Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Side 16
16
DV. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER1984.
Spurningin
Hafa auglýsingar áhrif á
Þig?
Þjóðbjörg Þórðardóttir lyfjafræð-
ingur: Þær hafa alls engin áhrif á mig.
Það er einna helst aö þær séu til
leiöinda þegar þær eru jafnyfir-
þyrmandi og nú fyrir jólin.
Páll Kristjánsson deildarstjóri: Já,
þær hafa það tvímælalaust. Maður
fylgist með þeim auglýsingum sem
höfða til áhuga manns og kaupir
jafnvel vöruna í framhaldi af því.
Jóna H. Ingadóttirncmi: Nei, ég held,
að þær hafi engin áhrif á mig. Ég fylg-j
ist heldur ekkert með auglýsingumj
j hvort sem er í sjónvarpi eða dagblöð- j
um. I
Sigrún Ölafsdóttir nemi: Þær hafa
frekar lítil áhrif á mig.Ég fylgist bara
með þeim ef verið er að auglýsa góðar
bækur eða kvikmyndir.
örn Héðinsson sölmaður: Já, þær hafa
vafalaust áhrif, óbeint. Og þessi óbeinu
áhrif valda því að maður fer eftir þeim
að vissuleyti.
Magnús Þorgeirsson bifvélavirki: I
Auglýsingar hafa vafalaust áhrif á
mann þó maður sé sér kannski ekki
alltaf meðvitandi um þau. Svo fer þaö
auövitað líka eftir hvernig auglýsingin
er gerð hver áhrifin eru.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Leigjandi skrifar:
Osköp hefur að undanfömu verið
lágt hljóðið í leigjendum. Þó er
staðreyndin sú að ástandiö á leigu-
markaðnum hefur sjaldan verið
verra en í dag. Það veröur að teljast
alveg makalaust hvaö þeir sem
leigja út íbúðir komast upp með.
Vegna þess hve húsnæðisskortur er
mikill á höfuðborgarsvæöinu geta
íbúðaeigendur leyft sér nánast hvað
sem er. Húsaleiga hefur aö
undanförnu hækkað upp úr öllu
valdi, þannig að leiga á mánuði fyrir
litla 2 herbergja íbúð er á bilinu 10—
12 þúsund. Og ekki nóg meö það. 1
flestum tilfellum þarf að borga
a.m.k. hálft ár fyrirfram ef ekki
meira.
Ég bý í 2 herbergja íbúð í austur-
bænum og borga fyrir það 12 þúsund
kr. á mánuöi. Þar áður bjó ég í íbúð í
Breiðholti. Eftir aö hafa leigt þar í
þrjá mánuði, sem að sjálfsögðu voru
greiddir fyrirfram, kom íbúðareig-
andinn aö máli viö mig og sagöi að
frá og meö næstu mánaðamótum
hækkaði leigan úr 8000 kr. í 12000 kr.
Húsnæðissamningurinn var aðeins
gerður til 3 mánaöa og mér fannst
orðið fullmikið að greiða 12000 kr. á
mánuði fyrir litla íbúöarkytru. Ég
spyr því eigandann hvort hann geti
hækkaö leiguna um 4 þúsund kr. á
mánuöi án þess að spyrja kóng eöa
prest. Hann svarar því þá til að ef ég
sætti mig ekki við þessa hækkun þá
geti ég bara fariö, sem ég og gerði.
Þetta finnst mér hreint ótrúleg
ósvífni. 1 skjóli íbúöaskorts geta
íbúðaeigendur farið með leigjendur
sína eins og hunda. Heimilt er fyrir
leigjendur samkvæmt lögum að gefa
húsaleigu upp til skatts. I þau skipti
sem ég hef haft orð á slíku hafa
íbúðaeigendur brugðist ókvæða
við og hótaö að reka mig úr hús-
næðinu enda hafa viðkomandi alltaf
passaö að gera húsnæðissamning til
ekki lengri tíma en 3 mánaða. Fyrir
utan að borga svo húsaleigu hefur
maður að sjálfsögðu þurft að borga
bæði rafmagn og hita.
Eins og ég tók fram áður leigi ég
nú 2 herbergja íbúð í austurbænum
sem ég fékk um síðustu áramót.
Fyrir hana greiði ég 12000 kr. á
mánuði en finnst það góður kostur
miöaö við það leiguhúsnæði sem ég
hef áður búið í þar sem íbúðin er í
góðu ástandi og leigutíminn til eins
árs.
Mér finnst mál til komiö að ofríki
íbúðaeigenda verði skoðað rækilega
af stjórnvöldum þessa lands. Aö
fámennur hópur fólks skuli
beinlínis geta kúgað samborgara
sína sem ekki eiga þak yfir höfuöið
er mál sem taka þarf föstum tökum.
Tillögur um breytingar á rás 2
Vinnufélagar skrif a:
Við erum hérna nokkrir vinnu-
félagar og okkur langar til þess að
gera nokkrar athugasemdir við dag-
skrá rásar 2 og jafnframt aö koma með
tillögur um breytingar með von um
vinsamlegar undirtektir. Við vorum
mjög ánægð meö rásina til að byrja
með, sérstaklega þar sem nú getur
maður valið hvort maður hlustar á
tónlist eöa ekki. Það sem viö erum sér-
staklega ánægð með eru morgun-
þættirnir. Þeir eru bæði líflegir og
skemmtilegir, tónlistin f jölbreytt og úr
öllum áttum. Aðrir þættir eru mjög
misjafnir að gæðmn, t.d. finnst okkur
íþróttaunnandi hringdi:
Um leið og mig langar að þakka sjón-
varpinu fyrir að sýna okkur frá leik Is-
lands og Noregs í Polar Cup vii ég
taka undir aö íþróttaþátturinn á mánu-
dögum er á mjög slæmum tíma. I raun
er óskiljanlegt að þessi tími skuli
valinn fyrir íþróttir því að flestir ungir
íþróttaunnendur eru sofnaðir á þessum
tíma. Ég ætla því að vona að þessu
Þakkirtil
Verðlags-
stofnunar
Neytandi hringdi:
Mig langar að bera fram þakkir til
Verðlagsstofnunar fyrir verðkönnun-
ina sem gerð var opinber í dagblöðum
fyrir skömmu. I könnuninni kom fram
allt að 420% verömunur milli búða á
dilka- og nautakjöti. Þetta verður aö
teljast mikill munur í svo litlu samfé-
lagi sem viö Islendingar búum í. Það
er í raun þörf fyrir að gera svona verð-
kannanir mun oftar. Það veitir kaup-
mönnum verðugt aðhald. Eins finnst
mér gott að birt séu nöfn þeirra
verslana sem lengst ganga í álagning-
unni þannig að neytandinn geti bein-
línis forðast þær búðir.
Ég hvet því Verðlagsstofnun til að
halda áfram þessari sjálfsögðu
þjónustu viö neytendur.
HRINGIÐ
i ÍSÍMA
68-66-11
I kl. 13 til 15
eða
ISKRIFIÐ
allt of mikið spilað af sömu lögunum og
mætti gjarnan vera meira af íslenskri
tónlist. Stjórnendur þáttanna mættu
einnig gera meira af því að segja
hverjir semja lag og texta og þá
gjarnan spjalla svolítið meira um
hvert lag. Sem dæmi um þátt sem féll
vel í kramiö hjá okkur má nefna þátt-
inn „Á heimaslóðum” sem Ragnheiður
Davíðsdóttir stjórnar. Þar var íslensk
tónlist allsráðandi og svo skemmtilegt
spjall með nauðsynlegum kynningum
á lagahöfundum og textahöfundum.
Það mættu gjaman vera fleiri slíkir
þættir. Inger Anna Aikmann er líka
mjög áheyrileg í útvarpi svo og Helgi
verði breytt sem fyrst.
Að undanfömu hafa heyrst gagn-
rýnisraddir á annan íþróttafrétta-
mann sjónvarpsins, Ingólf Hannesson.
Mér finnst sú gagnrýni að mörgu leyti
óréttmæt. Vissulega er þörf á aö hafa
íþróttaefni sjónvarps fjölbreytt og
Ingólfur gerir einmitt því efni skil sem
Bjarni gleymir. Framsögn hans mætti
að vísu vera betri en það kemur allt
Bára Aradöttir hringdi:
Á meöan allir em farnir að hlakka til
jólanna og þeirra kræsinga sem þeim
fylgja þá megum við ekki gleyma því
fólki sem nú sveltur heilu hungri í
Eþíópíu. Ég held aö hver einasti
Islendingur sé fær um að láta eitthvert
smáræði af hendi rakna til þessa fólks.
Már Baröason og Þorgeir Ástvaldsson
rásarstjóri. Margir fleiri stjórnendur
eru einnig ágætir en það mætti að
okkar mati skipta oftar um dagskrár-
gerðarmenn, t.d. mætti alveg gefa
þeim Páli Þorsteinssyni, Asgeiri
Tómassyni, Jóni Axel og Valdísi
Gunnarsdóttur frí. Pósthólfiö er orðinn
gamall og lúinn þáttur og stjórnandinn
spilar alltaf sömu tegund tónlistar.
Við viljum því fá meira af íslenskri
tónlist og léttu spjalli.
P.s. Umsjónarmenn næturútvarps
mættu gjarnan kynna sér hvernig
beygja skal persónufornöfn og orðið
dóttir.
með reynslunni. Þaö er líka ágætt að
vita að þegar Bjami er með íþrótta-
þáttinn eru alltaf boltaíþróttir (eða
skautar). Og eitthvað annað þegar
Ingólfur sér um þáttinn.
I heild finnst mér þessir tveir menn
gera íþróttum góð skil í þáttum sínum
og ég vona að þeir haldi áfram á sömu
braut.
Margt smátt gerir eitt stórt og ekki
þarf hver og einn að láta mikið til að úr
verði stór upphæð sem kæmi þessu
fólki til bjargar.
Það sem skiptir máli er að við
gleymum ekki þessum meðbræðrum
okkar þegar allir hér hafa nóg til hnífs
og skeiðar og eru aflögufærir.
1 Pakkarnir opnaðir á aOfangadags-
kvöid. Verður auglýsingaflóðið til
þess að börnin þreyta foreldra sina
með endalausu tali um jóiagjafir?
Auglýsinga-
fárjólanna
i Guörún Guðmundsdóttir hringdi:
Þó aö enn sé töluvert langt til jóla
eru allar þessar auglýsingar farnar aö
fara verulega í taugarnar á mér. Á
þessum tíma árs fara skyndilega ólík-
legustu búðir að auglýsa ólíklegustu
vörutegundir og það svo um munar.
Þetta dynur mest á bömum og öldruöu
fólki því þetta eru einu þjóðfélags-
hóparnir sem iiafa einhvern tíma til að
hlusta á útvarp og horfa á sjónvarp og
þessir hópar hafa fæstir neina peninga
á milli handa til að kaupa munaðinn
fyrir. Einhvers staðar las ég á
dögunum aö allir auglýsingatímar
sjónvarpsins væru upppantaöir fyrir
löngu. Fyrst svo er þá hlýtur
sjónvarpið að geta grætt nóg til að
festa kaup á og framleiöa betra
sjónvarpsefni en nú er boðið upp á.
En látum nú vera allt það f é sem fjöl-
miðlar græða á auglýsingum og gerum
okkur frekar grein fyrir þeim miklu
áhrifum sem þær hafa á einstakling-
inn.
Það er sannað aö áhrif auglýsinga á
böm t.d. eru gífurleg. Þau fá í höfuöið
alls konar hugmyndir sem auglýsing-
arnar gefa þeim um gæði ýmissa vöm-
tegunda og þreyta foreldra sína með
endalausu tali um hitt og þetta dót.
Mér, og vafalaust fleiri foreldrum,
finnst nóg koiniö af þessu auglýsinga-
fári í kringum jólin þegar allt þjóðfé-
lagið er á hausnum. Verkfall er nýaf-
staðið og hinn almenni launþegi á
almennt ekki bót fyrir rassinn á sér.
UM ÍÞRÓTTIR í SJÓNVARPI
Bitt af fórnariömbum hungursins i Eþiópíu. Bára hvetur alla til að gieyma
ekkiþessu fóikinú þegarjóiin náigast með sinum allsnægtum.
„Gleymum ekki
þeim sem svelta”