óska sjálfir að kaupa,” sagði Sigurður Sigurðarson, formaður Neyt- endafélags Reykjavíkur og og ná- grennis, er hann var spurður um hver afstaða þeirra væri til þess framtaks verslunarinnar Hagkaups að brjóta ísinn og hefja innkaup á kartöflum án milligöngu Grænmetisverslunar land- búnaðarins. „Við teljum aö Grænmetisverslunin sé tímaskekkja og það er einnig skoðun okkar að Framleiðsluráð og Grænmetisverslunin séu ekki í takt við það sem er aö gerast nú á tuttugustu öldinni. Við erum á móti öllum höftum og bönnum í sölumálum grænmetis og kartaflna. Það er hagur neytenda að fá að kaupa vöru sem þeir geta sjálfir valið og geta einnig valið frá hverjum framleiöenda þeir kaupa,” sagði Sigurður. Hann sagði það vera skoöun forráðamanna Neytendasamtakanna og Neytendafélaga að það ætti ekki að gefa eftir í þessum málum. „Við töldum aö undirskrifta- söfnunin, sem fram fór í vor, heföi sýnt stjórnvöldum fram á hver hugur neyt- enda væri í þessum málum. En þá skrifuðu um 20 þúsund neytendur undir það að meira frjálsræði ætti að ríkja í sölumálum grænmetis og garð- ávaxta. Þrátt fyrir þessi mótmæli neytenda hyggjast landbúnaöarráöu- neytið og Framleiösluráð hundsa hug neytenda og reyna að halda í þetta einokunarfyrirkomulag sem má með sanni kalla „hörmangarastig”, sagði Siguröur. En stjórn Neytendafélagsins hefur ekki komiö saman til að ræöa seinustu atburði í „kartöflustríðinu”, en fundur verður haldinn í september og munu þessi mál væntalega bera á góma þar. „Það er mín persónulega skoöun að neytendur ættu að sýna hug sinn með því að versla einungis þar sem boðið er upp á kartöflur sem ekki hlíta lög- málum einokunarinnar,” sagði Sigurður Sigurðarson, formaður Neyt- endafélags Reykjavíkur og nágrennis. APH Styrínn stendur um þessijarðepli sem ekki verður hjá komist að nefna þrætuepli inánustu framtið. Eðvald B. Malmquist, yfirmatsmaður garðávaxta: „Fleirí aðilar ættu að dreifa kartöflum” „Eg tel aö það vanti sveigjanleika í kerfið. Hann hefur vantað og er m.a. orsökin fyrir því að neytendur og fram- leiðendur eru óánægðir,” segir Eövald B. Malmquist, yfirmatsmaöur garð- ávaxta, í viðtali viö DV. Það hefur komið fram hjá kartöflu- bændum að þeir eru óánægðir með það aö ekki hefur verið hægt að selja smáar nýjar kartöflur í gegnum Græn- metið. Þetta hefur leitt til þess aö oft hefur þurft aö henda þessum kart- öflum sem þó eru hreinasta sælgæti. Hagkaup seldi smælki nýlega á niöur- settu verði og rauk það út. Eðvald segir að þaö sé einmitt þennan sveigjanleika sem vanti. Sam- kvæmt matsreglum og verðlags- ákvæðum eru aðeins tveir verðflokkar á kartöflum. „Grænmetisverslunin hefur leitast viö að finna markað fyrir þessar smáu kartöflur en það hefur ekki tekist.” En hvernig fer matið fram þegar ljóst er að sala á kartöflum er í þann mund aö gjörbreytast? Fram aö þessu hefur matið á kartöflum fariö fram í húsi Grænmetisverslunarinnar og einnig á einstökum stöðum úti á landi þar sem umboðssala kartafbia fer fram? „Eg mun leitast viö aö fara á þessa staði og líta á kartöflurnar. Eg vonast til þess að þaö verði gott samstarf við kaupmenn. Eg er búinn að fara í Hag- kaup og var vel tekiö þar. Einnig verður að fjölga matsmönnum.” En hvað finnst yfirmatsmanni um það að fleiri aðilar annist dreifingu á kart- öflum? „Eg hef lengi verið fylgjandi því að fleiri aðilar sæju um dreifinguna og hef talið að Sölufélag garðyrkjumanna gæti einnig annast dreifinguna eins og það gerir á grænmeti. En ég held að kerfið yrði þungt í vöfum ef mjög Raddir neytenda: Niðursoðið blómkál Emelia Baldursdóttlr hringdi: Hún var nýbúin að sjóða niður blómkál. Hún keypti fimm kíló af blómkáli og fékk út úr því fjögur kíló eftir að hafa soöiö þaö. Kíló- verðið þegar hún keypti sitt blóm- kál var 35 krónur. Hún vill koma því á framfæri að það sé mjög gott að frysta blóm- kálið í soðinu. Það fer vel á að setja um 300 g í hvern poka. Seinna í vetur er síðan hægt að nota blómkálið í súpur eða með ýmsum kjötréttum. margir aðilar hefðu þessa dreifingu með höndum. Þaö verður að vera sam- keppni í dreifingunni. Eg gæti ímyndað mér að heppilegt væri að 3-5 aðilar hefðu með þessa dreifingu að gera og fengju til þess leyfi hjá landbúnaðar- ráðuneytinu. En númer eitt, að minu mati, er aö kartöflumar komist ferskar og góðar á markaðinn og verði fyrir sem minnstu hnjaski,” segir Eðvald. Hann telur einnig að tilkoma pökkunarstöðvar í Þykkvabæ geti bætt ástandið mikið. Kartöflurnar kæmust með því móti mun hraðar til neytenda. APH OMRON OMRON búöarkassar fyrir minni og stærri fyrirtæki fyrirliggjandi. % SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33 Simi 20560 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.