Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Síða 21
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984.
21
Allt
um
ensku
knatt-
spyrnuna
— bls. 34-35
Skaga-
menn bikar-
meistarar
sjá bls.26og31
Pétur Pétursson
— lék sem útherji i fyrri leiknum
en miðvallarspilari í seinni leiknum og stóö sig vel.
Mikið slegist áknattspyrnumóti í Amsterdam:
Pétur skoraði
gullfallegt mark
með skalla
- þegar Feyenoord lék gegn Mineira frá Brasilíu og síðan
skoraði hann aftur gegn landsliði Rúmenfu
Frá Kristjáni Bemburg, fréttamanni DV í Belgíu: —
Pétur Pétursson var heldur betur í sviðsljósinu í Amster-
dam um helgina þegar Feyenoord tók þar þátt í fjögurra
liða móti á Ajax-vellinum ásamt Ajax, rúmenska lands-
liðinu og brasilíska félaginu Atletico Mineira. Pétur
skoraði tvö mörk á mótinu og var annað þeirra afar
glæsilegt skallamark.
Feyenoord lék fyrst gegn Atletico
Mineira og var þaö sögulegur leikur
því að um tíma logaði allt í slags-
málum úti á vellinum milli leikmanna,
en eftir leikinn voru leikmenn eins og
bestu vinir og skiptust á peysum í
mesta bróðerni.
• Pétur Pétursson opnaöi leikinn er
hann skoraði stórglæsilegt skalla-
mark, 1—0, en síöan fór aö hitna í
kolunum þegar línuvörður dæmdi gott
mark af sem knattspyrnukappinn Ed-
er skoraöi fyrir Brasilíumennina. Þeir
náðu síðan að jafna 1—1 með marki
Renalino og þá bætti Everton tveimur
mörkum við, 3—1. Peter Houtman náði
síðan að minnka muninn í 3—2 fyrir
leikslok.
Flauta þurfti leikinn af vegna slags-
mála þegar fimm min. voru til leiks-
loka. Pétur tók ekki þátt í þeim, var
einn af fáum leikmönnum sem reyndi
aðstillatilfriðar.
• Feyenoord lék síðan gegn
rúmenska landsliðinu um þriðja sætið í
keppninni og vann Feyenoord 3—1.
Pétur átti stóran þátt í fyrsta markinu
þegar hann fékk sendingu frá Ruud
Gullit. Pétur lét knöttinn fara til Hout-
man sem var á auðum sjó og skoraði
1—0. Rúmenarnir jöfnuðu 1—1 en svo
skoraði Pétur 2—1 af stuttu færi, eftir
sendingu frá Gullit. André Hoekstra
skoraði síðan 3—1 fyrir Feyenoord.
• Ajax, sem vann rúmenska lands-
liðiö 1—0 í fyrsta leiknum, lék síöan
gegn Mineira til úrslita og komst yfir,
2—0, en Brasilíumennirnir jöfnuðu
þrátt fyrir að þeir væru aðeins tíu.
Olivera var rekinn af leikvelli og þá
meiddist Eder í leiknum. Staðan var
jöfn 2—2 eftir venjulegan leiktíma og
framlengingu. Brasilíumennirnir unnu
síðan vítaspyrnukeppni, 4—3.
-KB/-klp/-SOS.
Stuttgart hóf titil-
vörnina með tapleik
— Öll „íslendingaKðiiT töpuðu íl. umferð Bundesligunnar. Asgeir skoraði
fyrirStuttgart
fyrir Bayer Leverkusen, 4—3, og
Bayer Uerdingen, lið Lárusar Guð-
mundssonar, tapaði á útivelli fyrir
Werder Bremen, 1—0. Lið Magnúsar
Bergs, Eintracht Braunsweig, tapaði á
heimavelli fyrir Köln, 1—3.
Það byrjar illa keppnistimabllið í
Vestur-Þýskalandl hjá islensku leik-
mönnunum. Stuttgart og Ásgeir Sigur-
vinsson töpuðu fyrir Kaiserslautem ó
heimavelli Kaiserslautem. Lokatölur
urðu 2—1 og það var Ásgeir Sigurvins-
son sem skoraði mark Stuttgart úr
vítaspymu scint i lelknum, en hann
var besti maður liðsins og flskaði sjálf-
ur vitaspyrauna. Ándreas Bremhe
skoraði bæðl mörk Kaiserslautem í
fyrri hálfleik.
Fortuna Diisseldorf tapaði á útivelli
Urslitin í leik Stuttgart og Kaisers-
lauten í fyrstu umferðinni voru óvant-
ustu úrslit fyrstu umferðar. öll hin lið-
in, sem voru í efstu sætunum í fyrra,
unnu sina leiki á laugardag. Bayern
Munchen vann Arminia Bielefeld á úti-
velli, 1—3, Hamburger vann Borussia
Dortmund á útivelli, 1—2, og Borussia
Miinchengladbach sigraði Schalke á
heimavelli, 3—1. Frank Mill skoraði
fyrstu þrennuna á keppnistímabilinu.
Hann skoraði öll mörkin fyrir
Miinchengladbach. Þeir Wolfgang
Dremmler, Norbert Nachweih og
Lothar Matthaeus skoruöu fyrir Bay-
ern Miinchen. Mörk Hamburger skor-
uðu þeir Thomas Von Heesen og Felix
Magath.
-SK.
I • Einar Vilhjálmsson, spjótkastarinn snjalli.
I DV-mynd: Ingibjörg Magnúsdóttir.
Tvofalt hja
Einan og Sig-
urði í Swansea
á DP-frjálsíþróttamótinu á laugardaginn |
Frá Pétri Kristjánssyni, frétta-
manni DV íSwansca:
— Einar Vllhjálmsson og Sigurð-
ur Einarsson unnu tvöfaldan sigur
á DP-frjálsíþróttamótinu hér á
laugardaginn þegar þeir kepptu í
spjótkasti. Einar kastaði spjótinu
80,42 m og Sigurður kastaði 74,50
m.
Það var Island, Holland, N-lr-
land og Wales sem tóku þátt í mót-
inu sem lauk með sigri Walesbúa
sem fengu 207,5 stig, landslið Hol-
lands, skipað keppendum undir 23
ára aldri, varð í ööru sæti með 198
stig, Island kom með 161,5 stig og
N-Irland rak lestina með 159 stig.
-PK/-SOS
• Sjá nánar um mótið á
bls. 36.