Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 46
50
DV. MÁNUDAGUR 27. AGUST1984.
Auglýsing
Aö gefnu tilefni vekur ráöuneytiö athygli allra sem í hlut
eiga á ákvæöum reglugerðar nr. 473/1982 um mat og flokkun
kartaflna og annarra garðávaxta og auglýsingu í Stjórnar-
tíðindum nr. 717/1983 um mat og flokkun á kartöflum. Yfir-
matsmaður garðávaxta annast framkvæmd á ákvæðum
þeirra reglna sem um ræðir. Með brot á umræddum reglum
veröur farið aö hætti opinberra mála.
Landbúnaðarráðuneytið.
COMBAC
Fristandandi sturtukiefar
með sjaffsúl/anlegum b/öndunartækj
um. Hentar afís staðar fyrirheimifí og
vinnustaði.
Stærðir: 80x80 — 90x90 — 70x90 — 90x70
Auðvett í uppsetningu, aðeins þarfað
tengja vatn og frárennsfí.
g—g PÓSTSENDUM
M Byggingavöruverzlun
fBYGGINGfll/ÖRURl Tr7"Va Hannessonar
---nrHf SIÐUMULA 37.
SÍMAR 83290 OG 83360.
Siglingar Siglingar
AF FLEKUM OGSEGLBÁTUM
Þegar ég var polli var aðeins um
eitt að ræða ef maður vildi komast út
á sjó. Því þá sáust ekki seglbátar eöa
spíttbátar og trillukarlarnir voru of
úrillir til að leyfa manni meö. Eina
ráðiö var að stela spýtum og hvít-
korki úr nærliggjandi byggingum og
smíða fleka. Sumir smíðuðu sér
tunnufleka og sumir voru svo vit-
lausir aö ýta frá landi án þess að
hafa stikur eða árar. Þá kom löggan
til aö sækja grenjandi gutta út í hafs-
auga. En brátt fundum viö út að hægt
var að smíða kæjaka meö því að gera
einfalda trégrind og klæða meö
segli; tjörguöum svo í rifurnar. Á
þessu gátum viö róið yfir til Bessa-
staða, ef viö höfðum nesti. Eitt sinn
reri ég einn út í golfvöll og kom þar
gangandi upp úr fjönmni berfættur í
lemjandi rigningu seint um kvöld.
Golfkarlarnir galopnuðu augun og
héldu að ég væri snarvitlaus. Þeir
vissu ekki að ánægjan hélt á mér
hita.
En í dag eru til þúsundir báta-
tegunda, litlar og stórar. Og nú er
Æskulýðsráö Reykjavíkur með sigl-
ingaklúbb inni í Nauthólsvík sem
heitir Siglunes. Þar geta allir sem
orðnir eru 9 ára komið og fengið
lánaðan bát. Þar eru kanóar, ára-
bátar, litlar optimist jullur með einu
segli fyrir byrjendur. Síöan eru
Topperar og svo Flipper sem er bæði
með stórsegl og fokku. Hvert skipti
kostar aðeins 30 krónur með tilsögn.
Og þegar strákarnir hafa verið á
tveim byrjendanámskeiðum þá
mega þeir ganga í klúbbinn, kostar
það aðeins 300 krónur, og geta þá
siglt eins og þeir vilja. Þarna er opið
á mánudögum, þriðjudögum og mið-
vikudögum frá 5—7. A fimmtudögum
frá 5—10 og á laugardögum frá 1—4.
Haldin eru námskeið, kenndar góðar
siglingaíþróttir og drengskapur í
keppni. Hvað er hollara fyrir unga
gutta sem eru fullir af fjöri? 30
krónur er ódýr leið fyrir feður til að
halda byggingatimbri sínu.
Er ég var þama nýlega í rigningu
sá ég margar jullur á siglingu.
Gúmmíbátur þeyttist á milli þeirra
en unglingarnir virtust kunna þetta
alveg. Sá einn Topper meö rauðu og
gulu segli renna upp í sandinn. Lend-
ingin var fín og guttinn kunni greihi-
lega vel til verka. Pollinn sem steig í
land var blautur frá hvirfli til ilja,
það draup úr hári hans. Hann var
rauðhærður með stórar, sterklegar
framtennur, brosandi af innri gleði
yfir því að hafa eitthvað til að fást
við. Hann var ekki nema ellefu ára
og sagðist sko kunna þetta allt.
1 dag eru til skútur úr tré, plasti,
jámi, áli og steinsteypu. Þannig að
nú er úr mörgu að velja. Meö tilkomu
plastsins urðu margir bátar léttari í
meðförum. Fjölskyldumenn vilja
hafa húsaskjól til aö geta fengið sér
kaffisopa og velja því yfirbyggða
Ásgeir Hvítaskáld
skrifar um siglingar
kjölbáta. Þeir sem vilja fjör eru á
opnum bátum og sitja þá í næðingi.
Hægt er að fá íslenska og útlenska
báta, allt frá seglbrettum og upp í
stærðar lystisnekkjur. Þeir sem eru
að sálast úr löngun til hafsins þurfa
ekki lengur að smíða sér fleka. Menn
keppa nú á siglingamótum og við
sjálfa sig. Svo er farið í langferðir, út
íeyjarogýmislegt.
Eitt er víst að allir þessir bátar
veita eigendum sínum ánægju, losa
þá úr viðjum hversdagslífsins og
tengja þá aftur við móður náttúru;
hafið. I Danmörku eru siglingar vin-
sælasta útisportiö, því þar eru engin
fjöll; háfið er þeirra náttúra. Við
höfum það allt í kringum okkur og
nóg af roki.
Árneshreppur:
Óánægja með
stöðvun smá-
bátaveiða
Ráðstefna
um slysavarnir á íslandi vill..
SLYSAFRÆÐI
ISKÓLANUM
Regína Thorarensen, fréttaritari DV,
Gjögri:
Arneshreppsbúar eru óánægðir með
að smábátaveiðar skuli vera stöðvaðar
af sjávarútvegsráðuneytinu frá 25. til
31. ágúst. Er þá búið að stöðva trillurn-
ar tvisvar í ágústmánuði, sem er mikið
fyrir þessa litlu báta sem eru flestir að-
eins tvö til þrjú tonn og alls engin haf-
skip.
Eg álykta að betra sé að flytja fólkið,
sem er að reyna aö bjarga sér á heiðar-
legan hátt, í burtu heldur en að banna
því aðfásérísoðið.
Kaupfélag Strandamanna er búið að
leggja mikla peninga í fiskmóttökuhús
á Norðurfirði og setja ljós við höfnina
og móttökuhúsiö hér á G jögri.
1 fyrradag fóru fjórar trillur á sjó og
fengu tvö tonn og fjögur hundruð kíló,
þar af fékk Jón Eiríksson níu hundruð
og fimmtíu kíló.
I ágúst hefur verið slæm veðrátta og
gaf ekki á sjó í tíu daga vegna suðvest-
anáttar. Arneshreppsbúar hafa lokið
heyskap og ætluöu að drýgja tekjur
sínar með því að fara á s jóinn.
Regína/SJ
Á ráðstefnu um slysavamir á ls-
landi var Salóme Þorkelsdóttir valin
formaöur nefndar sem mun vinna að
þvi að framkvæma ýmsar tillögur er
þar komu fram. Má til dæmis nefna
tillögu um að tekin verði upp kennsla
í slysafræðum til prófs í grunnskól-
um, „en sem hliðargreinar verði
kennd hjálp í viðlögum, þarfir
blindra í umferðinni og afleiðingar
fíkniefnaneyslu,” eins og segir í
greinargerð sem lögð var fram á
ráðstefnunni.
Fulltrúar frá landlæknisembætt-
inu, Slysavamafélagi Islands og
slysadeild Borgarspítalans munu
einnig eiga sæti í þessari nefnd sem
mun vinna að því að samræma aö-
gerðir um slysavarnir á lsiandi.
Hefur verið lagt til að hún komi á fót
sérstakri slysarannsóknanefnd sem
mun starfa á svipaöan hátt og flug-
slysa- og sjóslysarannsóknanefndir.
Einnig hefur verið lagt til að komið
verði á fót annarri nefnd er vinni að
því að samræma söfnun gagna um
slys.
A ráðstefnunni var einnig lagt til
að sektarákvæðum yrði beitt vegna
vanrækslu á notkun bíibelta, að sett-
ur verði íslenskur staðall um eldhús-
innréttingar þar sem gert verði ráð
fyrir einum læstum skápi í hverri
nýrri eldhúsinnréttingu fyrir lyf og
önnur hættuieg efni, að bætt yrði úr
skorti á skýringum um meðferð lyfja
og eiturefna en alls voru tillögumar
hátt i þrjátíu talsins.
EA