Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Side 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Einingar-
leiðtoga
veitt sak-
aruppgjöf
Höföu ekki sama tölvu-
öryggisútbúnaö f Bho-
pal og í Bandaríkjunum
Eugeniusz Szumiejko, einn
hulduleiðtoga hinna bönnuðu
verkalýðssamtaka Einingar, gaf
sig fram við pólsk yfirvöld í gær.
Samkvæmt löggjöf um sakarupp-
gjöf var honum sleppt eftir yfir-
heyrslur.
Szumiejki er háttsettasti huldu-
leiðtogi Einingar sem hefur gefið
sig fram. Hann hafði farið huldu
höfði síðan Eining var bönnuð 1981.
Að sögn þeirra sem til þekkja tók
hann sakaruppgjöfina af persónu-
legum ástæðum. Faðir hans er meö
krabbamein.
Um leið og hann gaf sig fram
lýsti Szumiejko því yfir að hann
segði af sér sem einn af fimm leið-
togum TTK, neöanjaröarsamtaka
sem stofnuð voru þegar Eining var
bönnuð.
Indlandsstjórn kappkostar að hraða
hjálparstarfi við borgina Bhopal, þar
sem 2000 hafa farist af völdum eitrun-
ar vegna gasleka frá eiturefnaverk-
smiöju.
Læknar streyma til Bhopal víðs veg-
ar af Indlandi, en hundruð manna bæt-
ast daglega í hóp þeirra sem leita á
náöir sjúkrahúsanna. — Vitað er um
100 þúsund manns sem hlotið hafa ein-
hverja læknisaöstoö en ætlað er að 150
þúsund hafi orðið fyrir eituráhrifum.
Menn kvíða því aö dánartalan eigi
eftir að hækka enn verulega í þessari
700 þúsund manna borg.
Sex yfirmenn verksmiðjunnar sitja í
gæsluvarðhaldi en grunur leikur á að
vanræksla hafi valdið slysinu. Varsla
er höfö um verksmiöjuna svo að ekki
verði hróflað þar viö neinu þar til rann-
sókn hefur fariö fram.
Bandarískur framkvæmdastjóri frá
Union Carbide, eiganda indversku
verksmiðjunnar, kom til Bhopal í gær
og ætlaði að fara í verksmiðjuna en var
meinaö aö fara þangað inn.
Einn aöalforstjóra Union Carbide, sá
sem hefur með heilbrigðis- og um-
hverfismálin aö gera, Jackoson
Browning, lét eftir sér hafa í Banda-
ríkjunum í gær að til væri tölvuörygg-
isbúnaöur, notaður í systurverksmiöju
í Bandarikjunum, er hefði getað varaö
menn við biluninni í Bhopal. — En það
hafði dregist að ákveöa hvort slíkum
búnaði yrði komið þar upp. Viðgerðar-
þjónusta við slíka tækni er ekki til í
Indlandi og hörgull á varahlutum.
Warren Woomer, fyrrum forstjóri
Bhopal-verksmiðjunnar, sem meinuð
var aðganga að verksmiðjunni í gær,
sagði að þeir hjá Union Carbide við-
hefðu allar sömu öryggisráðstafanir í
Bhopal eins og í bandarísku systur-
verksmiðjunni í V-Virginíu, sem væri
aö vísu stærri verksmiðja.
Búist er viö því aö krafist verði
skaðabóta af Union Carbide vegna
slyssins en forráðamenn félagsins
telja þaö vel tryggt fyrir slíku.
Opið laugardag frá kl. 10 — 4
Mest fyrir penmgana!
bIlabörg hr
Smiðshöfða 23 sími 812 99
Við bjóðum velkomna þá, sem hafa hug á að skipta sínum
bíl upp í nýlegri MAZDA bíl.
Sýnishorn úr söluskrá:
GERÐ ÁRG. EKINN
626 2000 4 dyra v/s ’82 43.000
626 2000 4 dyra sj.sk. v/s '82 30.000
626 2000 4 dyra sj.sk. v/s '82 20.000
929 4 dyra HT sj.sk. v/s '80 56.000
929 4 dyra LTD sj.sk. v/s '82 38.000
929 4 dyra SDX sj.sk. v/s '82 66.000
929 Station sj.sk. v/s '82 35.000
929 Station '82 21.000
929 2 dyra HT LTD sj.sk. v/s ’82 29.000
E 1600 sendibfll '81 69.000
GERÐ ÁRG. EKINN
323 1400 5 dyra sj.sk. '79 67.000
323 1300 5 dyra '81 39.000
323 1300 Saloon '81 60.000
323 1300 Saloon sj.sk. '81 66.000
323 1500Saloon '81 45.000
323 1300 3 dyra '82 53.000
323 1300 3 dyra '83 23.000
626 1600 4 dyra '80 72.000
626 1600 4 dyra '81 53.000
626 2000 4 dyra '82 35.000
BÍLAR í ÚRVAU!
Við höfum til sölu glæsilegt úrval notaðra MAZDA bíla í sýn-
ingarsal okkar. Allir bílarnir eru í 1. flokks ástandi og þeim fylgir
6 mánaða ábyrgð frá söludegi.
Athugið að gamla verðið er enn í fullu gildi.
■
Líkum var raðað hlið við hlið eftir eiturgaslekann mikla í Bhopal.
Scargill tókst ekki
að breiða
útverkfallið
Breskum námamönnum mistókst í
gær að fá hin almennu samtök launa-
manna til að útbreiða verkfall sitt.
Arthur Scargill, leiðtogi námamanna,
ræddi við leiðtoga Samtaka verkalýðs-
félaga í sex og hálfan tíma en gat ekki
fengið þá á sitt band.
Scargill vildi fá önnur verkalýðsfé-
lög til að fara í samúðarverkföll fyrir
námamenn. Samtök verkalýðsfélaga
lofuðu honum „fullum stuðningi”, en
það virðist ekki þýða að þau ætli í verk-
fall fyrir hann.
Um tveir þriðju hinna 181.000 kola-
námamanna eru í verkfalli. Nokkuð
var um að verkfallsmenn sneru aftur
til vinnu fyrr í vikunni en sú þróun hef-
ur stöövast.