Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 30
ENGLAND
Liverpool missti
niður gott forskot
— komst í 2:0 gegn Norwich, en varð að sætta sig
við jafntefli, 3:3. Mike Channon skoraði
jöfnunarmark Norwich 60 sek. fyrir leikslok
Frá Sigurbirni Aöalsteinssyni, fréttamanni DV í Eng-
landi: — Englandsmeistarar Liverpool hófu titilvörn sína
á Carrow Road, þar sem þeir heimsóttu Norwich. Þar sáu
22.005 áhorfendur Mike Channon skora jöfnunarmark
Norwich 60 sek. fyrir leikslok, úr vítaspyrnu sem hann
fiskaði sjálfur er Mark Lawrenson felldi hanr Inni í víta-
teig. Bruce Grobbelaar átti ekki möguleika á að verja
vítaspymuna.
• Kevin Keegan
Keeganfær
1,9 millj.
— fyrir mánaðar-
starf íMalaysíu
Kevin Keegan, fyrrum leik-
maður Liverpool, Hamburger SV,
Southampton og Newcastle, er nú í
Malaysiu þar sem hann þjálfar
knattspyrnumenn og kennir þeim
galdra knattspyrnunnar. Fyrir
eins mánaðar vinnu fær hann 1,9
milljónir ísl. króna. Keegan lék
með unglingalandsiiði Malaysíu
gegn Pakistan í sl. viku og skoraði
hann tvö mörk með skalla í
leiknum sem voru einu mörkin sem
voru skoruð, 2:0. -SOS
Friðsælt
á Highbury
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi: — Það
urðu nær engin ólæti á Highbury
þegar Arsenal fékk Chelsea í heim-
sókn en áhangendur Chelsea eru
þeir verstu í Englandi. Ástæðan
fyrir því var að leikur félaganna
fór fram á laugardagsmorguninn
kl. 11.30, þannig að áhangendur
Chelsea höfðu lítinn tíma til að
drekka sig fulla eins og þeir eru
vanir. Eitt óhapp skyggði þó á
-teikinn. Ungur áhangandi Arsenal
fannst stunginn í lifur, en hann var
þó ekki í lífshættu.
• Mikil ólæti brutust aftur út í
leik Oldham og Birmingham og
slösuðust þrír lögregluþjónar.
-SigA/-SOS
Áhorfendum
fer enn
fækkandi
Áhorfendum fer enn fækkandi á
knattspyrnuleikjum i Englandi.
458.179 áhorfendur komu til að sjá
leikina á laugardaginn sem er
minnsti áhorfendafjöldi frá seinni
heimsstyrjöldinni. Það var 36.864
áhorfendum færra heldur en á
fyrstu umferðinni í fyrra.
Þaö má segja að Liverpool hafi
fengiö óskabyrjun, Steve Bruce skoraöi
sjálfsmark. Jan Mölby, sem átti mjög
góðan leik með Liverpool, sendi knött-
inn fyrir mark Norwich á 3. mín. þar
sem nýliðinn Bruce, sem Norwich
keypti frá Gillingham á 135 þús. pund
hugðist skalla frá. Heppnin var ekki
með honum því að hann skallaði knött-
inn fram hjá Chris Wood markverði og
í eigið net. Það var svo Kenny Dalglish
sem bætti öðru marki við á 25. mín.,
með þrumuskoti sem hafnaöi efst uppi
í markhorninu. Það voru þeir Phil
Neal, Sammy Lee og Paul Walsh sem
höfðu þá brotist í gegnum vörn
Norwich.
ÚRSLIT
Úrslit urðu þessi í ensku knattspyrn-
unni á laugardaginn:
1. DEILD:
Arsenal-Chelsea 1—1
Aston Villa-Coventry 1—0
Everton-Tottenham 1—4
Leicester-Newcastle 2—3
Luton-Stoke 2-0
Man. Utd.-Watford 1—1
Norwich-Liverpool 3—3
QPR-WBA 3—1
Sheff. Wed.-Nott. For. 3—1
Sunderland-Southampton 3-1
West Ham-Ipswich 0-0
2.DEILD:
Cardiff-Charlton 0-3
Carlisie-Brighton 0—3
C. Palace-Blackburn 1—1
Fulham-Shrewsbury 1—2
Grimsby-Barnsley 1-0
Huddersfield-Oxford 0—3
Notts C.-Leeds 1—2
Oldham-Birmingham O-l
Portsmouth-Middlesb. 1—0
Wlmbledon-Man. City 2-2
Wolves-Sheff. Utd. 2—2
3. DEILD:
Bournemouth-Derby 1—0
Bolton-Bristol R. 0—1
Bradford-Cambridge 2—0
Brentford-Orient 0-1
Bristol C.-Wigan 2-0
Burnley-Plymouth 1—1
Gillingham-Newport 1—1
Lincoln-Hull 0-0
Millwall-Swansea 2—0
Preston-Doncaster 2-0
Reading-Rotherham 1-0
York-WalsaU 1-1
4.DEILD:
Chester-Scunthorpe 1-1
Chesterfield-Aldershot 2—1
Colchester-Southend 3—3
Crewe-Torquay O-ú
Darlington-Bury 1—1
Exeter-Northampton 5-0
Halifax-Blackpool 0-2
Peterborough-Tranmere 1—0
Port Vale-Mansfield O-l
Rochdale-Hereford 0-1
Stoekport-Hartlepool 4-1
Swindon-Wrexham 2—1
Peter Mendham náöi aö minnka
muninn í 1:2 og rétt á eftir fengu leik-
menn Norwich vítaspyrnu, sem John
Deehan tók, en spyrna hans fór yfir
mark Liverpool.
Norwich náði síðan að jafna metin.
Mike Channon sendi þá knöttinn fyrir
mark Liverpool, en mistök Grobbelaar
urðu til þess að Keith Bertschin náði
knettinum og skoraði 2:2.
Phil Neal kom síðan Liverpool yfir
3:2 á 67. mín., er hann skoraði úr víta-
spyrnu — sendi Wood í öfugt horn. Allir
reiknuöu með að sigur Liverpool væri í
höfn en svo var ekki. Mike Channon
jafnaði metin úr vítaspyrnu eins og
fyrr segir.
-SigA/-SOS pool.
• Mike Channon — gamla kempan hjá Norwich, sýndi snjalla takta gegn Liver-
Callaghan var
het ja Watford
— tryggði LundúnaHðinu jafntefli, 1:1, á Old Trafford á elleftu stundu
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi:
— Manchester United varð að sætta
sig við jafntefli 1—1 gegn Watford á
Old Trafford þar sem 53.668 áhorfend-
ur sáu Nigel Callaghan tryggja
Lundúnaliðinu jafntefli á síðustu
minútu leiksins. Það var Lee Sinnot
sem sendi þá knöttinn fyrir mark
United þar sem hlnn hávaxni George
Reilley var á réttum stað og skallaði
hann knöttinn fyrir Gary Bailey, mark-
vörð United — til Callaghan sem skor-
aði með skalla.
Watford byrjaði leikinn af miklum
krafti og fengu þeir Luther Blissett og
John Barnes gullin tækifæri til að
skora en þeim brást bogalistin. Smátt
og smátt komust leikmenn United inn í
leikinn og á 20. mín. fengu þeir víta-
spyrnu þegar Steve Sherwood, mark-
vörður Watford, felldi Gordon
Strachan. Línuvöröurinn veifaði rang-
stöðu á Jesper Olsen en dómarinn fór
ekki eftir því og dæmdi vítaspyrnu sem
Strachan skoraði sjálfur úr —1—0.
Það var annars fátt um fína drætti í
leiknum.
Chelsea byrjaði eins og
mylluvængir
Leikmenn nýliöa Chelsea byrjuöu á
miklum krafti gegn Arsenal á
Highbury og í byrjun þurfti Pat Jenn-
ings, markvörður Arsenal, sem lék án
Charlie Nicholas og Graham Rix, að
slá knöttinn fimm sinnum frá marki.
Leikmenn Chelsea byrjuðu eins og
mylluvængir en síöan rann móðurinn
af þeim og Arsenal kom inn í myndina.
Arsenal fékk aukaspyrnu á 37. mín.
sem Kenny Sansom tók og sendi hann
knöttinn fyrir mark Chelsea. Þar var
JKB • Nigel
Challagan
— skoraði
■ jöfnunarmark
gi . Jj| Watford.
Tony Woodcock sem skallaði knöttinn
laglega til Paul Mariner sem skoraði
1—0. Aðeins þremur mín. seinna var
Kerry Dixon búinn að jafna metin —
hann komst á auðan sjó og skaut.
Jennings varði en missti knöttinn frá
sér og til Dixon sem skoraði —1—1.
Eftir þaö dofnaöi yfir leiknum en
þeir Woodcock og Viv Anderson fengu
færi á að skora fyrir Arsenal sem ekki
nýttust. Áhorfendur voru 45.329.
Stainrod skoraði tvö
QPR vann góöan sigur 3—1 yfir WBA
á Loftus Road. Það var Simon Stainrod
sem kom Lundúnaliöinu á bragðið —
skoraði tvö mörk sem voru bæði hálf-
gerð potmörk, á 6. og 8. mín. leiksins.
Leikmenn WBA komu síðan meira inn í
leikinn en tókst ekki að brjóta niður
sterkan varnarmúr Rangers. Terry
Fenwick, fyrirliði Rangers, bætti við
marki (3—0) á 65. mín. beint úr auka-
spymu en undir lokin skoraði Steve
McKenzie mark fyrir Albion.
•Alan Mullery, framkvæmdastjóri
Rangers, sagði að sinir leikmenn hefðu
byrjað vel en síðan slakaö á eftir að
hafa verið komnir í 2—0. — Viö vorum
heppnir aö Albion jafnaði ekki, sagði
Mullery sem var mjög ánægöur með
Stainrod: — Hann var mjög fljótur í
leiknum.
Aðeins 12.802 áhorfendur sáu leikinn.
Markverðir í aðalhlutverki
19.032 áhorfendur voru á Upton Park
þar sem West Ham og Ipswich gerðu
jafntefli. Það voru markverðimir Paul
Cooper hjá Ipswich, sem varði oft stór-
glæsilega, og Tom McAliister hjá West
Ham sem voru í aðalhlutverkunum og
komu í veg f yrir að mörk væm skoruö.
•Alan Sunderland hjá Ipswich meidd-
ist í leiknum og verður frá næstu leiki.
•Viö nýttum færin okkar illa, sagði
John Lyall, framkvæmdastjóri West
Ham, sem sagðist vera að byggja upp
nýtt liö. Gömlu brýnin Trevor Brook-
ing, John Bond og Frank Lampard eru
hættir að leika með „Hammers”.
Cowans aftur með
Gordon Cowans lék aftur með Aston
Villa sem marði sigur 1—0 yfir
Coventry. 20.970 áhorfendur sáu Des
Brenmer skora markið. -SIGA/-SOS
Fyrsti leik-
urinn í
þrjú ár
Phil Parkes, markvörður West |
Ham, mun missa fyrstu fimm leiki _
| „Hammers” í 1. deildar keppninni |
þar sem hann hefur ekki náð sér ■
I eftir uppskurð á hné. Tom I
IMcAlister varði mark félagsins I
gegn Ipswich á laugardaginn og *
Ivar þaö fyrsti deildarleikur hans í |
þrjú ár. J
ENGLAND
ENGLAND
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984.
ENGLAND
ENGLAND
ENGLAND
ENGLAND
ENGLAND