Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 33
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984. 37 Aöstandendur útgáfu bókarinnar: Atli Magnússon, sem aflaöi efnis, Eiríkur Rós- berg, formaður Sambands íslenskra lúðrasveita, og Leó Löve, forstjóri tsafoldar. SAGA ÍSLENSKRA UÍÐRASVEITA Bókin „Skært lúðrar hljóma”, saga íslenskra lúörasveita, er komin út og eru útgefendur Samband íslenskra lúðrasveita og Isafoldarprentsmiðja tekist að afla nafna á nærri öllum þeim mönnum sem á myndunum eru. Mátti oft ekki tæpara standa aö næðist til manna sem kunnu skil á elstu myndun- hf. I bókinni er sögð saga íslenskra lúðrasveita frá því er Helgi Helgason tónskáld setti lúðraflokk sinn á stofn áriö 1876 til okkar daga. Fyrstu lúöra- sveitirnar voru jafnframt fyrstu hljómsveitir hér á landi. Myndefni í bókinni er mjög ríkulegt en í henni eru um 180 myndir og hefur um. I bókinni eru einnig æviágrip fjög- urra eldri brautryðjenda lúðrasveitar- starfs á Islandi, þeirra Helga Helga- sonar, Magnúsar Einarssonar, Hall- gríms Þorsteinssonar og Karls O. Runólfssonar. Um efnisöflun hefur séð Atli Magnússon, en alls leggja um tuttugu manns efni til bókarinnar. EINVÍGIÐ HEFST10. SEPT. Einvígið um heimsmeistaratitilinn í skákmennimir frí. skák, milli Karpovs heimsmeistara og Einvígið verður haldið í húsi sovéska Kasparovs, hefst 10. september og alþýðusambandsins. Salurinn þar tek- verður teflt á mánudögum, miðviku- ur 1600 áhorfendur en búist er við að dögum og föstudögum, en biðskákir hiö minnsta 300 blaðamenn fylgist með aðra daga nema sunnudaga — þá fá einvíginu. Tillögur um fækkun banka —meðal verkef na nýrrar nefndar undir forystu Gy Ifa Þ. Viðskiptaráöherra fól í gær þrem- ur mönnum að gera tillögur um bætt skipulag viðskiptabanka. Eru það dr. Gylfi Þ. Gíslason, fyrrum við- skiptaráðherra, sem jafnframt hefur verið falin forysta fyrir verkinu, Sig- urgeir Jónsson, aðstoðarbankastjóri í Seðlabankanum, og Bjöm Líndal, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu. I frétt frá viöskiptaráðuneytinu segir að hlutverk þeirra sé nánar til- tekið að gera tillögur um fækkun og sameiningu viðskiptabanka sam- hliða færslu viðskipta og útibúa milli banka. Tillögumar eiga að fela í sér drög að skipulagsbreytingum sem leiða til eðlilegs hlutfalls milli skuld- bindinga og ráöstöfunarfjár banka, góðs jafnvægis í útlánum banka til einstakra atvinnugreina, bættrar þjónustu banka við atvinnulífið og lægri kostnaðar við bankarekstur. Ákvörðun um að ráðast í þetta verkefni er í samræmi við bókun bankamálanefndar um sameiningu og fækkun viðskiptabanka frá 21. mars í vor, segir í frétt ráðuneytis- ins. EA mUCAR UNION CARBIDE Málm- iðnaðarmenn Kynning á rafsuðuvélum og tækjum frá Union Carbide 28.-29. ágúst. Sindra-Stál hf. hefur gerst umboðsaðili á íslandi fyrir Union Carbide. Fulltrúi þeirra, H. Koettingskemur og kynnirframleiðslufyrirtækisins, m.a. Mig/Mag- vélar, plasmaskurðarvélar, sjálfvirkar borðskurðar- vélaro.fl. Sýningin verður að Borgartúni 31, þriðju- daginn 28. ágúst og miðvikudaginn 29. ágúst kl. 10 - 12 og 14 -17, báða dagana. Vandadar vélar á hagstæðu verði. SINDRA STALHF Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, sími: 27222. KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA RAFMAGNSREIKNINGA? OSRAM Ijós og lampar eyða broti af því rafmagni sem venjuleg Ijós eyða og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent Ijós eyða 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo endast þau miklu lengur. OSRAM CIRCOLUX ““ stílhreint, fallegt Ijós sem fæst í ýmsumútfærslum.hentar stundum í eldhús, stundum í stofu eða hvar annars staðar sem er- allt eftir þínum smekk. OSRAM DULUX ““ handhægt Ijós þar sem mikillar lýsingar er óskað. Mikið Ijósmagn, einfalt í uppsetningu og endist framar björtustu vonum. OSRAM COMPACTA - ,yrs« og fremst nytsamt Ijós sem varpar Ijósgeislunum langt og víða jafnt innanhúss sem utan. OCTAV010.15 Rafbúð Domus Medica, Egilsgötu 3 Sími 18022. OSRAM LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.