Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Qupperneq 27
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984. 31 óttir Iþróttir Iþróttir (þróttir íþróttir mí % 1 *■ ■%. ........i ap _ ',*•> íf j „ * #$«$ j ■ Jöfnunarmark Skagamanna í uppsiglingu og það var umdeilt í meira lagi. Guðmundur hafði knöttinn þegar einn Skagamaður sparkaði í andlit hans svo að hann missti knöttinn að hans sögn. Knötturinn fór síðan af olnboganum á Guðmundi í markið. Á myndinni hér að neðan er knötturinn kominn inn fyrir marklínuna og Guðbjörn Tryggvason, Skagamaöur, fagnar markinu. DV-myndir Brynjar Gauti. Jöfnunar- markið var kolólöglegt’ sagði Guðmundur Baldursson, markvörður Fram „Ég var búinn að grípa boltann þegar einn Skagamaður sparkaði framan í mig. Þá sleppti ég takinu á baltanum og rak olnbogann í hann og síðan rúllaöi boltinn yfir marklinuna,” sagði Guðmundur Baldursson, mark- vörður Fram, eftir úrslitaleikinn gegn ÍA í gær á Laugardalsvelli. Jöfnunarmark Skagamanna var umdeilt og eins og oftar í leiknum var slakur dómari hans, Eysteinn Guðmundsson, ekki í aöstöðu til að sjá það sem fram fór. Guðmundur var mjög bólginn í andliti eftir leikinn eftir að hafa fengið skósólann á einum Skagamannanna í andlitiö. „Þaö var alveg hroðalegt að fá þetta mark á sig og ég get ekki skilið hvers vegna dómarinn dæmdi ekki á þetta brot. Þetta var kolólöglegt mark og kostaði okkur bikarinn,” sagði Guð- mundur eftir leikinn. -SK. Sjónvarpið braut samninga! IFærri áhorfendur voru i bikarúrslita- leik KSÍ í gær en reiknaö var meö. Þar Ispilaði bæöi inn i veður, rigning, og svo tilkynning i sjónvarpinu í dagskrárlok á Ilaugardagskvöldiö að íþrittaþáttur yrði kl. 16 á sunnudegi. Þar sem var sagt nær Iberum orðum: „Við sýnum bikarúrslita- leikinn, áhorfendur géðir.” Forráðamenn ÍA og Fram eru óhressir Imeð þessa dagskrárkynningu enda brýt- ur hún samninga milil Rikisútvarps og | KSt um auglýslngu i sjónvarpi á kapp-1 leikjum sem fara fram sama dag. 1™ hh mmm • mmm mmm mmm wmm aJ „Við vorum mun betri” - sagði Jóhannes Atlason, þjátfari Fram „Ég er mjög stoltur yfir minum mönnum. Það var verið að kalla til okkar að við værum að falla í 2. deild en ég átti erfitt með að sjá hvort liðið var í failhættu i þessum ieik. Mínir menn börðust vel í þessum ieik og viö vorum betri aöilinn,” sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Fram, eftir leikinn. „Það var hroöalegt aö fá þessi mörk á sig og andlitið á Guðmundi Baldurssyni segir okkur alla söguna um hvaö skeði í jöfnunarmarkinu. Við- vorum mun betri aðilinn í leiknum og áttum að klára þetta dæmi í síðari hálf- leik,” sagöi Jóhannes Atlason, þjálfari Fram. -SK. „Var aldrei verulega hræddur” — sagði Hörður Helgason, þjátfari Skagamanna „Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með þennan sigur. Þetta var mikill hasarieikur og það er alltaf sérlega skemmtilegt að vinna úrslitaleik í bikarkeppninni,” sagði Hörður Helga- son, þjálfari Skagamanna, eftir að Skagamenn höfðu tryggt sér titilinn. „Þetta var naumt. Eg hefði gjaman viljað fá betri leik. Við höfum ekki getaö æft á grasvelli í um mánaöartima og það hlýtur að koma niður á leik liösins. En þessi sigur i dag byggðist fyrst og fremst upp á góðum leikmönnum, stuöningsmönnum og öilum þeim sem eru í kringum þetta. Ég var aldrei verulega hræddur um að okkur tækist ekki að skora. Við höfum skorað í öllum okkar leikjum í sumar og ég vissi að mínir menn myndu skora þrátt fyrir að jöfnunarmarkið hefði mátt koma fyrrrÉg vil nota tækifærið og þakka Frömurum fyrir mjög góðan leik hér í dag. Þeir eru meö mjög gott lið og alltof gott til að falla í 2. deild. Það eiga þeir svo sannarlega ekki skilið,” sagði Hörður Helgason. -SK. „Við höldum hausþóá móti blási” — sagði Sigurður Halldórsson, miðvördur Skagamanna „Mér fannst það koma vel í Ijós i þessum leik að það sem við höfum fram yfir hin liðin hér á landl er að við höldum haus þó á móti blási um tima. Við unnum þennan leik á reynslu, mik- illi reynslu,” sagði Sigurður Halldórs- son,miðvörðurtA. „Þaö er erfitt að spila gegn Fram. Þeir eru meö sterkt liö og leikmenn liðsins gófu okkur aldrei frið í þessum leik. Þeir eru meö mikið stemmnings- lið. Sigur okkar var sanng jarn og ég vil nota þetta tækifæri og þakka öllum stuðningsmönnum liðsins fyrir frá- bæran stuðning í þessum leik svo og í öUum ieikjunum í sumar,” saeði Sigurður Halldórsson. ‘SK' óttir (þróttir Iþróttir (þróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.