Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 47
DV. MANUDAGUR 27. ÁGUST1984.
51
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Möl á malbik
vegna Hvítra
máva
Á ýmsu gengur á Seyðó
vegna nýju Stuömannamynd-
arinnar Hvítir mávar sem
þar á að taka að hluta upp á
næstunni.
Myndin á að gerast á árun-
um í kringum 1960. Nokkur
atriði verða tekin upp við
kirkjuna á Seyðó. Áður en af
þeim tökum verður þarf hins
vegar að bera möl á göturnar
í kringum kirkjuna. Þ«r voru
nefnilega malbikaðar í sum-
ar.
Ball hjá Snerti
Nafn ungmeunafélagsins á
Kópaskeri ber ekki oft ó
góma í daglegum fréttum.
Nafnið er þó þess virði að
greina aiþjóð frá því. Það
heitir hvorki meira né minna
cn Snörtur. Já, Snörtur.
Kunnugir norðaustanmenn
segja að nafnið sé tilkomið
vegna fjalls i grennd Kópa-
skers, en það mun heita þessu
sjaldgæfa nafni.
Þeir í Snerti eru sagðir
snarir í snúningum og ku
snerta marksnúrur í hlaup-
um ávallt fyrstir. Þeir segja
að er.gir aðrir megi koma ná-
lægt snúrunum.
Hvernig orðið snörtur beyg-
ist er ckki gott að segja.
Sandkom telur þó að það sé
snörtur um snört frá snerti til
snartar. Sumir vilja hafa
þágufallið snyrti (með ypsi-
loni).
Er það drcgið af snyrti-
námskeiðum sem eru haldin
i ungmennaféiaginu og hafa
fengið góða aðsókn. Snörtur,
nema hvað.
Kópaber Town
Taiandi um Kópasker má
geta þess að staðurinn er
kominn á bekk með Kaup-
mannahöfn og London. Búið
er að prenta póstkort með
faUegri mynd af bænum.
Heyrst hefur að íbúar
Kópaskers vUji frekar fá
þorpiö á frimerki. Þannig
geti fleiri séð mynd af þvi og
það fari víðar. Ágætis hug-
mynd.
Því má bæta viö að allt er
nú svart á Kópaskeri, muna
menn þar ekkl aðra eins
berjasprettu. Má sjá hlussu
blóber innan um risavaxin
krækiber.
Hafa komið upp hugmyndir
hjá tínslumönnum að breyta
um nafn á þorpinu. Héöan í
frá verði það kaUað Kópaber.
Kannski öUu heldur Kópaber
Town. „Walk in town.” Gang-
iðíbæinn, félagar.
Siggi 7 ára
Hjónakornin PáU og Jóna
voru vakin upp á tiu ára brúð-
kaupsdegi þeirra. Það voru
krakkarnir, Nina, 9 ára, og
Siggi, 7 ára, sem þar voru að
verki.
Foreldrunum tU ánægju af-
henti Nína þeim heljarinnar
blómvönd.
Og örlítið stríðin: „Ég ætl-
aði bara að segja ykkur frá
því að þessi vöndur er aðeins
frá mér.”
„Já, enda er þetta ekki
mikJl gjöf,” sagði þá Siggi
strax. „Það var nú cinu sinni
þér að kenna að þau giftust.”
Arnarfell verður
Dúfnafell
Skipverjar á flutningaskip-
inu ArnarfeUi hafa verið með
laumufarþega um borð hjá
sér í allt sumar. Farþeginn er
forkunnarfögur dúfa.
Hún kom um borð einhvers
staðar úti í hinum stóra
heimi. Síðan hefur hún gert
sig heimakomna. Sagt er að
Arnarfellsmenn kunni vel að
meta þennan lymskulega far-
þega og hafi gefið honum að
eta um leið og þeir fá sér
snæöing.
islenskir toUverðir munu
hafa litið dúfuna óhýru auga
er skipið hefur komið tU
landsins. Þeir eru sagðir hafa
spurst nokkuð fyrir um þenn-
an gest og hvort hann bafi
viðeigandi skUríki.
Hefur verið fátt um svör en
einhver mun þó hafa sagt
toUurunum að svo væri ekki
enda vœri ekki um neina bréf-
dúfu að ræða. Segir sagan að
svo vinsæl sé dúfan að skipið
verði skírt DúfnafeU innan
tíðar.
Umsjón:
Jón G. Hauksson
IFORMICA
BRAfSID
^ÁRVÍK3^
^ Ármúla 1, sími 687222.
MIKIL VERÐLÆKKUN
Á DEMPURUM!!!
[hIHEKLAHF
J Laugavegi 170 -172 Sími 212 40