Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Blaðsíða 7
DV. FIMMTUDAGUR10. JANUAR1985.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Getur kostað allt upp í 10,63 að fá brauðið niðursneitt.
Aðeins niðurskorin
brauð f rá Samsölunni
Vissirðu að það getur kostaö allt udd kostar að fá þessa þjónustu og hringd- einum stað aö þær eru ekki birtingar- 3,50 kr. Dýrastur var hann á Mjólkur-
í 10,63 kr.aðfábrauðiðsneitti? um í sex brauðgerðarhús, raunar sjö, hæfar. Ödýrust var þessi þjónusta hjá samsölubrauðunum. Skurður á heil-
Við geröum smákönnun á því hvað en fengum svo óglöggar upplýsingar á Bridde, Miðbæ. Þar kostaöi skurðurinn hveitibrauöi kostar 10,63 krónur en 9,72
kr. á franskbrauði, þ.e.a.s. þessi „vísi-
tölubrauð” eru hreinlega ekki seld
nema niðursneidd. Þar fyrir utan var
dýrast aö fá brauð skorið í Mosfells-
bakaríi. Þar kostar þessi þjónusta 7,00.
Hér er vitaskuld miðaö við þau brauð-
gerðarhús sem við hringdum i. Hugs-
anlega getur þetta verið dýrara eða
ódýrara annars staðar.
Það getur því munað verulega á
brauöverði, hvort heldur brauöið er
keypt í heilu lagi eða niðursneitt.
Margir kaupa tvö brauð á dag fimm
daga vikunnar. Fólk getur sparað sér
umtalsverða upphæð árlega með því
að sneiða brauðið sjálft.
Niðurstaða könnunar okkar var eft-
irfarandi:
Brauðgerðarhús Kostn. á niðurskurði
Álfheimabakarí kr. 4,50
Bakaríið, Austurveri kr. 5,00
Bernhbakarí (4 kr.f.1/2brauð) ikr. 5,00
Mosfellsbakarí 7,00
Samsölubrauð (franskbr.) 9,72
Samsölubrauð (heiihveitibr.) 10,63
A. Bj.
Anna
Bjarnason og
Jóhanna
Ingvarsdóttir
Eigin tartalettur
Ef einhver skyldi vilja spreyta sig á
því að búa sjálfur til tartalettur birtum
við hér fjórar uppskriftir úr gamalli og
góöri danskri matreiðslubók. Tekiö
skal fram að við höfum ekki bakað
tartalettur, en það getur varla verið
meiri vandi en hvað annað.
Uppskrift I
250 g hveiti
1/2 tsk. salt
180 g smjörlíki
2 msk. r jómi
2egg
Uppskrift II
250 g hveiti
1/2 tsk. salt
200 g sm jörlíki
2 msk. r jómi
legg
Uppskrift III
250 g hveiti
250 g smjörlíki
11/2 dl vatn
1 msk. edik
Uppskrift IV
125 g hveiti
125 g soönar, marðar kartöflur
125 g smjörlíki
Öll deigin eru hnoðuð. Deig nr. IV er
látiö bíða í um það bil hálftíma áður en
það er flatt út. Fletjið deigið þunnt út,
raðið tartalettuformunum (smurðum)
þétt saman og leggið deigið í einu lagi
yfir öll formin. Deiginu síðan þrýst
varlega ofem í þau. Látið hráar grænar
baunir ofan í formin til þess að deigiö
lyfti sér ekki upp úr þeim. Tartalett-
urnar eru bakaðar í ca 1/2 klst. við
meðalhita. Einnig er hægt að láta deig-
ið utan á tartalettuformin en þá verður
að stinga það með gaffli. Bökunartím-
inn er þá styttri og gætiö þess að láta
kökurnar kólna áöur en þær eru teknar
af formunum, annars er þeim hætt við
að brotna. Með þessu móti fást stærri
tartalettur.
A.Bj.
" Garobæmi
Garðbæingar og
nágrannar!
Höfum flutt í nýtt húsnæði að Hrísmóum 4, nýja
miðbænum.
Vídeoklúbbur
Garðabæjar, s. 65-13-11.
Opið frákl. 15.00—23.00mánud.-föstud.,
laugard. og sunnud. frá kl. 13.00—23.00.
Mikið af nýju efni.
Höfum fengið nýtt símanúmer, 65-13-11.