Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Qupperneq 2
2 DV. FIMMTUDAGUR10. JANUAR1985. Kaffíbrennslumálið aö mestu upplýst —af hálfu skatt rannsóknarst jóra—vill ekkert segja um rannsókn á öðrum kaffiinnf lutningi „Þetta mál ætti svona nokkum veginn að vera komið á hreint þegar endanleg svör koma frá þeim tveim stofnunum sem ég hef beðiö um aðstoö, það er Verðlagsstofnun og gjaldeyris- eftirlitið,” sagði Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóri um Kaffi- brennslumálið. Kaffibrennsla Akureyrar hf. og Samband íslenskra samvinnufélaga lentu bæði í útdrætti skattrannsóknar- stjóra árið 1983. Þá um haustið fóru tveir menn embættisins að einbeita sér að rannsókn á kaffiinnflutningi fyrir- tækjanna. Fljótlega kom í ljós að töluverður mismunur var á tölum. „Við höfum raunverulega fengið okkar upplýsingar bara beint í gegnum skoðun á Sambandinu,” sagði Garðar. Hann sagöi aðspuröur að ekki hefði verið leitað til Brasilíumanna beint um upplýsingar. „Upplýsinga hefur verið leitað með ákveðnum hætti. Af hálfu Sambandsins hafa verið tilnefndir á- kveönir aöilar til að svara fyrir þetta.” — Hefur komið upp ágreiningur milli ykkar og Sambandsins um mat á upplýsingum eöa ööru? „Nei, enginn sérstakur á- greiningur.” — Eru skiptar skoðanir á milli ykkar? Eru þeir ósammála einhverju af því sem þiö hafið verið aö gera eða einhverju áliti ykkar? „Eg held að það sé of snemmt að tala umþað.” — Þið hafið haft samvinnu við yfir- völd á Norðurlöndum um rannsókn málsins. „ Jú. Við höfum upplýst dönsk skatt- yfirvöld um þetta kaffimál hjá okkur. Þeir hafa hafiö einhverja athugun á Garflar Valdimarsson skattrann- sóknarstjóri. kaffiinnflutningi,” sagði Garöar Valdi- marsson. Skattrannsóknarstjóri var einnig spurður um hvort önnur kaffi- innflutningsfyrirtæki hefðu verið eða yrðu rannsökuö. Hann kvaðst ekkert vilja segja um það. úliiiti I Brenri t og maiað Ak: Braga-kaffi pakkafl inn i Kaffibrennslu Akureyrar. DV-mynd: JBH, Akureyri. AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓDS FLjOKKUR 1NNLAUSN ARTÍ M ABIL INNLAUSNARVERÐ*1 10.000 GKR.SKÍRTEINI 1972 - 1.fl. 1973-2. fl. 1975 — 1. fl. 1975- 2. fl. 1976 — 1. fl. 1976- 2. fl. 1977- l.fl. 1978 — 1. fl. 1979 — 1. fl. 25.01.1985-25.01.1986 25.01.1985-25.01.1986 10.01.1985- 10.01.1986 25.01. 1985- 25.01. 1986 10.03. 1985- 10.03. 1986 25.01.1985-25.01. 1986 25.03.1985-25.03.1986 25.03.1985-25.03.1986 25.02.1985- 25.02.1986 kr. 16.676,90 kr. 9.181,68 kr. 4.986,70 kr. 3.762,65 kr. 3.584,19 kr. 2.816,67 kr. 2.628,89 kr. 1.782,39 kr. 1.178,59 * Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframtframmi uppiýsingar um skírteinin. Reykjavík, janúar 1985 SEÐLABANKI ÍSLANDS Gjaldeyríseftirlitið í lokaþætti rannsóknar „Við erum að skoða hvemig greiðslum er háttaö á þessu, hvað á að greiöa, hvað greitt var, hver mis- munurinn er og hvemig honum hefur verið ráðstafað,” sagði Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður gjald- ey riseftirlits Seðlabanka. Gjaldeyriseftirlitið vinnur nú að lokaþætti rannsóknar Kaffi- brennslumálsins svokallaöa. Málið hefur vakiö mikla athygli hérlendis en það snýst um innbyrðis viðskipti fyrir- tækja innan samvinnuhreyfingarinnar með kaffi. Sigurður var spurður hvort ljóst væri að kaffisölufyrirtæki í Brasilíu hefði veitt afslátt — hvort þetta gæti hugsanlega verið tilbúin skýring Sam- bandsins eftir á: „Það var veittur afsláttur. En ég held aö það sé best að þeir sem skrifa um þetta afli sér upplýsinga um hvemig þessi afsláttur verður til. Eg get ekki upplýst það. Það væri frekar að Sambandið gæti það.” — Koma skýringar Sambandsins um þennan afslátt heim og saman við niðurstöður ykkar rannsóknar? „Skattrannsóknarstjóri tekur af- stöðu til þess. Hann sér alveg um tekjuhliðina. Við könnum hvort þaö séu einhver gjaldeyrissvik og hvernig gjaldeyri hefur verið ráðstafað. Þannig er verkaskiptingin á milli okkar.” Sigurður kvaðst vonast til að rann- sókninni lyki á næstu vikum. „Við reynum að gera þetta eins fljótt og við getum. Þetta ræðst af því hvað okkur miðar fljótt og hversu fljótlegt verður aö finna skjöl og annað. Þetta er leit fram og til baka.” — Vinna margir að þessu? „Nei, það em ekki margir. Við höfum ekki mikinn mannskap.” — Hafið þið samvinnu við erlend gjaldeyrisyfirvöld? „Við höfum dálitla samvinnu, sér- staklega viö Norðurlandabankana.” — Reynið þið aö afla upplýsinga frá Brasilíu? „Það hefur ábyggilega ekkert upp á sig. Við höfum ekki reynt að gera það. Við höfum ekkert samband þangað. Eg veit ekki hvort skattrannsóknarstjóri hefur fengið eitthvað þaðan.” — Það eru þá fyrst og fremst viöskipti milii NAF (Samvinnusam- band Norðurlanda) og Sambandsins sem verið er að kanna? „Já, ég held að það megi segja það,”sagöi Sigurður. Samband íslenskra samvinnufélaga: Skammtar sér 1,3 milljónir dollara í kaffiumboðslaun Samband íslenskra samvinnufélaga virðist hafa skammtað sjálfu sér 1,3 milljónir Bandaríkjadala í umboðs- laun fyrir kaffi sem flutt var inn á þremur árum, 1979 til 1981, til Kaffi- brennslu Akureyrar. I íslenskum krón- um á núgildandi gengi nemur þessi fjárhæð um 53 milljónum. Kaffið var flutt inn frá Brasilíu í gegnum NAF, Samvinnusamband Norðurlanda, sem SlS hefur umboö fyrir hér á landi. Kaffibrennsla Akureyrar var upphaflega látin greiöa um 16 milljónir dollara fyrir kaffið frá Brasilíu. Eftir að skattrannsóknarstjóri var kominn í spilið ákvað stjóm Sambandsins að endurgreiöa Kaffibrennslunni um 2,8 milljónir dollara. Skattyfirvöld hér- lendis höfðu nefnilega komist að því að ekki þurfti að borga nema um 10,5 milljónir dollara fyrir brasiliska kaffiö. Áður var Sambandiö búið að endur- greiða Kaffibrennslunni 1,4 milljónir dollara. Alls hefur Sambandiö endur- greitt dótturfyrirtæki sínu um 4,2 milljónir dollara, samkvæmt heimildum DV. Upp á þessar 4,2 milljónir vantar 1,3 milljónir dollara til að ná f járhæðinni 5,5 milljónir sem er mismunurinn á 16 milljónunum, sem Kaffibrennslan var rukkuð um, og 10,5 milljónunum sem raunverulega þurfti að greiöa fyrir Brasilíukaffiö. Þessar 1,3 milljónir dollara virðist stjóm SlS telja réttmæt umboðslaun. Eins og áöur hefur komið fram í fjöl- miðlum hefur þessi 5,5 milljóna dollara mismunur verið skýrður sem af- sláttur, greiddur eftir á, frá Kaffiút- flutningsráði Brasilíu. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.