Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Qupperneq 6
6
DV. MÁNUDAGUR 27. AGUST1984.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Pott-
réttir
með
græn-
meti
Grænmeti skorið niður i pott ásamt kjöti eða fiski er mikill hollustu-
réttursem gjarnan má bera fram með hrisgrjónum og brauði.
Ferskt grænmeti er tilvalið að láta
út í kjöt og fiskrétti. Ef mörgum
tegundum grænmetis er blandað
saman veröur rétturinn litríkur og
lystaukandi. Kræklingar og rækjur
gera einnig réttinn fjölbreyttan, svo
og allur innmatur.
Grænmeti er skoriö mjög smátt
niður í strimla eða teninga. Blómkál
er tekiö í sundur í smáa brúska. Kjöt
og fisk er ráölagt aö skera í b'ýants-
þykka strimla. Mikilvægt er að nota
til þess vel beittan hníf.
Kínverjar gera mikið aö því aö
steikja kjöt og grænmeti hvort í sínu
lagi og blanda því síðan saman í pott.
Slíkir réttir eru fljótlagaðir, auk þess
ódýrir og næringarefnaríkir. Ekki er
ráðlagt að hafa steikingartima lang-
an, það nægir aö fiskurinn og kjötiö
skipti um lit. Þar sem bitarnir eru
þunnir og smáir verður of langur
tími einungis þess valdandi að hrá-
efnið verður hart og þurrt.
Grænmetisréttur með kjöti
50 g smjörlíki eða 3—4 msk. matar-
olía
400 g kjöt
300 g kartöflur
250 g gulrætur
250 g kínakál (eða annað kál)
1 tsk. salt
2 matskeiðar vatn
Kjötið er skorið í blýantsþykka um
4 cm langa strimla. Skerið fyrst
langs eins og vöðvi kjötsins liggur,
síöan þvert á vöðvann. Grænmetið er
hreinsað og skorið í örþunna strimla
eða teninga.
Smjörlíkið eöa olían er hituð vel
upp í potti eöa pönnu með þykkum
botni. Mælt er með smjöri eða smjör-
líki því að olían gerir káliö fitugljá-
andi.
Kjötinu er snúið í pottinum á alla
kanta þar til þaö hefur skipt um lit.
Niðurskornum kartöflum og gulrót-
um er hellt í pottinn og hrært er í
stutta stund eða um eina mínútu.
Kálinu er síöan blandað saman við
og hrært er í aðra mínútu. Salti og
vatni því næst bætt við, hitinn minnk-
aður og lok sett á pottinn. Rétturinn
er látinn krauma í um eina mínútu,
þá er hann tekinn af hellunni og lát-
inn standa í pottinum í um 2 mínútur.
Grænmetisréttur með físki
80 g smjörlíki eöa 6 msk. olía
400 g beinlaus fiskur
2msk. maizenamjöl
300 g kartöflur
250 g gulrætur
250gkínakál (eða annaðkál)
1 tsk. salt
3msk. vatn
Beinlausi fiskurinn er skorinn í
strimla. Grænmetið skorið smátt.
Helmingur fitunnar hitaður í þykk-
botna potti. Fiskinum velt upp úr
maizenamjöli og hann steiktur í feit-
inni stutta stund eða í um eina mín-
útu. Hann er tekinn upp úr og látinn á
pappír sem sýgur í sig feiti, til dæmis
eldhúsrúllubréf. Hinn helmingur
feitinnar er hitaður upp í pottinum,
kartöflur og gulrætur steiktar í eina
mínútu. Salt og vatn látið í pottinn og
fiskurinn látinn aftur í, lok yfir og
hitinn minnkaður. Látið krauma við
vægan hita í eina mínútu. Potturinn
tekinn af hellunni og látinn standa í
tvær mínútur.
Það sem hæfír með
Þyki rétturinn ekki nægilega saö-
samur er vel við hæfi að bera fram
gróft brauð með réttinum eða soðin
hrísgrjón. Ekki er gert ráð fyrir
sósu með þessum réttum. Hrís-
grjónin má sjóða á venjulegan hátt
í vatni, ásamt örUtlu salti eða súpu-
teningum. TU að fá meira bragð aö
grjónunum er smátt saxaður laukur
soöinn meö.
Einnig er hægt aö hafa þann hátt-
inn á að smátt skorinn laukur er
steiktur upp úr feiti. 2 dl af hrís-
grjónum er blandaö saman við feit-
ina og látið steikjast ásamt laukn-
um í um 1/2 mínútu. Þá er 3 dl af
sjóöandi kjötkrafti hellt yfir grjón-
in. Krafturinn mætti til dæmis
samanstanda af uppleystum súpu-
teningum í vatni. Hrært í þar til
sýður. Suöutími er sá sami og hrís-
grjón almennt þurfa.
-RR
Enginn þarf að gráta við að skera lauk ef notaður er vel beittur hnifur. Hálfur laukur er skorinn langs og
þvers eins hratt og unnt er. Laukur er mikill bragðauki i flesta rótti, einnig tilvalið að sjóða hann með hrís-
grjónum og grænmeti.
Kartöflumálin:
Ekki í takt
við tuttug-
ustu öldina
— segirSigurður
Sigurðarson, formaður
Neytendafélags Reykjavíkur
Neytendasamtökin og Neytendafélag
Reykjavíkur hafa samþykkt eftir-
farandi:
Neytendasamtökin og Neytenda-
félag Reykjavikur og nágrennis
leggjast alfariö gegn þeirri hugmynd
sem fram hefur komið af hálfu Lands-
sambands kartöflubænda, aö því veröi
falin stjórn Grænmetisverslunar land-
búnaöarins.
Fyrirsjáanlegar og löngu tíma-
bærar breytingar á verslunarháttum
meö kartöflur og grænmeti gera Græn-
metisverslun landbúnaöarins óþarfa í
núverandi mynd. Nýlegar yfirlýsingar
frá forystu Landssambands kartöflu-
bænda gefa til kynna, að hún sækist
eftir einhliöa stjórnun framleiðenda á
sölumálum kartaflna.
Neytendasamtökin og Neytenda-
félag Reykjavíkur og nágrennis telja
slíkt með öllu óviöunandi og aö gera
verði sölumálin mun frjálsari en verið
hefur til þess aö gefa neytendum kost á
sjálfsögðu valfrelsi. Grænmetis-
verslun landbúnaöarins á aö sinna
öðrum afurðum en kartöflum, en
reynslan hefur sýnt aö vandamál á
sviði verslunar með almennt grænmeti
eru enn meiri en með kartöflur. Það
væri því í hæsta máta óeölilegt nú að
fela kartöflubændum einum forræði
yfir gögnum og gæðum stofnunar sem
reist hefur veriö á kostnaö neytenda.
Þaö eru því kröfur Neytendasam-
takanna og Neytendafélags Reykja-
víkur og nágrennis aö landbúnaðarráð-
herra breyti reglum um Grænmetis-
verslun landbúnaðarins í því skyni, að
stofnunin geti gjörbreytt hlutverki
sínu og þjónað sem gæðaflokkunarmið-
stöð fyrir alla sem það kjósa, auk þess
að vera grænmetismarkaður allt áriö.
Einnig gæti stofnunin annast bæði inn-
flutning og heildsöludreifingu kart-
aflna og grænmetis í samkeppni við
aðra aðila.
Ofnréttur úr
ódýra blómkálinu
Blómkál hefur til þessa verið það
dýrt eða á annað hundrað krónur
hvert kíló aö margir hafa sleppt því
að kaupa það. Nú hefur káliö lækkaö
um meira en helming og er hægt aö
fá væna blómkálshausa fyrir 25
krónur. Menn láta því eftir sér að
kaupa kálið í dag, jafnvel einungis til
að borða þaö hrátt. En blómkál má
bera fram á marga vegu sem og
annað grænmeti. Eftirfarandi til-
lögur má eflaust nýta sér viö matar-
gerðina.
Til aö losna við allt kvikt sem
kann að vera í kálinu og borist hefur
frá kálgarðinum er ráðlagt að láta
kálhöfuðið liggja í ediksblöndu í um
eina klukkustund áður en það er mat-
reitt. Blandan gæti verið þannig: 1
teskeið edik á móti 1 lítra af vatni. Ef
kálhöfuðið er soðið í heilu lagi þá er
suðutími um 15 mínútur en blómkál
soðið í bitum þarf rúmlega 5 mínútna
suðutíma. Blómkál er best að taka úr
pottimeðfiskspaða.
Spaghetti og blómkál
Blómkál er soðiö sér í bitum.
Sósa er búin til úr smjöri, hveiti,
soðinu af blómkálinu, rjóma, rifnum
osti eða smurosti og kryddi. Soöiö
spaghetti og blómkál er látið í
smurt eldfast mót. Reykt kjöt er
skorið í bita og því blandað saman
við, einnig má nota soðið kjöt sem til
fellur. Ostasósunni er hellt yfir
réttinn, því næst er stráð yfir rifnu
muskati og rifnum osti og fáeinum
smjörbitum. dreift yfir. Rétturinn er
látinn vera í 250 gráða heitum ofni
þar til osturinn er orðinn ljósbrúnn.
Borið f ram með brauði og hrásalati.
-RR