Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Blaðsíða 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Kendrick Radix, hinn nýi ieiðtogi stjórnmáiafiokks
Maurice heitins Bishops.
Herbert Biaize, hinn nýi forsætisráðherra Grenada.
Sir Bric Gairy. Flokkur hans náði aðeins einu þingsæti af
15 en fiokkur Blaize fókk 14.
Grenadabúar, sem eru flestir af-
komendur Afrikunegra eöa kreólar,
eru ekki nema eins og helmingur
íslensku þjóöarinnar eöa um 100
þúsund. Byggja þeir þrjár eyjar.
Grenada er stærst þeirra en
Carriacou og Litla-Martinique liggja
norður af henni. Samtals eru þær um
344ferkílómetrar.
Innrásin sem Bandaríkin og sjö
Karíbahafsríki geröu á Grenada í
fyrra mæltist misjafnlega fyrir. Hétu
innrásaraðilar því þá strax að svo
fljótt sem auöiö yrði, og helst innan
árs frá innrásinni, yröi efnt til kosn-
inga meðal eyjaskeggja til þess aö
koma þar á aö nýju löglega kjörinni
lýðræðisstjóm heimamanna sjálfra.
Kosningamar núna um síðustu
helgi voru efndir þess fyrirheits.
Grenada komst undir yfirráð
Breta 1783 og varö hluti af breska
samveldinu 1967 með eigin heima-
stjórn en Bretar stýröu varnar- og
utanríkismálum. Fullvalda uröu eyj-
arnarl974.
Fyrsti forsætisráðherra hins full-
valda ríkis var sir Eric Gairy, dul-
spekingur og furöufugl, en stjóm
hans fékk fljótlega á sig iilt orö fyrir
spilhngu og misnotkun valds. 1979
var henni bylt og til valda kom „New
Yewel”-hreyfing vinstrisinnans
Maurice Bishop en sir Eric Gairy
flúöi í útlegötil Bandaríkjanna.
Meöal fyrstu verka Maurice
Bishops var aö koma á tengslum viö
Kúbu og austantjaldsríkin og fyrir
Lofuðu Grenada
kosningum að
ári og ef ndu það
þeirra atbeina kom hann á laggimar
2000 manna her. Bandaríkjastjórn,
sem lengi hefur haft hinn versta bif-
ur á útbreiöslu kommúnisma frá
Kúbu til nágrannaríkjanna, leit hina
nýju stefnu Grenadastjórnar óhýru
auga og óttaðist aö Kúba fengi
hernaðaraðstöðu á Grenada. Þegar
Bishop bauö Kúbumönnum félag um
gerö nýs alþjóöaflugvallará Salines-
höföa óttaðist Bandaríkjastjórn aö
hann yrði nýttur sem herflugvöllur
fyrir Kúbu.
Innan New Jewel-flokksins komu
upp persónulegar deilur milh for-
vígismanna og hugmyndafræöilegur
ágreiningur. Viröist sem harölínu-
marxistum hafi ekki fundist Bishop
vilja ganga nógu langt til samstarfs
viö Kúbu og þá sennilega á hemaöar-
legu sviöi. Þaö leiddi til hallarbylt-
ingar 19. október í fyrra þar sem
Bishop og um 100 manns voru drepn-
ir.
Viku síðar var innrásin gerö og
réttlætt sem lögregluaðgerð og til
verndar bandarísku námsfólki og
hjúkmnarfólki sem var á Grenada.
— Innrásarliðiö mætti helstu mót-
spymunni hjá flokki kúbanskra
„verkamanna”, þrautþjálfuöum og
vel vopnuðum. Um 100 Grenada-
menn og 20 bandarískir dátar féllu í
átökunum.
Kúbumenn voru allir með tölu
sendir til föðurhúsanna og komiö var
á bráðabirgðastjórn undir forystu
vel metins Grenadamanns, Nicholas
Braithwaite, sem fyrrum hafði fariö
meö yfirstjóm menntamála og veriö
fulitrúi Grenada á diplómatavett-
vangi.
Á þessu ári eftir innrásina hefur
Bandaríkjastjórn veitt 57 milljónum
dollara til efnahagsaöstoöar viö
Grenada og meöal annars lagt hönd
á plóginn til aö ljúka gerö flugvallar-
ins á Salines-höfða sem tekinn var í
gagnið í síöasta mánuði. Efnahags-
kreppa er á eyjunum og þrátt fyrir
efnahagsaðstoöina er atvinnuleysi
áætlaö um 40%. Grenadamenn hafa
gjaldeyristekjur sínar aöallega af
ferðaþjónustu, hnetum, kakói og
banönum. Þjóöarframleiðsla á mann
nam 681 doliara á árinu 1981.
Fljótlega eftir innrásina var haf-
inn undirbúningur aö þvi aö endur-
reisa mætti lýöræöislega valda
stjóm heimamanna. Sir Eric Gairy
haföi flutt aftur til Grenada eftir inn-
rásina og höföu menn áhyggjur af
því að hægriflokkur hans virtist
njóta mests fylgis því aö fæstum
þótti heppilegt aö Gairy kæmist aftur
til valda. Fylgi miöjumanna
dreifðist á svo marga smáflokka að
lítil von þótti til þess aö endurkoma
Gairys yröi stöövuö. Tilraunir til
sameiningar miöjuflokka gengu
framan af treglega en tókst fyrir at-
beina nágrannaríkja aö leiða þá
saman í einn flokk, Nýja þjóðar-
flokkinn. New Jewel-hreyfing
Bishops heitins var áfram við lýöi en
harðlínumarxistar vora lamaðir eft-
ir byltingarvikuna og innrásina,
enda helstu forsvarsmenn þeirra,
eins og Bernard Coard, fyrrum aö-
stoðarforsætisráöherra, og 18 aörir, í
fangelsi vegna manndrápanna.
Til forystu fyrir Nýja þjóðarflokk-
inn var fenginn 66 ára lögfræðingur,
Herbert Blaize, virtur maður á
Grenada. Hann er hægrimaöur í hófi
og gamall keppinautur Gairys.
Blaize var aöalráöherra Grenada á
árunum 1962 til 1967 í stjómartíö
Breta. Hann leiddi Þjóöarflokkinn til
sigurs í kosningunum eins og fram
hefur komið í fréttum. Stefna hans er
einhvers staðar mitt á milli stefnu
Gairys og vinstrimanna.
Blaize nýtur mikils álits sem
einarður, heiöarlegur og einlægur
lýöræðissinni meö tröllatrú á stjóm-
arskrá og lögum landsins. Hann er
maöur mildur í tali og fasi, skarp-
greindur en nær fatlaöur af gikt-
veiki.
Hann er hliðhollur Bandaríkjunum
og innrásaröflunum úr nágrenninu
og hefur beöið þá aðila aö halda úti
setuliði til eflingar landvörnum og
löggæslu enn um sinn.
Umsjón: Guðmundur Pétursson
Jolagetraun DV — I. hluti
Hvað heitir hamarmn?
Hann er vígalegur þar sem hann þyt-
ur um loftin, dreginn áfram í kerru af
tveim jólalegum geithöfrum. Þama er
guöinn Þór á ferö og hann sveiflar
hamri sínum til aö keyra hafrana
áfram, enda ekki skrýtiö þar sem hann
er á síðustu stundu aö komast í búöir tii
aö kaupa jólagjafir. Ekki vitum við
hvort hann ætlar að gefa vinum sínum
nagla en hitt viljum viö vita; hvaö
hamarinn hans heitir.
Þeir sem geta rett eiga möguieika á
völdum vinningum sem sæma myndu
sér í hvaða höll sem er, sannkölluðum
VALHALLAR-vinningum.
Vinningamir eru myndbandstæki,
Panasonic MV—370, hljómtækjasam-
stæöa, SG—X 10, og ferðatæki,
Panasonic RX—4930.
Munið aö safna öllum lausnunum 10
saman og senda í einu lagi tii DV, Síðu-
múla 14 Reykjavík, fyrir 2. janúar.
r-------------------------------------1
□ Hófjárn □ Mjölnir □ Hallarhamar
Nafn
Heimilisfang
| Sírni