Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Síða 31
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984.
35
E iNGLAND E iNGLAND wgl!l ENGLAND Íml
ENGLAND
Mike Robinson
vill fara f rá
Liverpool
— Hodgson seldur til Sunderland
Frá ' 'Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi: — Mike
Robinson, miðherji Liverpool, sem var
ekki einu sinni á varamannabekknum
gegn Norwich, hefur óskað eftir því að
vera settur á sölulista — hann vill fara
frá Liverpool.
Liverpool hefur selt Dave Hodgson
til Sunderland á 125 þús. pund og nú
bendir allt til að Craig Johnston fari til
Chelsea. Johnston er nú í Ástralíu —
fékk frí til að vera hjá konu sinni sem á
von á barni í október.
-SigA/-SOS.
Crooks til
Portúgal
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi: — John
Toshack, fyrrum framkvæmdastjóri
Swansea, sem er nú þjálfari
portúgalska félagsins Sporting
Lissabon, hefur boðið Tottenham 100
þús. pund fyrír blökkumanninn Garth'
Crooks og vili hann fá 150 þús. pund
fyrir hann. Það er reiknað með að
Sporting sé tilbúið að greiða þá upp-
hæð.
Miklar likur eru á að fleiri leikmenn
fari frá Tottenham.
• Southampton hefur augastað á
Gary Brooke hjá Tottenham og hefur
félagið boðið 30 þús. pund í hann. Tott-
enham vill fá meiri peninga.
• Brighton hefur boðið Tottenham
50 þús. pund í Gary O’Reilly.
-SigA/-SOS.
»Garth Crooks
Everton f ékk stóran
skell á Goodison Park
— þegar Tottenham kom þangað í heimsókn. Clive Allen skoraði tvö mörk fyrir nýja félagið sitt
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni —
fréttamanni DV í Englandi: — Ég er
mjög ánægður með þennan sigur. Ég
hef verið þjálfari hjá Tottenham í þrjú
ár og man ekki eftir að við höfum unnið
4—1 á útivelli, sagði Peter Shreevers,
nýi framkvæmdastjórinn hjá Totten-
ham, sem sagðist hafa verið mjög
ánægður með Clive Allen sem skoraði
tvö falleg mörk í leiknum.
35.630 áhorfendur voru saman-
komnir á Goodison Park og roggnir
leikmenn Everton héldu smásýningu
fyrir leikinn — hlupu inn á með FA-
bikarinn og góðgerðaskjöldinn, einnig
FA-bikar unglinga. Þeir byrjuðu síðan
leikinn á fullum krafti — og á 16. mín.
fengu þeir vítaspyrnu er Paul Miller
handlék knöttinn eftir skot frá Adrian
Heath semtóksjálfurvítaspymunaog
skoraöi 1—0. Adam var ekki lengi í
Paradís því að Tottenham gerði út um
leikinn meö f jórum mörkum.
Mark Falco skoraði fyrst á 38. mín.
—1—1, eftir sendingu frá Mike Hazard
og síöan bætti Clive Allen marki við
eftir að hafa leikið laglega á sex leik-
menn Everton. Hinn nýliðinn, John
Chiedozie, sem Tottenham keypti á 375
þús. pund frá Notts. County, skoraði
3—1 eftir sendingu frá Falco á 52. mín.
og síðan gulltryggði Allan sigurinn á
56. mín., en hann var óheppinn aö
skora ekki þrennu í leiknum.
Hlaup og spörk
Leikmenn Sheffield Wednesday, sem
leika ekki skemmtilegustu knatt-
spymuna á Bretlandseyjum, hlupu
hreinlega yfir leikmenn Forest og
unnu 3—1. Sheff. Wed. notar þá
leikaðferð að sparka knettinum fram
og hlaupa. Þeir náöu að skora á 19.
mín. Mel Sterland tók þá vítaspymu
og skoraði en öllum til undrunar
dæmdi dómarinn markið ekki gilt þar
sem einn leikmaður Forest hafði staðið
á vítateigslínu. Sterland tók spyrnuna
aftur og skoraði ömgglega 1—0.
Forest náði aö jafna 1—1 á 37. mín.
og var markiö besta atriði leiksins.
Tevor Christie lék þá skemmtilega í
gegnum vörn Sheff. Wed. og sendi
knöttinn til Peter Davenport sem skor-
aðil—1.
Leikmenn Wednesday gerðu siðan út
um leikinn í seinni hálfleik. 18 þús. á-
horfendur sáu þá Imrie Varadi og
varamanninn John Pearson skora.
„Fengum spark
í afturendann"
— Leikmenn Sunderland gáfu okkur
heldur betur spark í afturendann. Við
vomm of linir, sagði Lawrie
McMenemy, framkvæmdastjóri
Southampton, eftir að Sunderland
hafði unniö 3—1. — Sunderland er með
gott lið og það er greinilegt aö Len
Ashurst hefur komið meö nýtt and-
rúmsloft á Roker Park, sagði
McMenemy.
Sunderland kom skemmtilega á
óvart með því að sýna góðan leik og
vinna sanngjaman sigur 2—0. Gary
Bennett, sem félagið keypti frá
Cardiff á 65 þús. pund, skoraði 1—0 á 2.
min. og síðan bætti Barry Wenison
marki við á 8. mín. eftir að hafa
hlaupið 45 m með knöttinn og skorað.
• Clive Allan — skoraði tvö mörk fyrir
Tottenham.
Mark Proctor bætti við 3—0 á 72. min.
úr aukaspymu en Dave Armstong
náði aö minnka muninn fyrir
Dýrlingana.
Peter Shilton, Mike Mills, Joe Jord-
an og Dave Armstrong léku ekki vel
með Southampton — ollu vonbrigðum.
18.006 áhorfendur sáu leikinn.
Góður sigur Luton
Aöeins 8.626 áhorfendur sáu Luton
vinna góöan sigur 2—0 yfir Stoke. Það
var Steve Elliott, sem Luton keypti frá
Preston, sem skoraði fyrst á 3. mín.
Nýliðar Palace
héldu jöfnu...
Nfu nýir leikmenn léku með Crystal Palace undir stjórn Steve Coppell
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi: — Aðeins
6.764 áhorfendur sáu gjörbreytt lið
Crystal Palace ná jöfnu á heimavelli
1—1 gegn Blackburo í 2. deildarkeppn-
inni. Nýi framkvæmdastjórinn Steve
Coppell tefldi fram níu nýjum leik-
mönnum. Leikmenn Palace voru
óöruggir í byrjun en eftir að Chris
Thompson hafði skorað fyrir
Blackbura, fóru þeir af stað og léku
skemmtilega knattspyrau. Það var
Alan Irvine, sem Coppell keypti frá
Everton fyrir 30 þús. pund í sl. viku,
sem átti stórleik og átti hann heiðurinn
af jöfnunarmarkinu sem Stan Cumm-
ings skoraði.
• Huddersfield náði rétt að skrapa
saman í lið gegn Oxford þar sem fimm
leikmenn voru meiddir. Nýliöar
Oxford í 2. deild unnu 3—0.
• 19 ára táningur, Tommy Wright,
tryggði Leeds sigur gegn Notts County
— með tveimur mörkum. Rachid
Harkouk skoraði fyrir County. Aðeins
3.600 áhorfendur sáu leikinn.
• Ulfarnir misstu niöur 2—0 fomstu
gegn Sheff. Utd. í 2—2 jafntefli. Alan
Dodd og Tommy Langley skomðu fyrir
Ulfana, en Keith Edvards og Kevin
Arnott jöfnuöu fyrir Sheffield sem var
nær sigri.
• Steve Evans og Glyn Hodges
skoruðu fyrir Wimbledon en Tony
Cunningham og Derek Parlane náöu
aö jaf na f yrir City 2—2.
-SigA/-SOS.
eftir að hafa brotiö á Peter Fox, mark-
veröi Stoke.
Allan Hudson hjá Stoke átti snilldar-
leik en það dugði ekki því að Luton
bætti við marki á 65. mín. Brian Stein
lék þá á tvo vamarleikmenn og sendi
knöttinn til Frankie Gunn sem skoraði
2—0. Gunn lék að nýju eftir langa hvíld
vegnameiðsla.
Gott hjá Newcastle
Það var ekki hægt að sjá að
Newcastle saknaði Kevin Keegan þeg-
ar félagið vann sigur 3—2 yfir Leicest-
er á Filbert Street þar sem 18.636
áhorfendur voru samankomnir.
Leicester lék án þriggja fastamanna,
sem voru meiddir, Kevin McDonald,
Andy Peake og Ian Wilson. Newcastle
var betra liðið og eftir aðeins tvær mín.
var Steve Caraey búinn að skora —
0—1. Gary Lineker jafnaði 1—1 á 38.
mín. en í upphafi seinni hálfleiksins
skoraði David McCreery 1—2 en
Lineker jafnaöiaftur2—2. Þaðvarsvo
Chris Waddle sem skoraði sigurmark
Newcastle á 87. mín. eftir herfileg mis-
tök Mark Wallington, markvarðar
Leicester. Eftir leikinn varð Gordon
Milne, framkvæmdastjóri Leicester,
æfur vegna mistaka Wallington.
Newcastle lék með þrjá sóknarleik-
menn og átti Kenny Wharton, sem
hefur tekið stöðu Keegan, stórleik. Þá
voru þeir Peter Beardsley og Waddle
mjög góðir.
-SigA/-SOS.
Southall lék
tábrotinn
Neville Southall, markvörður Everton,
leikur þessa dagana tábrotinn. Það
kom fram í sl. viku að hann var tábrotinn
þegar hann lék gegn Liverpool á
Wembley á dögnnum — og tábrotinn
mátti hann hirða knöttinn fjórum
sinnum úr netinu hjá sér á Goodison
Park á laugardaginn þar sem Totten-
ham vann stórsigur, 4:1.
-SOS
Okkar maður
í Englandi
Sigurbjöm Aðalsteins-
son skrifar frá London
• Mo Johnston
Johnston
áf ram hjá
Watford
Frá Sigurbirni Alalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi: Mo
Johnston, hinn marksækni leik-
maður Watford sem hefur viljað
fara frá félaginu, ákvað fyrir
helgina að vera áfram í London og
leika með Watford. — Ég er mjög
ánægður með að fá tækifæri til að
leika við hliðina á Luther Blissett,
sagði Johnston, en Watford hefur
keypti Blissett frá AC Milanó á 550—
þús. pund, þannig að félagið hefur
grætt 450 þús. pund á að selja Bliss-
ett til ttalíu.
-SigA/-SOS
QPRvill
f á Regis
Alan Mullery, framkvæmdastjóri
QPR, hefur boðið WBA 350 þús.
pund fyrir blökkumanninr
Cyrille Regis. Albion vill fá 500 þús.
pund fyrir hann.
Bernd
Schust-
erfrá
Barcelona?
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni —
fréttamanni DV í Englandi: Terry
Venables, framkvæmdastjóri
Barcelona, sem er nú orðinn mjög
vinsæll á Spáni hjá áhangendum
félagsins, vill losa sig við V-Þjóð-
verjann Berad Schuster.
Venables vill fá Terry Fenwich,
fyrirliða QPR, til Barcelona en
Lundúnafélagið vill ekki láta hann
fara. — Okkur vantar sterkan mið-
vörð, sagði Venables.
ENGLAND E iNGLAND ENGLAND
ENGLAND