Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 13
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984. 13 Athugasemd við forystugrein Jónas Kristjánsson ritstjóri lætur gamminn geisa í leiðara DV þ. 22.8. og gerir þar að umtalsefni fréttaviðtal sem einhver fréttamaður hefir við Gunnar Jóhannsson þann 11. ágúst sl. Mér var bent á þessa frétt seinna enda fór hún fram hjá mér eins og svo margt í DV. Að athuguöu máli þótti ekki rétt að gera veður út af þessu þar sem heimildarmaður var áðumefndur Gunnar, en hann er alþekktur fyrir að vera sí og æ í fjölmiðlum með kvartanir um aö hann njóti ekki sömu fyrirgreiðslu og aðrir hjá opinberum sjóðum. stofnun fuglasláturhúss meö opinni al- mennri þátttöku. Þetta var gert til þess að leysa af hólmi það ástand sem áður ríkti, að hver framleiðandi slátraði heima á búi sínu við mjög svo hæpnar heilbrigðislegar aöstæöur. Heilbrigðisyfirvöld vildu loka þessum stöðum en viðbrögð viö því voru ekki önnur en aö sameinast um nýtt hús eða leggja upp laupana aö öðrum kosti. Félagsmenn voru um 20 og lögðu þeir ótrauöir í þetta stórvirki og framkvæmdir stóðu yfir í tvö ár svo að rekstur sláturhússins hófst í byrjun ágúst 1979. Á framkvæmdatímanum „Það er upphafið að Félag kjúklingabænda, sem hefur starfað reglu- lega frá árinu 1968, ákvað að beita sér fyrir stofnun fuglasláturhúss með opinni almennri þá tttöku. Þar sem ritstjóri DV hefir tekið efni þessa fréttaviðtals upp í leiðara verður ekki hjá því komist að koma á fram- færi leiöréttingum um það er varöar upphaf og stofnun fuglasláturhússins „Isfugls” sem Hreiöur h/f rekur. Undirritaöur hefir átt sæti í fram- kvæmdanefnd þessa fyrirtækis og síðar í stjórn þess frá upphafi, en mjög er málum blandað og beinlínis rang- lega farið með staðreyndir í greininni svo ekki veröur viö unað. Það er upphafið að Félag kjúklinga- bænda sem hefir starfað reglulega frá árinu 1968 ákvað að beita sér fyrir kom í ljós áhugi eggjaframleiðenda til þess aö taka þátt í þessu, svo að úr þessu varð einskonar almennings- hlutafélag, og nú eru hluthafar 69 aö tölu og flestir meö fremur lítinn hluta hver. Hluthafar eru fyrst og fremst fuglabændur og fuglabú en einnig nokkrir áhugamenn úr hópi neytenda. Geta má þess að auðvitað var Gunnari Jóhannssyni boðin þátttaka en krafa hans og lögfræðinga hans var að þeir fengju 51% hlutafjár en því var auðvitaö hafnaö, enda nutu þessir menn ekki trausts í röðum fugla- bænda. Þáttur Sláturfélags Suðurlands er annars eðlis og byggist m.a. á því aö flestir hluthafar Hreiöurs h/f í bændastétt eru félagsmenn þar og því næsta eðlilegt að hafa gott sam- starf við það ágæta félag. Forysta S S hefir ekki haft afskipti af rekstri sláturhússins en rétt er það að for- maðurinn, Gísli Andrésson, eignaöist örfá prósent hlutafjár eins og aörir eggjaframleiöendur þegar þeir gengu til liðs viö félagið. Gísli Andrésson nýtur mikils trausts bænda sem og annarra í þessu héraði og kannske hefði það veriö hentugt aö leita til hans um einhverskonar fyrirgreiðslu en það var ekki gert. Það var heldur ekki .leitað til þingmanna kjördæmisins til þess að koma þessu fyrirtæki á lagg- irnar en öflun lánsf jár og hlutaf jár var alfariö á vegum framkvæmdanefndar og stjórnar félagsins. Þetta mun vera arfur frá dögum Ölafs Thors, fyrrver- andi formanns Sjálfstæðisflokksins, sem gætti hagsmuna allra flokks- manna jafnt, hvar sem þeir voru á landinu. ustugildi við greiðendur skattsins og miöað við framleiðslumagn þessara sláturhúsa. Fjögur þessara húsa hafa sláturleyfi ráðuneytisins til þess að slátra eigin framleiðslu en eitt, „Is- fugl”, hefir fullgilt leyfi og er skyldaö til þess að taka til slátrunar af öllum sem þess óska, enda voru þar mestar kröfur geröar til búnaðar. Framlög til þessara húsa voru auövitað misjöfn enda framleiðslumagn misjafnt og þjónustugildið einnig en Isfugl hefir tekið við sláturfuglum af um 70 bændum árlega eöa öllum sem þurft hafa þessa þjónustu. Geta má þess að líka hefir verið slátrað fyrir Gunnar Jóhannsson þegar hann hefir þurft á þvíaöhalda. Stjórnendur Kjarnfóðursjóös hafa starfað samkvæmt gildandi reglum og gagnrýni á þá er óréttmæt og byggð á annarlegum hvötum. Hagræðingar- sjóðir framleiðsluatvinnuvega eru þekkt fyrirbæri í öllum hinum vest- Kjallarinn JÓN M. GUÐMUNDSSON BÓNDI, REYKJUM, MOSFELLSSVEIT • „...ég gagnrýni þá blaðamennsku sem hér hefur verið beitt og það er lítil fag- mennska í því að birta allt sem „að kjafti kemur” án undangenginnar athugunar á stað- reyndum.” Kjarnfóðurskattur Kjamfóðurskatti var komiö á meö bráðabirgðalögum í júní 1980 þrátt fyrir harða andstöðu margra bænda, en þó einkum fugla- og svínabænda, og þá myndaðist umræddur sjóður. Þegar svo var komið var ekki annað aö gera en að ná endurgreiðsluheimild og því tókst undirrituðum aö fá framgengt á aöalfundi Stéttarsambandsins um haustið, en það nam 20% af innheimtu af svína- og fuglafóðri. Reglur um endurgreiðslu voru gerðar með aðild fulltrúa þessara búgreina og fé því skyldi varið til hagræðingar og félags- legra framkvæmda sem kæmi sem flestumaðgagni. Svínaræktarfélag Islands hefir síðan fengið sín framlög og öll starf- andi fuglasláturhús í landinu. Sam- kvæmt þessum reglum skyldi greiöa framlög til uppbyggingar eftir þjón- rænu löndum sem þræða veg frjáls- hyggju og við Islendingar höfum engin tök á að breyta þar útaf nema að taka þá áhættu að glata því verslunar- frelsi sem við þó höfum í dag. Hættan liggur í því er ríkisvaldið fer að seilast inn á þetta svið og sækjast eftir fjár- munum þessara sjóða atvinnuveganna og nota í pólitískum tilgangi, en þaö hefir verið gagnrýnt með réttu. Ég læt þessar upplýsingar um okkar ágæta fyrirtæki, „Isfugl”, nægja en ég gagnrýni þá blaðamennsku sem hér hefir verið beitt, og þaö er lítil fag- mennska í því aö birta allt sein „að kjafti kemur” án undangenginnar at- hugunar á staðreyndum. Stjómendur Hreiðurs h/f vilja hafa gott samstarf við alla menn og vinna innan þeirra marka sem lög og reglur mæla fyrir um á hverjum tíma. Við stefnum að framfórum í meðferð þeirra vara sem við verslum með og bættum verslunar- háttum sem tíðkast í nútímaþjóð- félögum. Annað sem kemur fram hjá leiöara- höfundi verður ekki rætt hér og þar svarar væntanlega hver fy rir sig. Jón M. Guðmundsson. fyrir ríkissjóð. Hún er lítilvæg til að þyngja þá pyngju en bitnar mest og verst á þeim sem minna mega sín og standa höllum fæti, auðsæranlegir á erfiðu skeiði ævi sinnar. Fjárlagasmiður í fflabeinsturni Nú dreg ég ekki í efa aö ríkis- stjórnina skipa heiðvirðir menn. En hvernig geta þeir þá ráðist svo harka- lega og óréttlátt á garðinn þar sem hann er lægstur. Á meðan óma enn í eyrum fréttir af furðulegum aukafjár- veitingum í óþarfa og munað á vegum ríkisins. Getur það verið að raunveruleiki þessa fólks eigi ekki greiðan aðgang að og skili sér ekki að stefnumótun og fjárlagagerð ríkisstjórnarinnar? Þyrftu þeir ekki, sem nú sitja sveittir daglangt við fjárlagasmíð, aö bregða sér í kynnisferðir m.a. á göngudeildir og læknastofur áöur en þeir ákveða hvaða ólar verða hertar og hvar hnífum verður beitt? Ekki væri úr vegi fyrir þessa heiöursmenn að fá í leiöinni að líta á hina löngu biðlista sjúklinga sem bíða eftir því aö komast á spítalana en veröa nú að bíöa enn lengur en áöur vegna þess aö legudeildum er lokað í sparnaðarskyni. Þaö er að öllum líkindum enginn, sem nú situr í ríkisstjórn, sem myndi vilja kannast við þaö að hafa komið gömlu fólki til að gráta í lyfjabúðum vegna auraleysis því að allt eru þetta heiövirðir menn. Ef þeir væru þarna viöstaddir væri þeim miklu fremur trúandi til að taka upp budduna sína og borga fyrir gömlu manneskjuna svo að hún gæti fengið lyfin sin og hætt að gráta. Það er einmitt hið sama sem ríkissjóöur þarf aö gera. Það er ekki nóg aö beita áræði og festu við að reikna efnahagsdæmið ef mannúð og réttlætiskennd skortir. Heilsuvernd eða viðgerðir Heilsuvemd nútímans og framtíðarinnar stefnir sífellt meira frá því að vera viðgerðarþjónusta í þá átt að koma í veg fyrir sjúkdóma með „Ekki væri úr veti fyrir þessa heiðursmenn að fá í leiðinni að lita á hina 1 löngu biðlista sjúklinga sem biða eftir því að komast á spitalana en verða nú að biða lengur en áður vegna þess að legudeildum er lokað i sparnaðarskyni." fyrirhyggju og heilsusamlegu líferni. Slík heilsuvernd fjárfestir í lengra Hfi og meiri vellíðan auk þess sem mikil útgjöld munu sparast viö dýra heilbrigðisþjónustu sem leitast viö að bæta úr orðnum skaöa. Nægir þar aö nefna slysavarnir sem dæmi þar sem fljótt og vel má spara bæði mannslíf og miklar fjárhæðir. Ennfremur má nefna þann mikla ávinning sem verður í auknum vinnuafköstum vegna færri veikindadaga. Þessi tegund heilsuvemdar krefst skilnings og áhuga almennings til virkrar þátttöku í eigin heilsugæslu. Sú stefna, sem nú hefur verið tekin með því aö hækka kostnaðarhlutdeild sjúklinga viö heilbrigðisþjónustu, stuðlar að því aö letja þorra fólks og fæla frá því aö leita læknis þar til of seint er e.t.v. aö beita virkri heilsuvernd. Þetta yrði stórt skref aftur á bak og myndi valda ómet- anlegu tjóni á því uppbyggingarstarfi sem þegar hefur verið unnið á þessu sviði. Heilbrigöis- og tryggingakerfið er vissulega stór útgjaldaliður í fjár- málum ríkisins og sjálfsagt er að leita þar sparnaðar eins og annars staöar. Þannig mætti ná eðlilegum og var- anlegum sparnaði með aukinni fyrir- byggjandi heilsuvemd, heilbrigðis- fræðslu og rekstrarlegri hagkvæmni án þess að neytandinn, sjúklingurinn, bíði tjón af. Sú leið að láta spamaðar- aðgerðir bitna verst á þeim sem þurfa mest á læknishjálp að halda er þó aldrei réttlætanleg eins og allir heiö- virðir mennhljóta aðsjá. Jafnframt má benda á það aö væntanlega fást stærri fúlgur í ríkis- sjóð úr fylgsnum skattsvikara en þeir fáu aurar sem fást frá veiku fólki. Það er ekki að ófyrirsynju að fjöl- mörg sjúklingasamtök hafa mótmælt sparnaöaraðgerðum ríkisstjórn- arinnar og aö sameiginlegur fundur stjóma la*naráða Borgarspítalans, Landakotsspítala og Landspítala var- ar viö afleiðingum þeirra í rekstri spítalanna. Þessir aöilar finna glöggt fyrir því að þessar aðgerðir bitna fy rst og f remst á s júklingum. Það er ekki ýkja langt síöan þessi þjóð gægðist út úr torfbæjum sínum og deplaöi augum framan í bjarta framtíð og bættan hag. Hvorki þá né nú'þykir sæmd í því aö vera niöursetningur. Þaö að setja fólk niður á ekki bara við það að hola því niður á bæ hjá öðrum. Það er ekki síður að setja fólk niður í mannlegri reisn og virðingu. Erum viö á leið út úr tímabundnu velferðarþjóðfélagi inn í frumskóginn þar sem lögmál hinna sterku, kappsömu og efnuðu er einrátt? Eru það heiðvirðir menn sem velja slíka leið? Guðrún Agnarsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.