Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 48
52 DV. MANUDAGUR 27. ÁGUST 1984. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Herkúles kemur ekki í morgunmat nema hann fái líka kaffi meö sykri og rjóma eins og „foreldrarnir”. Efþú ekki mátt hafa hund. Freddi fær að sjálfsögðu að vera með i veislum og hér fær hann finan bita frá hús- bónda sínum, Trevor Simons. Viö höfum vanist að heimilis- dýr sé hundur eða köttur. Fiskar eru stundum kallaðir heimilisdýr og margir vilja hafa hamstra eða kanínur, Eitthvaö höfum við heyrt minnst á skjaldbökur, jafn- vel hvítar mýs. Úti í hinum stóra heimi þekkjast einnig annars konar heimilisdýr. Má þar nefna smá- u hesta, krókódíla, apa og jafnvel birni. Allt fer þetta auövitaö eftir hversu stórtækt fólk er. Hér á eftir fara sögur af nokkrum stór- huga eigendum heimilisdýra. Freddi er mikill sjónvarpsglápari og skiptir um rás ef honum býður svo við að horfa. HERKÚLES HEFUR ÞAÐ GOTT Hann Herkúles var aö vísu ekki svona stór þegar stjúpforeldrar hans tóku hann aö sér. Engu að síður láta þeir allt eftir honum. Þessi fullvaxni björn, sem býr í Kaliforníu meö þeim Maggie og Robin Newhall, hefur sitt eigið herbergi. Sundlaugin er notuö af þeim öllum þremur. Herkúles borðar í morgunmat eitt dúsín af hráum eggjum, eitt brauð og tvö kíló af soönum baunum. I hádeginu fær hann jógurt og ávexti og í kvöld- mat fær hann sex kíló af kjöti. Uppá- haldsmaturinn hans er rækjur og lax. Aumingja Herkúles er mjög við- kvæmur. Ef einhver kemur í heimsókn og talar ekki viö hann fer hann að gráta. Ef hins vegar einhver hrósar honum hlýtur sá hinn sami koss á kinn og sérstaklega ef þaö er kvenmaður. HANN LIKTIST LEIKFANGINU Margir kjósa sennilega að hafa minna heimilisdýr en hann Trevor Simmons sem býr á Englandi. Hans gæludýr er nefnilega hann Freddi sem er smáhestur, 120 cm hár. Sem betur fer á Trevor stórt hús og er vel efnaöur því að Freddi vill fá gott aö borða eins og húsbóndinn. Það er nú aldeilis ekki svo að Freddi hafi fengiö sitt eigiö hesthús. Freddi sprangar um stofurnar hjá Trevor, hefur sitt eigið herbergi og horfir iðulega á sjónvarpið í sjónvarpsstofunni. Og ef Fredda líkar ekki dagskráin þá bara skiptir hann um stöð sjálfur. Ekkert mál. Ef veisla er í húsinu fær Freddi aö sjálfsögðu að vera með og bragðar á góðgætinu alveg eins og aörir. Það er þó ekki laust við að sumir gestir verði hálf- hlessa þegar á móti þeim kemur hestur. Eitt sinn er Trevor hélt mikla veislu kom einn kunningi hans taisvert slomp- aður og hélt síðan áfram um kvöldið að bragða á guðaveigunum. Næsta morgun hringdi hann hálfskömmustu- legur í Trevor og spurði hálffeimnis- lega hvort það gæti veriö að þaö hefði veriö hestur í partúnu í gærkvöldi. Sennilega hefur honum létt er hann heyrði að svo hafði verið. Annars er það að frétta af Trevor að þegar hann sá Fredda á hestamarkaði fannst honum hann líkjast sínum eigin leikfangahesti er hann átti sem barn. Honum fannst hann verða að festa kaup á dýrinu. Freddi fékk að sitja í Rollsinum heim, gekk rakleiðis inn í húsið og Trevor segir: Eg hafði ekki hjarta í mér til að reka blessaða skepnuna út. Og síðan hefur Freddi verið einn af fjölskyldunni. ■ Kántrísöngkonan Dolly Parton skjön viö það sem gerist hjá stór- lætur ekki segja sér fyrir verkum. A stjörnum í Hollywood þá leigir Dolly Sveitakagginn hennar Dolly með dálitið skemmtilegri áletrun. „Það er æðislegt að kaupa sjálf inn." pínulitla íbúð í stað einhvers glæsi- hýsis og þegar hún fer á veitingastaði lætur hún varla hjá líða að skreppa í eldhúsið og elda handa sjálfri sér. Búúnn hennar er engrnn lúxusvagn heldur ekur hún um á gömlum pallbú á milli stórmarkaðanna þar sem hún kaupir sjálf inn. „Fólk kallar mig sveitavarg hérna, en ég tek það bara sem gullhamra,” segir Dolly. „Þaö þýðir aö fólkiö þekkir hina raur.verulegu Dolly Parton sem er mjög jarðbundin manneskja og lifir fábrotnu sveitalífi. Þó að ég líti út eins og einhver fígúra með allar þessar hárkollur og málningu þá þýðir það ekki að ég þurfi aö hegða mér eins og fífl.” Vinur Dolly sagði frá því að einu . sinni heföi Dolly sagt það við vinkonu sína, Jane Fonda, að það væri erfitt aö muna þaö aö hún væri sveita- manneskja þegar hún væri aUtaf umkringd bílstjórum, lúxusbílum og glæsilegum f ötum. Hún væri orðin hálf- rugluð á þessu. Jane hafði þá ráðlagt Dolly að vera samkvæm sjálfri sér. Hún ætti ekki aö reyna að vera einhver önnur en hún væri. Þrátt fyrir frægðina væri hún ein af fólkinu. Dolly fannst ráð Jane góð og ákvað að sýna glysborginni hver hún raunverulega væri. „Ein leiöin til þess aö lifa einföldu lífi er aö keyra sinn eigin bíl. Gamli pallbíllinn hentar mér vel. Heima í sveitinni keyra alúr á svona bílum,” segir Dolly. Dolly Parton hefur þráast viö að kaupa sér hús í Kaliforníu þrátt fyrir öll auðæfin. Eitt sinn þegar hún leigöi sér villu í Beverly Hills strengdi hún þvottasnúru á múú tveggja trjáa og hengdi út þvottinn sinn. Það var varla um annað talaö í Hollywood. „Mér er alveg sama. Látum fólkiö tala,” segir Dolly. „Eg vil einfaldlega hafa þvott- inn minn hreinan og mér finnst hann ekki hreinn nema hann hafi hangið úti.” Og svo er þaö þetta með veitinga- staðina. Astæðan fyrir því að hún skreppur í eldhúsið annaöhvort til að tala viö kokkinn eða elda handa sjálfri sér er sú að þá frnnst henni eins og hún sé í sínu eigin eldhúsi að skrafa viö nágrannana. Vinir Dolly segja að þegar hún kaupi í matinn í stórmörkuöunum sé eins og hún sé að kaupa ofan í ellefu systkinin sín heima í sveitinni. Ef hún þarf bara aö kaupa 5 k'úó af kartöfl- um þá kaupir hún 25 kíló. ,JiIér fúinst það æðislegt aö kaupa inn sjálf. Þaö minnir mig á heimahagana,” segir Dolly og bætir við: Það er ekkert, — ekki einu sinni glysið og glansinn í Hollywood — sem getur fengið mig til þess að gleyma því hvar rætur mínar liggja, heima í sveitinni.” VERÐUR ÞAÐ STÚLKA? ... og Díana bíður. Hún bíður eftir manninum sínum meðan hann leikur sér í póló, hún bíður eftir því að verða drottning og hún bíður eftir næsta baminu smu. Nú er spennan að færast í aukana hjá þegnum Breta- drottningar um hvort henni Díönu fæðist drengur eða stúlka. Areiðan- leg heimild úr heilbrigðisstéttum þar í landi, sem eru víst jafnlausmálgar þar eins og víða annars staðar, upp- lýsti heimspressuna um þaö að Díana hefði farið í sónar um daginn. Hins vegar heföi hún alls ekki viljað fá að vita niðurstöðuna úr sónarskoð- uninni. Niöurstaöan leiddi víst í ljós að barniö verður stúlka samkvæmt upplýsingum starfsmannsins úr heil- brigðisstéttinni. Kannski er Hún orðin þreytt á að bíða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.