Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER1984.
9
Útlönd Útlönd
LivUUmann: skotmark fíkniefnasmyglara?
Attiað
myrða Liv
Ullmann?
Bandaríska leyniþjónustan CIA
stöðvaði Liv Ullmann er hún ætlaði að
stíga upp í flugvél á leið til Kolombíu í
síðustu viku. Að sögn norska Dagblaðs-
ins hafði CIA komist á snoðir um að
gerð yrði tilraun til að myrða hana í
Kolombíu.
Liv var að ferðast á vegum Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þegar
blaðið náði sambandi við hana sagði
hún að ferðinni hefði verið aflýst um
það leyti sem hún var að stíga um borð
í vélina. Meira mætti hún ekki seg ja.
Dagblaðið hefur það eftir heimildar-
mönnum að kólombískir fikniefna-
smyglarar hafi ætlað aö drepa Liv.
Þeir hafi hótað aö drepa 10 Ameríkana
fyrir hvern einn þeirra sem framseld-
ur er til Bandaríkjanna. Talið er að 60
prósent afmaríujúanainnflutningi til
Bandaríkjanna komi frá Kólombíu og
75 prósent af kókaíninnflutningi.
FLUGRÆNINGJAR
HAFA DREPK)
FIMM GÍSLA
Flugræningjarnir um borð í
kuwaitsku vélinni í Teheran hafa drep-
ið að minnsta kosti fimm gísla sína og
ef til vill fleiri. Irönsk fréttaþjónusta
lýsti hvernig eitt morðið fór fram:
„Klukkan 15.50 komu flugræningj-
arnir með tvo farþega út í dyr vélar-
innar. Þeir byrjuðu aö telja niður og
hótuðu að drepa þá.
Einn maðurinn bað um að fá að tala í
gegnum hátalara og hann fékk það.
Hann sagðist vera starfsmaður banda-
ríska konsúlsins i Karachi. Hann baö
örvæntingarfullur um að samninga-
mennirnir frá Kuwait gengju að skil-
málum flugræningjanna.
Klukkan 16 fóru flugræningjarn-
ir með mennina tvo niöur tröppumar
og lýstu yfir að nú væru aðeins fimm
mínútur eftir. Síðan drápu þeir Banda-
ríkjamanninn með því að skjóta sex
kúlum.”
Ostaðfestar fregnir herma að sjötti
gíslinn hafi verið drepinn. Iranskur
ljósmyndari.sem fékk að komast að
dyrum flugvélarinnar,sagðist hafa séð
tvö lík fyrir innan. Einn maður.sem
átti að drepa,náði að flýja. Flugræn-
ingjarnir tóku hann fram á tröppur en
áður en þeir næðu að skjóta hann var
hann hlaupinn í burtu. Þeir skutu á eft-
ir honum en hann slapp.
Flugræningjarnir krefjast þess að
stjórn Kuwait sleppi föngum sem
handteknir voru í sambandi við röð
sprengjutilræða í Kuwait fyrir ári.
Heimildarmenn í bandaríska utanrík-
isráðuneytinu segja að flugræningj-
arnir standi í sambandi við hryðju-
verkahóp sem studdur sé af Irönum.
Kuwaitstjórn hefur neitaö að verða
við skilyrðum flugræningjanna. Nú eru
um 60 manns um borð í vélinni, en um
100 hefur verið sleppt. Talið er að tveir
starfsmenn Þróunarstofnunar Banda-
ríkjanna séu meðal þeirra sem flug-
ræningjarnir hafa drepið.
Nú vilja flugræningjarnir fá flug-
menn, sennilega til að geta flogið burt
frá Teheran.
L5 WKM——15 VIKM
KÖKUBLAÐ VIKUNNAR — LEIÐRÉTTING
I kökublaðinu er ein einasta villa.
I ömmutertu eiga að vera 5 — fimm grömm af hjartarsalti, en
ekki 50.
Vinsamlega leiðréttið þetta í kökublaði Vikunnar 1984.
Við biðjumst velvirðingar vegna þessa feilspors.
Síðasta bók Desmond Bagley
Desmond Bagley skrifaöi
söguna / næturvillu um svipað
leyti og hann skrifaði metsölu-
bækur sínar: Gullkjölinn,
Fjallvirkið og Fellibyl. Þessi
bók var þó ekki gefin út strax,
þar sem höfundurinn vildi
gera á henni nokkrar endurbætur.
Og þar sem önnur viðfangsefni tóku við hjá honum,
dróst útgáfa bókarinnar á langinn. Síðan eru liðin
tuttugu ár og nú hafa þær endurbætur loks verið gerðar, sem höfundurinn
óskaði, samkvæmt athugasemdum hans sem fylgdu handritinu, og þar með
er hún komin í sinn réttmæta sess meðal Bagleybókanna.
Atburðarrásin er spennandi og vel uppbyggð eins og í öllum bókum þessa
frábæra höfundar. - Ósvikin Bagieybók.
Verð krónur 592,80 með söluskatti
SUÐRI