Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Qupperneq 14
14 DV. MANUDAGUR 27. AGUST 1984. Menning Menning Menning Menning Tríóið sem varð að kvartett Jasstónleikar i Norræna húsinu 19. ágúst. Flytjendur: Sigurður Flosason, Reynir Sigurðsson, Tómas Einarsson, Pétur Grétars- son. Eiginlegir, formlegir jasstón- leikar eru ekki algengir, hvorki hér- lendis né víöa annars staöar. Til eru ótalmargar skýringar á því hvers vegna jass allt að því eigi og þurfi að vera fluttur í öðru og drungálegra umhverfi en önnur tónlist. Margir' vilja meina aö viö þaö aö flytjast í formlegt konsertumhverfi hljóti jassinn óhjákvæmilega aö glata ýmsum séreinkennum sínum, þá sér- staklega frelsissvipnum. Svo eru til þeir sem eiga þann draum aö heyra jassinn metinn aö veröleikum í sömu sölum og aöra tónlist. Kammertónleikar af betri sortinni Þaö er annars furöulegt hvernig þessi tónlist, já, jafnvel nafniö eitt, getur megnaö að lokka kreddur fólks gagnvart hinum mismunandi geröum og stefnum tónlistarinnar upp á yfirboröiö. Og þaö eru máske harkaleg kredduviðbrögð sjálf- skipaöra hreintrúarpostula í röðum tónlistarinnar njótenda sem fyrst og fremst hafa fælt alvarlega þenkjandi jassleikara frá hinum heföbundnu konsertsölum. Fjórmenningarnir, sem lékn í Norræna húsinu á þessu sunnudags- síðdegi, þurftu ekki aö biöja einn eöa neinn afsökunar á tónlistarflutningi sínum. Satt að segja hefur maöur oft heyrt tónlistarmenn, sem standa nokkrum flokkum neöar, flytja ríkis- styrkta list sína í sama húsi, oft meö þeim árangri einum aö festa meö áheyrendum sínum þá skoöun aö staöall tónlistarinnar á Islandi sé síður en svo í lægri flokkunum. En hér var boöiö upp á úrvals jassleik. Eiginlega ætti frekar aö segja — þetta voru kammertónleikar af betri sortinni. Ungir og kappsfullir Þaö sem auglýst var sem tríó var oröiö aö kvartett þegar til tón- leikanna kom. I hópinn haföi bæst Tónlist Eyjólfur Melsted ungur þrumutrýmbill, Pétur Grétarsson, nýkominn heim frá námi. Eg verö aö játa aö ég þekkti Pétur lítiö áöur en hann hélt utan til náms en hér birtist hann fast- mótaður, kappsfullur og fjölhæfur en hætti til aö taka fullmikið á, fyrir minn smekk aö minnsta kosti, leik- andi í svo lítilli sveit og í ekki stærri né burðarmeiri húsakynnum en Nooræna húsinu. Tómas Einarsson hefur ekki variö tíma sínum til ónýtis í Kaupinhafn. Hér er kominn hugmyndaríkur, drífandi bassaleikari, fimur í betra lagi og glúrinn í glissando fjöl- gripum og á eflaust eftir aö gera garðinn frægan þegar hann hefur öðlast meiri leikreynslu og unniö betur úr sinni góðu grunnskólun. — Sigurö Flosason þarf ekki aö kynna fyrir tónlistarunnendum. Þótt ungur sé aö árum hefur hann þegar skipaö sér í röö fremstu saxófónleikara okkar. Fjölbreytileiki tónblæsins ‘spannar allt frá því blíðasta blíöa til þess sem kalla mætti snyrtilegan grófleika. En það sem heillar mest í leik hans er sú einskæra smitandi leikgleöi sem út úr honum skin og svo næsta fyrirhafnarlaus fljúgandi fimi hans á altósaxófóninn. Ekki bara huggulegt tóm- stundafitl Ekki þurfti háan aldur til aö vera nestor í þessu vel sveiflandi kompaníi. Reynir Sigurðsson sá um aö halda utan um allt saman meö •„gentleman”-legum víbrafónleik sínum. Hann hélt leiknum í skoröum — ekki of föstum, og gerði næsta fátt til aö bæla logandi fjör yngri mann- anna. Tónleikar af þessu tagi eru 'þv> miöur of sjaldgæfir. Þaö er enn of algengt aö íslenskir jassleikarar láti sér nægja að iöka kúnst sína í skúmaskotum, í besta falli sem huggulegt tómstundafitl. En sem betur fer eru til menn sem taka jass- leik sinn alvarlega og færa hann fram á tónleikum þar sem góöur jass á einnig heima viö hliö annarrar tón- listar. EM Hví skyldu menn gera það einfalt sem hafamáfíókið? Peter Ponger. Tónleikar pianóloikarans Peters Pongers í Nor- ræna húsinu 20. ógúst. Annaö slagiö rekur hingaö hina og þessa spunamenn, eða improvisa- töra, ýmist á leið yfir Atlantsála eða beinlínis aö sækja eyþjóöina við heimskautsbaug heim án þess aö hyggja í leiðinni á strandhögg annars staöar. Af reynslu þykir jafnan rétt aö taka slíkum heim- sóknum meö hæfilegum fyrirvara. Oft eru þetta karlar sem kunna ansans ári lítið aö spila og eru jafn- vel heldur ekki sniöugir en opinbera þess í staö fátæklegt listfengi sitt meö skrípalátum. Þess vegna er þaö næstum eins og manni bregöi þegar spunamenn birtast sem eitthvaö kunna fyrir sér. Og mér liggur viö aö segja aö mann reki í rogastans þegar um er aö ræöa vel menntaöa músíkanta sem meira aö segja eru ekki feimnir við að beita því sem þeir hafa lært í spuna sínum. Peter Pongertilheyrir þessum frávikshópi. Eins og veðrið á íslandi I látlausri kynningu var þess getið aö Peter Ponger mundi á tón- leikunum „gæla viö lítil stef og lita umhverfið flóknum hljómum”. Mér varö hugsað til uppáhaldssetningar eins af lærimeisturum mínum úr menntaskóla „Warum soll man das einfach machen, was kompliziert geht?” — eða hví skyldu menn gera þá hluti einfalda sem hægt er að hafa flókna? Og eiginlega var ég farinn að trúa á gildi þessa mottós framan af tónleikunum því aö þeir hófust meö um þaö bil hálftímalöngum ópus sem svipaði til samantektar útlend- ingsins á íslensku veöurfari — aö eiginlega væri ekkert veður á Islandi heldur eitt allsherjar samsafn af veðurprufum dag hvern. Já, þetta voru mestanpart samhengislausar glefsur, vaðið úr einu í annaö svo aö útkoman varð heldur lítið spennandi kraöak. En upp birti og.... En eftir þennan langa og lang- dregna inngang var eins og píanist- inn hefði fundiö sjálfan sig — eöa kannski kom bara andinn loks yfir hann og upp frá því spann hann fram nokkrar skemmtilegar lotur þar sem allt kom fram: hversu vel skólaður hann er á hefðbundinn hátt, hversu vel hann er heima í gömlum píanó- meisturum jassins, hversu vel hann þekkir til hefðbundinna spuna- módela og hve rækilega hann forðaöist aö vera bendlaður, í stíl, við meiriháttar jasspíanópostula síns heimalands. Semsé, eftir aö hann hætti aö ein- blína á aö lita flóknum hljómum (sem voru fremur grautarlegir en flóknir) og spilaöi blátt áfram þá bauð Peter Ponger áheyrendum upp á góða skemmtan meö leik sínum. EM John Steinbeck: Mýs og menn. Skáldsaga. Snúið hefur Ólafur Jóhann Sigurðsson. Almenna bókafólagið, 1984. Þær eru margar vistarverurnar í himnaríki eins og í helvíti. Jafn- margar og draumar manna eru margvíslegir. Indíánar sáu fyrir sér óþrjótandi veiðilönd, íslenskir fá- tæklingar eilífan matmálstíma: Otvaldra guðs svo gleðjist geð gestaboðertilreitt, klára vín, feiti, mergur meö mun þar til rétta veitt. Fáráðlinginn Lenna og Georg, fé- laga hans, dreymir hins vegar um lítinn sveitabæ og jaröskika, eina kú og nokkur svín. Þar er rjóminn svo Og höfum kanínur þykkur aö hann hnígur varla. Og kanínur, fjöldi. Þessir kumpánar fara hjá á þjóöveginum meö framtíö í hausnum eins og þúsundir annarra á undan þeim og éftir. Á valdi fag- urra hillinga um nýtt líf. Framtíöar- menn. Þeir fylla flokk farandverka- manna sem flækjast stað úr staö meö draum í farangrinum, draum sem aldrei rætist. Að einu leyti þó ólíkir öörum sem flakka einsamlir, rót- lausir. Þeir eiga hvor annan aö og þola saman súrt og sætt þótt fima ólíkir séu. Eöa eru þeir svo ólíkir? Annar er tröllheimskur risi, bjargar- Bókmenntir Matthías Viðar Sæmundsson laus vegna heimsku, hinn útsjónar- samur væskill sem kann listina aö komast af. Máske þeir dæmigeri tvær hliöar sama mannlífs. Að minnsta kosti er draumur þeirra bundinn hvor öörum, félagsskapn- um. Um leiö og honum lýkur tekur viö martröö og vonleysi. Lífið veröur að víti. Skáldsagan Mýs og menn kom fyrst út áriö 1937 í Bandaríkjunum og varö víöfræg þegar í staö. I dag er hún eitt vinsælasta verk John Stein- becks, marg-filmað enda dramatískt í formi, byggt upp á samtölum og ná- kvæmum sviðsetningum. Sagan ger- ist í Kalifomíu á kreppuárum 4öa áratugarins og lýsir kynnum vinnu- manna á búgaröi einum. Dregnar eru upp áhrifamiklarog átakanlegar myndir af einmanaleika, vináttu, vanmætti, von og sorg. Persónumar eru teiknaöar skýrum dráttum s.s. svertinginn Crooks og Candy meö stýföan úlnliö. Frásögnin öll ljós og einföld en einkennilega mögnuö. Olafur Jóhann Sigurðsson þýddi Mýs og menn upprunalega áriö 1943 en hefur nú búiö skáldsöguna til nýrrar útgáfu og endurskoðað þýð- ingu sína. Verkiö hefur aö mínu viti tekist mjög vel enda er Olafur Jó- hann meö oröhögustu mönnum. Hann hefur valiö þann kost aö sveigja tungutak sögupersóna, sem í frumútgáfunni er fullt af slangi, ambögum og latmæli, aö oröfæri ís- lensks alþýöufólks á kreppuárunum: stílhreinu, kjarngóðu. I sjálfu sér er ekkert viö þaö aö athuga og vandséð aö önnur leiö heföi kallaö á betri árangur. MVS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.