Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Blaðsíða 35
DV. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER1984. 43 Lýsi hf. kostar 8-10 millj. til rannsóknarstarfa Lýsi M. hefur ákveöiö aö standa straum af kostnaði á rannsóknum á áhrifum fjölómettaöra fitusýra í lýsi á blóðrás og starfsemi hjartavööv- ans. Áætlað er að kostnaöurinn veröi 8 til 10 milljónir og verkið taki um 2 til 3 ár. Samningur var geröur á milli Lýsis hf. og dr. Sigmundar Guöbjarnasonar prófessors um rannsóknir og vöruþróun. Einnig nýtur Lýsi hf. samstarfs viö Raunvísindastofnun Háskólans og Rannsóknastofnun fiskiönaöarins sem hefur veitt afnot af aöstööu stofnunarinnar til tilraunafram- leiöslu. Samstarf Lýsis hf. og dr. Sigmundar er tvíþætt: Annars vegar er sameiginleg þróun aöferöa til aö vinna tiltekin hollustuefni úr lýsi og gera þau aö markaðsvöru. Hins vegar beinast rannsóknir dr. Sigmundar að áhrifum þessara hollustuefna á dýr og menn, einkum með tilliti til hjartasjúkdóma. Fara þessar rannsóknir fram á Raunvísindastofnun Háskólans. Steinar Berg Björnsson, fram- kvæmdastjóri Lýsis hf., sagði aö hrá- efnisverð væri sífellt að veröa minni þáttur í söluveröi lýsis og Islendingar þyrftu aö nýta þá þekkingu sem til væri í landinu til að bæta samkeppnisstöðu á erlendum mörkuðum. Lýsi hf. selur nú í stórum umbúðum á erlendan markað — í tunnum — og sagöi Steinar að þaö væri ekki til fram- búöar heldur yröi aö bregöast viö þróun markaðsins meö aukinni sölu í neytendaumbúöum og meö þróun annarra markaðshæfra hollustuvara úr lýsinu. Steinar sagöi aö fyrsta Ný aðferð við geymslu og vinnslu lifrar Rannsóknastofnun fiskiönaöarins hefur aö undanfömu unniö aö rannsóknum á nýjum aðferöum viö geymslu og vinnslu lifrar úr þorski og ufsa. Grímur Valdimarsson, forstööu- maöur Rannsóknastofnunar fisk- iönaöarins, sagöi aö 60 þúsund tonnum af úrgangi væri hent árlega en úr honum væri hægt aö vinna hrá- efni upp á 200—300 milljónir króna. Aðeins lítill hluti þeirrar lifrar sem til fellur er nýttur en nokkur þróun hefur oröiö seinustu árin vegna söfnunar á slógi meö lifur til meltu- gerðar. Ur meltunni er síðan unniö lýsi í skilvindum. Ef þannig er aö verki staðið verður þó ekki hjá því komist aö lýsiö súmi nokkuð og taki í sig lit og lykt úr slóginu svo aö gæöi lýsisins verða eftir því. Rannsóknirnar sýna að góður árangur næst ef lifrin er slitin frá slóginu um leiö og slægt er en síðan tætt og sýrð með 1,5—2 prósent maurasýru. Þannig geymist hún svo til óskemmd í mánuö við hitastig undir 15 gráöum á celsíus. Áöur en lýsisvinnslan fer fram er nokkur upphitun nauðsynleg, til dæmis staöa viö 20 gráöa hita yfir nótt og þar á eftir íhrærsla og upphitun viö 60 gráða hita í 1/2 klst. áður en skilið er. Þaö sem gerist við upphitunina er aö lífhvatar lifrarinnar melta hana viö hagstætt sýrustig og losa um lýsið. Aö svo búnu má skilja lifrarmassann beint í skilvindu, og er þaö einfald- ast, en einnig má vinna lýsið meö gufubræðslu. Af tilraunum, sem geröar hafa veriö á vegum Rannsóknastofnunar fiskiönaöarins, má draga ýmsar ályktanir: Grófhökkuð lifur meltist ekki neitt betur við 30 gráöa hita á hálfum mánuöi en einum sólarhring. Bæði íhrærsla og fínhökkun er til bóta. Bestur árangur næst ef maura- sýrunni er blandaö í tætta lifrina skömmu eftir slægingu. Sýringin hefur engin sjáanleg áhrif á víta- míninílýsinu(AogD). -JI. Boeing 727-þota Arnarflugs á flugvelli I Túnis síðastliðiO sumar. Arnarflug: Keypti og seldi flugvél sama dag Amarflug keypti og seldi sömu flug- vélina síöastliöinn föstudag og græddi á því nálægt 14 milljónir íslenskra króna. Arnarflug hefur verið í leiguflugi aö undanförnu. Eftir að verkefni því lauk í október ákvað félagið að nýta sér kauprétt á Boeing 727-fiugvélinni sem leigö haföi verið til þessa flugs. Sama daginn geröi svo flugfélagið samning varan væri væntanleg á markaöinn upp úr áramótum en það væru víta- mínbelgir, unnir úrlýsi. Dr. Sigmundur sagði að í lýsi væru tvær fjölómettaðar fitusýrur sem væru sérstaklega áhugaveröar með tilliti til æöa- og hjartasjúkdóma. Önnur þessara fitusýra er kölluö EPA og hindrar hún samloöun á blóöflögum, tefur fyrir blóðstorknun og gæti þannig tafiö eöa hindraö myndun blóðtáppa. Hugsanlegt er aö EPA geti komið í veg fyrir myndun kransæöaþrengsla. Hin fitusýran kallast DHA og virðist geta dregiö úr hættu á banvænum hjartatitringi. Þessi fitu- sýra er nauösynleg fyrir eölilega starfsemi taugakerfis og er í heila og taugum manna en hlutverk þessa efnis er óþekkt. Dýratilraunir gefa til kynna aö DHA tefji myndun efna sem valda samdrætti í æðaveggjum, hún stuöli aö slökun æðaveggja og auknu blóöstreymi og minnki þannig hættu á hjartatitringi og skyndilegum hjartadauöa. Lýsi hf. væntir þess að sú áhætta, sem fyrirtækið leggur í meö samningi þessum, eigi eftir aö opna fyrirtækinu nýja framleiöslumögu- leika og verðmætisaukningu á lýsi og vörum úr því til hagsbóta fyrir fyrir- tækiö, rannsóknarstarfsemina viö Háskóla íslands, sjómenn og útvegs- menn, sem afla hráefnisins, og ekki síst fyrir neytendur. Dr. Grimur Valdimarsson, for- stöðumaöur Rannsóknastofnunar fiskiönaðarins, sagöi aö nú væri um 60 þúsund tonnum af úrgangsefnum hent í sjóinn á ári hverju en vinna mætti úr þessu hráefni verömæti upp á200—300milljónirkróna. -JI. - Wmm Félag tamningamanna sýnir hlýðni og þjálfun íslenska hestsins á hestadögum. Ljósmynd EJ. Hestadagar á myndband Hestamannafélagiö Andvari í Garðabæ hélt hestadaga í Garöabæ dagana 18.—20. maí síðastliðinn. Þar var íslenski hesturinn sýndur í ýmsum atriðum. Tilgangurinn meö sýningunni var aö kynna almenningi hesta og hestamennsku eins og hún gerist best hér á landi, ásamt því að benda á þátt íslenska hestsins í sögu og menningu þjóöarinnar frá fornu f ari. Umsjónarmenn sýningarinnar hafa veriö svo forsjálir aö taka sýninguna upp á myndband og hafa nú gefið þessa spólu út. Isfilm sá um myndun en um- sjónarmenn eru þeir Eyjólfur Isólfs- son, sem sá um skipulagningu á hesta- dögum, og Guömundur Pétursson. Hjalti Jón Sveinsson sér um texta og lestur. Þessi mynd er hvalreki á fjörur um sölu vélarinnar fyrir hærra verö en hún var keypt á. Kaupverö flugvélarinnar var 2.378.500 dollarar, en söluverö 2.725.000 dollarar. Er mismunurinn um 350 þúsund dollarar eöa nálægt 14 milljón- umíslenskrakróna. Hér er um aö ræða farþegaþotu meö sæti fyrir 124 farþega. -KÞ Viðskiptasamningur Reykjavík — Berlín Nýlega var gengið frá sam- komulagi milli Islands og Sambands- lýöveldisins Þýskalands um við- skiptamál. Með samkomulaginu er felldur niður viöskiptasamningur milli land- anna frá 1954 sem orðinn var úreltur vegna viöskiptasamnings Islands og Efnahagsbandalags Evrópu. Er gert ráð fyrir því í samkomu- laginu aö viöskiptamál, sem snerta hagsmuni beggja aöda, veröi fram- vegis rædd í sameiginlegri nefnd sem ríkisstjórnimar skipa fulltrúa í og koma mun saman þegar aðilar óska þess. CM K> hestamanna. Þama koma fram flestir helstu knapar á Islandi í dag og auk þess margir mestu gæðingamir. Hjalti Jón Sveinsson les inn á spóluna nafn allra knapa og hesta jafnóöum og gefur þaö myndinni aukiö gildi. Atriöin á spólunni eru: 7 afreks- hestar, konur í söðlum, 3 Evrópumeist- arar, Félag tamningamanna, Hreggviöur/Fróöi, hindrunarstökk, kappreiðavekringar, Náttfari meö afkvæmi, tískusýning hestamanna o.fl. Þaö er gaman fyrir þá áhugamenn um hestamennsku, sem ekki gátu komið á hestadaga í Garðabæ í maí síðast- liðnum, aö eignast þessa spólu og kynnast því sem þar fór fram. Ekki er síöur gaman fyrir þá sem komu aö rifja uppsýninguna. -EJ. — UD = 03 33 fO ro fo C/) c» oo 5 gg* OJ O 7! 5‘ c m ro w OO oo 03

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.