Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 23
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984. íþróttir 23 íþróttir íþróttir íþróttir — Ég er byrjaöur að æfa á fullum krafti og reikna með að ég lelkl gegn Dortmund — næsta leik okkar, sagði Lárus Guðmundsson, miðherji Bayer Uerdingen, en hann hefur átt við meiðsli að stríða í hné. Lárus sagði að Karl-Heinz Feld- kamp, þjálfari Uerdingen, legði mikla áherslu á að hann léki þann leik. — Eg er allur að koma til og það mun koma í j ljós á morgun hvort ég er orðinn klár í slaginn, sagði Lárus. -KB/-SOS Lárus er orðinn góður Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DViBelgíu: Lárus Guðmundsson. nnubankinn OSA Hart baríst í N jarðvík - Njarðvíkingar unnu dýrmætan sigur á KS1-0 í 2. deild Mark Jóns Halldórssonar í leik UMFN og KS í Njarðvíkunum var þýð- ingarmikið fyrir heimamenn. Það reyndist vera eina mark leiksins, skor- að á 69. mín. og með því eru Njarð- víkingar komnir í annað sæti deildar- innar ásamt Víði sem er með jafnmörg stig, eða 24, en lakara markahlutfall. Baráttan um 1. deildar sætið aö ári ásamt FH, sem þegar er komið yfir þröskuldinn, verður þvi hörö i þremur iokaumferðunum því ÍBV, ÍBÍ, KS og Völsungar eiga einnig góða möguleika á að hreppa annað sæti og svo getur farið að markahlutfall ráði því hver hreppir hnossið. En rétt eins og mark Jóns, sem Freyr Sverrisson átti stóran þátt í, lyfti knettinum inn á markteig til Jóns sem skoraði með snöggu skoti upp undir þverslá, þá kann misheppnuð vítaspyrna hins snjalla leikmanns KS, Colins Thachers, að verða þeim af- drifarík. Staöan var jöfn, 0—0, þegar Steingrímur Björnsson dæmdi rétti- lega vítaspyrnu á 63. mín. vegna hrind- ingar. Colin lagði allt sitt afl í skotið en knötturinn small á marksúlunni innan- verðri svo söng í og hrökk þaðan þvert fyrir markiö. Heimamenn voru fljótari aö átta sig og tókst að senda knöttinn langt út fyrir hliðarlínu áður en KS- ingar komu á vettvang. Omögulegt er aö segja hvaða áhrif mark á þessari stundu hefði haft á leik liðanna en alla vega voru gestirnir búnir aö ná yfir- höndinni sem þeir heföu ekki sleppt fyrr en í fulla hnefana — enda þá komnir í annað sætið. Þegar á heildina er Utið þá réðu Njarövíkingar öllu meira um gang leiksins. Þeir reyndu að láta knöttinn ganga, eins og sagt er á knattspyrnu- máli, með stuttum sendingum. Vörnin var samstillt og föst fyrir þar til undir lokin að hún riðlaðist dálítið af tauga- spennu. Lítið reyndi á markvörðinn, enda fátt um skot á markið. Fram- herjarnir voru að vanda stórhættulegir fengju þeir lausan tauminn. Siglfirðingar eru með knáa pilta í liði sínu og kappsama sem halda knettin- um um of í loftsiglingum, — langferð- um, í stað grastoppanna á styttri leiðum. Suðurferðin gekk KS-mönnum ekki þrautalaust. Vegna þoku urðu þeir að „kuldanum” — var ekki íhópi Anderlecht sem vann stórsigur 7:1 yfirLokeren • Czerniatynski — skoraði þrjú mörk. fara akandi til Sauðárkróks og fljúga þaðan til Keflavíkurflugvallar. I lend- ingunni hlekktist vélinni á. Lagðist á væng og fór út af flugbrautinni inn á grasflöt. Engar skemmdir urðu á vél- inni og ekki sakaði neinn, „en við vorum í hálfgeröu losti,” sagði einn leikmannanna, „þegar við komum til leiks sem hafði neikvæð áhrif á leik- menn.” emm Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DVíBelgíu: — Það kom geysilega á óvart að Arnór Guðjohnsen skyldi ekki vera með Anderlecht þegar félagið lék gegn Lokeren í 1. deildar keppnlnni hér um helgina. Arnór var ekki einu sinnl varamaður i leiknum — og það þrátt fyrir að hann skoraði fallegt mark i fyrsta leik Anderlecht í delldinni. Anderlecht vann stórsigur 7—1 yfir Lokeren, sem mátti þola sitt stærsta tap í sögu félagsins. Alex Czemia- tynski 3, Wim Hofkens 2, Scifo og Georges Grun skoruðu mörk Ander- lecht í leiknum, en Anderlecht lék oft frábæra knattspymu og áttu leikmenn Lokeren ekkert svar við stórleik þess. Þetta var eini leikurinn í 1. deildar keppninni og er Anderlecht með fullt hús stiga — fjögur eftir tvo leiki og markatöluna 16—3. -KB/-SOS Fékkflugu í augað Norðurlandameistarinn í karla- flokki, Daninn Steen Tinning, varð eins og Óskar fyrir barðinu á flugunum í Grafarholti. Síðari keppnisdaginn flaug eitt kvikindiö beint i auga Dan- ans og festist þar undir augnlokinu. Eins og flestir eflaust gera sér grein fyrir er frekar mikið atriði að sjá vel í golfi og Tinning var nokkuð lengi að ná sér. -SK. Samvinnubankinn hefur aukið þjónustusvið sitt og sér nú um kaup og sölu á ferða- og námsmannagjaldeyri. Þar er einnig hægt að opna innlenda gjaldeyrisreikninga auk þess sem bankinn veitir alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort. ERLEND Amór úti í íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.