Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Side 9
DV. FIMMTUDAGUR10. JANUAR1985.
9
Eigum örfá leðursófasett
á hreint ótrúlegu
tilhoðsverði,
aðeins kr.
68.000,-
Bláskógar
Húsgögn, gjafavörur.
Ármúla 8. Sími 68-60-80.
Baker og Reg-
an skiptast
á störfum
Tveir háttsettir embættismenn í
Bandarikjunum hafa skipst á störfum.
James Baker, sem er starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins, verður fjármála-
ráðherra en fjármálaráðherrann,
Donald Regan, verður Starfsmanna-
stjóri.
Fréttaskýrendur telja að þetta þýði
enga umtalsverða breytingu á stefnu
Bandaríkjastjórnar. Báðir Baker og
Regan eru tiltölulega hægfara íhalds-
sinnar. Báðir hafa þó framfylgt af trú-
mennsku stefnu Reagans forseta.
Fjármálamenn tóku vel í skiptin.
Þeir segja að vegna náinna persónu-
legra tengsla Bakers og Reagans
kunni nú að verða auðveldara að taka
erfiðar ákvarðanir í efnahagsmálum.
öfgasinnaðir hægrimenn eru lítt
ánægðir meö skiptin. Þeir hafa sér-
staklega verið óánægðir með Baker,
alveg síðan hann var valinn starfs-
mannastjóri fyrir f jórum árum.
Frá kl. 17:30 — 19:30 alla daga
bjóðum við sérstakan matseðil
á einstöku verði.
ormti
VEITINGAHUS
AMTMANNSSTÍG 1 RPi'KJAVÍK SÍMI 91-13303
Aðskilnaflarstefna S-Afríkustjórnar fer fyrir brjóstifl ó Ted Kennedy. Hór er
ein mynd hennar þar sem hvitir og blökkumenn mega ekki nota sömu
snyrtiherbergin.
HÁLF SEX-HÁLFÁTIA
Svartir og hvít
ir angra Kennedy
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
og
Þórir Guðmundsson
Bandaríska öldungardeildarþing-
manninum Edward Kennedy hefur
brugðiö í brún undanfarið á ferð sinni
um Suður-Afríku. Hann hefur notaö
ferðina óspart til að gagnrýna stefnu
Reagans forseta og Apartheidstefnu
hvítra manna í landinu. En hvar sem
hann fer eru hópar svartra manna sem
sækja að honum í mótmælaskyni.
Þetta eru meölimir lítils og tiltölu-
lega áhrifasnauös hóps svartra sem
leggjast gegn stuðningi hvítra gegn
apartheid. Þeir vilja berjast sjálfir
fyrir eigin frelsi.
Suður-Afríkumenn segja þó að slikar
tilfinningar séu ekki einangraðar við
þennan eina hóp. Meðal svartra
almennt í Suður-Afríku sé nú miklu
meiri andúö á öllu bandarísku eftir að
Reagan hóf samskiptastefnu sína við
ríkisstjórn hvítra í landinu.
Kennedy sagðist upphaflega hafa
ætlað að heimsækja Suður-Afríku 1986,
20 árum eftir för bróður síns, Roberts
Kennedy, þangað. En hann segist hafa
ákveðið að koma núna vegna hins
mikla áhuga sem er á málefnum
svartra Suður-Afríkubúa nú í Banda-
ríkjunum.
Stjórnir Suöur-Afríku og Banda-
rikjanna hafa sýnt að þær hafa litinn
áhuga á heimsókn Kennedy.
Kennedy hefur reynt að fá að heim-
sækja Nelson Mandela, blökku-
mannaleiðtogann sem hefur setið í
fangelsi í 20 ár. Suöur-Afrikustjóm
sagöi í gær að hann fengi ekki að
heimsækja hann.
Útlönd
Útlönd
yi kti
Sparibók með sérvöxtum aðlagast verðtryggingu.
Sama gildir um 18 mánaða sparireikninga.
BIJNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI