Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Síða 40
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í OV, greið-
ast 1.000 krénur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984.
y, Mikil ólga í lögregluliði Reykjavíkur:
VIKINGASVEITIN
ÓSTARFHÆF
Hin margfræga víkingasveit lög-
reglunnar er óstarfhæf vegna alvar-
legs ágreinings sem upp er kominn
milli liðsmanna hennar annars veg-
ar og Arnórs. 'hgurjónssonar.
Er nú svo komið að vikingasveitin
mun ekki sinna útkalli ef og þegar
það kemur undir stjóm Amórs og
hafa því til áréttingar skilað lyklum
sínum og tækjum öllum.
Um síðustu áramót sendu liðs-
menn víkingasveitarinnar lögreglu-
stjóra bréf þar sem þeir kvörtuðu
undan stjóm Arnórs og óskuðu eftir
að hann yrði látinn víkja. Því bréfi
var aldrei svarað og urðu lyktir
málsins því þær er fyrr greindi;
víkingasveitarmenn neita að vinna
undir stjórn Amórs Sigurjónssonar.
„Þetta gat ekki endað á annan
veg. Dellan var orðin svo yfir-
þyrmandi,” sagði einn heimildar-
manna DV og benti á að slysið er
varð á æfingu hjá Lögregluskólanum
fyrir skömmu hefði ekki þurft að
koma neinum á óvart. Þar lét Amór
24 lögreglunema utan af landi
stökkva ofan af 4 metra háum palli
meö þeim afleiðingum að 7 þeirra
stóðu ekki upp aftur.
Stjóm félags lögreglumanna
hefur fylgst grannt með rannsókn
þessa slyss og Einar Bjarnason, for-
maður félagsins, segir: „Við eigum
bágt með aö skilja tilganginn meö
því að láta menn stökkva úr þessari
hæð ofan í freðna jörð. Áfall á við
þetta á einni æfingu gengur náttúr-
lega ekki til lengdar.”
-EIR.
Handjárn í notkun á skemmtistöðunum um helgina:
RÁÐUNEYTIRÁBÞROTA
í HANDJÁRNSMÁUNU
„Handjárnin verða á skemmti-
stööunum um helgina. Við vitum
ekki alveg hvemig við eigum aö snúa
okkur í málinu vegna þess að engar
reglur eru tii um hverjir mega bera
handjárn og hverjir ekki,” sagöi
Hjalti Zóphoníasson sem fer með
mál lögreglunnar í dómsmálaráöu-
neytinu.
Eins og kunnugt er af fréttum DV
hafa dyraverðir nær allra skemmti-
staða í Reykjavík handjárn til taks í
fatageymslunum til að nota á óstýri-
láta gesti. Er talið aö um 20 handjárn
séu í notkun um hverja helgi er
Reykvíkingar gera sér dagamun —
og jafnmörg á virkum dögum.
„Við höfum rætt þennan hand-
járnsvanda hér í ráðuneytinu en ekki
fundiö neina lausn. Ekki er hægt að
banna mönnum að eiga handjárn
þótt þaö brjóti í bága við lög að aörir
en lögreglumenn smelli þeim á fólk,”
sagði Hjalti. „Þetta er svipað og með
kylfur. Við getum ekki bannað fólki
að eiga kylfur og getum reyndar ekki
gripið inn í fyrr en viðkomandi er bú-
inn að slá einhvern í höfuðið með
henni. Við höldum áfram að þinga
um handjárnin og ég vona aö lausn
liggi fyrir í næstu viku,” sagði Hjalti
Zóphoníasson.
Þar til dingla handjárn dyravarð-
anna í fatageymslum öldurhúsanna.
-EIR.
Snemma í morgun var ekið ð gangandi mann á Suðurgötunni á móts við Háskólann. Maðurinn mun hafa
hlotið nokkur meiðsl, meðal annars höfuðhögg. Mikil hálka var á götum úti í morgun og er talið að hún
hafi átt þátt i þessu slysi. Lögreglan sendi frá sér tilkynningar í útvarpi þar sem menn voru beðnir að aka
varlega. DV-mynd: S.
Gróusögur
ígangi
Að undanfömu hafa ýmsar sögur
komist á kreik hér á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, og nú um allt land, að hjón og
jafnvel heilu fjölskyldumar hafi látiö
lífið í Reyk javík fyrir eigin hendi.
Eru sögur þessar svo magnaðar,
eins og oft vill verða þegar slíkar sögur
fara af stað, að ekki er hægt að átta sig
á hvort sama sagan er á ferðinni eða
ekki.
Við könnuðum sannleiksgildi þess-
ara óhugnanlegu sögusagna hjá
lögreglunni í Reykjavík í gær. Sagðist
hún kannast viö þær, en þær hefðu ekki
við nein rök aö styðjast. Engin hjón,
eða fjölskylda, hefðu látið lífiö fyrir
eigin hendi hér. Væru þetta gróusögur
sem erfitt virtist aö kveða niður eins og
margar slíkar. -klp-
Slysumborð
í Álafossi
Slys varö um borö í Álafossi, skipi
Eimskipafélagsins, er verið var aö sjó-
búa gáma í lestinni. Bátsmaðurinn féll
ofan af gámi og niður á dekk. Hann rif-
beinsbrotnaði og marðist nokkuð í and-
liti. Þegar atburðurinn átti sér stað var
skipið statt í Antwerpen. Samkvæmt
læknisráði var ákveðið að senda mann-
inn heim til íslands vegna hugsan-
legrar hættu sem getur stafað af rif-
beinsbroti. Maðurinn kom heim meö
áætlunarflugi frá Amsterdam í gær-
kveldi. Honum heilsast vel. APH
Andstaða við
vaxtahækkun
„Verðbólgan hefur stigið snögglega
og hún fellur snögglega aftur, vonandi
eftir áramót. Menn vilja sjá hver
vaxtaþróunin verður,” sagði Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráöherra við
DV í morgun.
I gær frestaði ríkisstjómin af-
greiðslu tillagna frá Seölabankanum
um vaxtabreytingar. Að sögn Halldórs
vilja menn fá frekari upplýsingar frá
Seðlabankanum um málið. I sama
streng tók Sverrir Hermannsson
iðnaðarráðherra. „Eg vil fá nánari
upplýsingar um hvernig atvinnu-
vegirnir standa áður en ég tek
ákvörðun,” sagðihann.
Sumir í þingflokki sjálfstæðismanna
hafa lýst andstöðu við vaxtahækkanir
nú. Telja þeir að hækkun vaxta á af-
urðalánum sé óhagstæö fyrir sjávarút-
'veginn. Töluverð andstaða er um
vaxtahækkanir innan þingflokks fram-
sóknarmanna, en margir þar vilja
lækkun raunvaxta. -ÞG.
Pentagon tjáir
sigekkium
kjamorkuvopn
r „Bandarísk stjórnvöld svara engum
fyrirspurnum er varða kjarnorku-
vopn, staösetningu þeirra eða
meðhöndlun.” Þetta var svarið sem
DV fékk við fyrirspurn til bandaríska
vamarmálaráðuneytisins, Pentagon,
varðandi upplýsingar sem fram koma
í skjali því sem bandaríski fræði-
maðurinn William Arkin færði for-
sætisráðherra og utanríkisráðherra
fyrr ívikunni.
Eins og fram hefur komiö segir í
skjali þessu að forseti Bandaríkjanna
hafi heimilað að flytja hingaö til lands
48 kjamorkudjúpsprengjur á ófriöar-
tímum. Skjalið er frá árinu 1974 en
Arkin segist hafa heimildir fyrir því að
þessi heimild hafi verið endurnýjuð á
hverju ári síðan að minnsta kosti til
ársins 1981. Utanríkisráðherra hefur
óskað eftir svari frá bandarískum
stjórnvöldum um þetta skjal og hvort
þessi heimiíd er f yrir hendi.
DV óskaði í gær eftir því við Upp-
lýsingaþjónustu Bandaríkjanna að hún
kæmi á framfæri fyrirspum til
embættismanna í Pentagon, hvort
þessi heimild væri fyrir hendi eða
hvort staðsetning kjarnorkuvopna
væri ákveöin með þessum hætti. Svarið
vareinfaldlega: „Nocomment.’^gp
Míkiö fyrir lítið...
/MIKLIOIRDUR
m
LOKI Já, ráðherra.