Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 5
DV. MÁNUDAGUR 27. AGUST1984.
5
ísafjörður:
Ekiö á Ijósastaur
Aöfaranótt laugardags var ekið
á ljósastaur í Hafnarstræti á Isa-
firöi með þeim afleiðingum að bill-
inn gjöreyðiiagðist og fjórir af
fimm farþegum voru fluttir á
sjúkrahús. Sá fimmti, sem var
karlmaöur, gat gengið frá slysstað.
Þeir sem slösuöust voru þrír
piltar og ein stúlka. Þau meiddust
talsvert en þó var haldiö i gær að
betur hefði farið en taliö var í
fyrstu.
Grunur leikur á að Bakkus kon-
ungur hafi ráðið ríkjum í þessari
ökuferð.
SGV
Grafavaltaf
vörubílspalli
Grafa valt ofan af vörubílspalli
upp úr hádegi á sunnudag skammt
frá bænum Laufási í Hjaltastaða-
þinghá.
Grafan var á palli tengivagns
sem vörubillinn hafði í togi. Bíllinn
hafði nýlega ekið yfir hrygg á veg-
inum og getur verið að hann hafi
komið gröfunni af staö að sögn lög-
reglunnar á Egilsstöðum.
Síðdegis í gær var unnið að því
að koma hinni 16 til 18 tonna gröf u á
réttan kjöl.
SGV
Sprakkað
framanogvalt
Bíll valt um klukkan hálfsex á
sunnudagsmorgun við Reykjahól í
Sléttuhlíð i Skagafjarðarsýslu.
Fernt var í bilnum og voru tveir
fluttir á sjúkrahús í Siglufirði. Báð-
ir þeir sem slösuðust voru aftursæt-
isfarþegar og munu mein þeirra
ekki hafa verið alvarleg. Annar
kvartaöi um eymsli í baki, hinn var
skorinn á hendi.
Ástæöa veltunnar mun hafa ver-
ið sú að það sprakk á vinstra fram-
hjóli og ökumanni tókst ekki að
hemja bílinn á veginum.
SGV
Áreksturí
Noröurárdal
Jeppi og fólksbíll skullu saman í
árekstri í Noröurárdal á laugar-
dagskvöld. Áreksturinn varð þar
sem ræsi er í veginum og hann þvi
sérlegamjór.
Skemmdir á bílunum voru tals-
verðar en engin slys á fólki.
SGV
Áreksturí
Hvalfirói
Arekstur varð rétt upp úr hádegi
á laugardag rétt.við olíustöðina í
Hvalfirði, Ferstiklumegin. BUarnir
mættust á veginum og skullu sam-
an. Kona og unglingspiltur, sem
voru í öðrum bílnum, voru flutt á
sjúkrahús en meiðsli þeirra voru
ekki talin alvarleg. Áreksturinn
var á ræsi þar sem vegurinn er sér-
lega mjór. SGV
KRAFTBLAKKIR
ÚTGERÐARMENN
Höfum & lager 400 kg kraftblakkir meö eine eöa
tveggja spora hjóli. Gott verð og góðir greiösluskil-
málar.
Atlashf
ARMULA 7 - SIMI 26755
Basil II ísjávarháska með 5 manns innanborðs:
Þaö ernú eða aldrei
— sagði Danskurinn og dró Frakkana upp í þyrlu
Síödegis sl. föstudag sendi franska
seglskútan Basil n út neyðarkall þar
sem hún var stödd með 5 manna áhöfn
í um 200 sjómílna fjarlægð frá Hvarfi á
Grænlandi. Skútan var ekki í mikilli
hættú þar sem sjógangur var litill en
nóttina áður hafði aftur á móti verið af-
takaveöur og skútunni hvolft minnst
einu sinni.
Vöruflutningaskipið Akranes var
næst skipa og tók það þegar stefnuna á
Basil H og var komið á staðinn um kl.
21. Voru Frakkarnir þá hinir rólegustu
viö lagfæringar á skútu sinni og sýndu
því lítinn áhuga að fara um borð til Is-
lendinganna. Varð ms. Akranes því að
dóla við hlið skútunnar þar til þy rla frá
danska strandgæsluskipinu Hvide-
björnen birtist þar yfir og gerði Frökk-
unum ljóst aö þeir yrðu að koma um
borð nú eða aldrei. Eldsneyti væri af
skomum skammti og myndi ekki end-
ast ef Frakkamir ætluöu aö halda
áfram lagfæringum sínum um borð.
Lét áhöfnin þá segjast og var hífð upp í
dönsku þyrluna. Skútan varð eftir á
sjónum og ms. Akranes hélt áfram
ferö sinni vestur um haf með farm frá
Grundartanga.
Ekki er vitaö hvert erindi Frakk-
anna var en líklegast er talið að hér
hafi sportmenn verið á ferð. -EIR.
r Freestyledans-keppmn:
Urslitin 9. september
Á laugardagskvöldiö fór fram
spennandi keppni milli þátttakenda í
„freestyle” danskeppninni sem fer
fram um þessar mundir. Keppnin var í
unglingastaönum Traffic en einnig var
keppt á föstudaginn á Akureyri og í
gær á Sauðárkróki.
Fimm þátttakendur voru í keppn-
inni í Traffic og voru þeir allir mjög
fótfimir og sýndu mikil tilþrif á
gólfinu.
Niöurstaða dómnefndar var sú að
tveir keppendur skyldu að þessu sinni
verða sigurvegarar og fara þeir því
báðir í hina endanlegu úrslitakeppni.
Þau sem báru sigur úr býtum voru
Agústa Bjömsdóttir og Rúrik Vignir
Vatnarsson. Ágústaer 16áraog er
úr Mosfellssveit. Hún hefur sýnt góöan
árangur í dansi. Hún var m.a. með í
danshópi sem hafnaði í öðru sæti í
danskeppni sem haldin var sl. vetur í
Tónabæ. Rúrik er 18 ára og hefur num-
ið dans meira og minna síðan hann fór
að stíga í lappimar og þá undir leið-
Rúrik Vignir Vatnarsson einbeitir sér við dansinn. DV-myndlr: Kristján Ari.
sögn Kolbrúnar Einarsdóttur dans-
kennara.
Um næstu helgi verður enn einu
sinni keppt í undanúrslitum í Traffic.
Þá verður keppt á Akureyri og þeir
fimm í þeirri keppni sem þykja bestir
fara í úrslitakeppnina sem fram fer í
Reykjavík 9. september. Hún verður
haldin í Broadway og verður mikið um
að vera þar, ferðakynning, tískusýning
og margt fleira.
APH
UWE SÓLARÍUM-
BEKKIR
PROFESSIONAL
Eigum til á iager, til afgreiðslu strax, nokkrar gerðir hinna frábæru v-þýsku
sólaríumbekkja frá UWE fyrir sólbaðstofur og heimili.
Fáanlegir með og án andlitslampa. Allir bekkir
með Bellarium super perum. Seljum einnig
beint af lager Bellarium S perur. Leitið upp-
lýsinga um verð og okkar hagstæðu greiðslu-
skilmála.
Á. ÓSKARSSON H/F
Þverholti Mosfellssveit
sími 666600