Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1985, Blaðsíða 5
DV. MIÐVKUDAGUR13. FEBRUAR1985. 5 Matthías Bjarnason ávarpar gesti eftir að hafa tekið fyrstu skóflustung- una. DV-mynd: BB Hámarkslán 150 þús. — og aðeins vegna þeirra sem eru í vanda með fyrstu íbúð Björgunaraðgerðir ríkisstjórnar- innar vegna vanda fólks í húsnæðis- málum lúta að lónveitingum til þeirra sem hafa verið að eignast sína fyrstu íbúð á árunum 1980—1984. Lán verða 50—150 þúsund krónur. Einnlg verður beint tilmælum til lánastofn- ana um breytingar á skammtíma- skuldum í lengri lán, eigi slfkt við. Skilyrði um björgun eru mjög ströng. Fjárhagsvandi má aðeins stafa af útvegun húsnæðisins. Miðað er við lánveitingu varðandi tíma- mörit, ekki hvenær lón var tekið út. „Greiðsluerfiðleikar umsækjanda þurfa að vera það miklir að hann sé i verulegri hættu með að missa íbúð sína nema bráð aðstoð komi til." Vanskil verða að vera minnst 150.000 krónur. Þó verða menn að hafa fuil- kannað og fullnýtt aðra lánsmögu- leika. Róðgjafaþjónusta hefst í Hús- næðisstofnun á þriðjudag í næstu viku. Þá hefst útbýting umsóknar- eyðublaða. Umsóknarfrestur er til 1. júní 1985. HERB „Fíladelfíustúlka” íVestmannaeyjum * „Þúsund” ofaukið 1 blaðinu i gær var ekki rétt farið með tonnaf jöldann af jómi sem á að fara í nýju flugstööina á Keflavíkur- flugvelli. Þaö rétta er 1400 tonn en ekki 1400 þúsund tonn eins og sagt var. Beð- Istervelvirðingaróþessu. APH Framkvæmdir við K-álmu hafnar 1 gær hófust formlega framkvæmdir við K-byggingu Landspítalans. I byggingaráætlunum er gert ráð fyrir aö húsið verði smiöað í tveimur áföngum. I fyrri áfanga er ætlunin að reisa u.þ.b. þriöjung hússins og ó fyrsti hluti þess, krabbameinslækningadeild, að vera tilbúinn til notkunar 1988. K- byggingin mun rísa norðan núverandi aðalbyggingar Landspítalans og verður byggingin þrjór hæðir auk kjallara. A fyrstu hæð verða deildir fyrir krabbameinslækningar auk deildar fyrir dauöhreinsun, á annarrí hæð röntgendeild og á þriðju hæð skurð- deild og gjörgæsludeild. 1 kjallara verða lagnir, tækjabúnaöur og búningsklefar. Ljóst er að hin nýja bygging mun bæta verulega úr brýnasta húsnæðisvanda Landspít- alans. Eitt meginmarkmið með K- byggingunni er að komið verði upp góðri aðstöðu til krabbameins- lækninga. Eins og nú hóttar er öll að- staða og tækjabúnaður til slíkra lækn- inga ófullnægjandi og þjónusta viö krabbameinssjúklinga minni en veitt er i nágrannalöndunum. -hJiei. Vegna fréttar á baksíðu DV í gær um ófarir „Fíladelfiustúlku” í Vest- mannaeyjum um síöastliöna helgi vill Einar Gislason, forstöðumaður safn- aðarins, koma eftirfarandi athuga- semd á framfæri: „Umrædd stúlka hefur aldrei verið skírð inn í Fíladelfíu- söfnuðinn og vart getur umrætt atvik hafa ótt sér staö á sunnudagskvöldi þar sem allur hópurinn sneri til lands síödegisþanndag.” DV getur tekið undir þessar athuga- semdir. Atvikið átti sér ekki stað ó, sunnudagskvöldi heldur aðfaranótt sunnudags og er beðist velvirðingar á þeirri missögn. Varðandi fyrra atriðið mun rétt vera aö stúlkan hafi aldrei veríð skirð formlega inn í Fíladelfíu- söfnuðinn. En eins og móðir hennar sagði í samtali við DV í gær: „Við for- eldramir erum í Hvitasunnu- söfnuðinum og höfum alltaf litið svo ó að stúlkan okkar væri i sama hópi. Hún hefur tekið þátt i starfinu og sótt fé- iagsskap sinn til annarra ungmenna í söfnuðinum. Það er fyrst núna aö for- stööumenn safnaðaríns gera athuga- semdirviðþetta.” Það skal tekið fram að umrædd stúlka var í Vestmannaeyjum í hópi annarra ungmenna úr Fíladelfíusöfn- uðinum. Sótti hún ásamt þeim sam- komu í Betel, en svo nefnist söfnuður hvitasunnumanna í Vestmannaeyjum. -EIR. Tvíþætt flutningsþjónusta frá U Snakk á Eyrarbakka Frá Regínu Thorarensen, Selfossi: Eg skrapp nýiega á Eyrarbakka aö skoöa nýstofnað fyrirtæki sem heitir Ekta hf., Nesbrú 2, Eyrarbakka. Eg hitti Jón Sigurðsson sem er einn af fimm eigendum, en hinir eru Páll og Ingibjörg, kona hans, og Valdimar og Anna Halldóra, kona Jóns. öll vinna þau af miklum krafti og lifsgleði viö fyrirtæki sitt sem framleiðir snakk. Þau framleiöa þrjár sortir af snakki núna. Það eru skrúfur meö papriku- bragði, hringir meö ostabragði og baconskífur. Snakk er svo eftirsótt að þeir sem smakka þaö einu sinni kaupa það aftur og aftur, enda sögðu eigendumir að þau væru öll bjartsýnisfólk. Þeim hefði þó aldrei dottið i hug aö þetta gengi svo vel, en eftirspurnin er mikil. Aðurgreint fyrirtæki tók til starfa í ágúst síðastliönum og kostaði 6 milljónir með nýbyggðu húsi. Þar er 200 fermetra vinnusalur, stórhreinleg- ur. öll færibönd eru úr stáli og einnig ilátin sem hin gómsætu efni renna í. Nokkrir eigendanna fóru til Sviss siðastliðið sumar til að læra á vélar og vinnslu. Auövitað voru það karlmenn- irnir sem fóru, en frúmar sátu heima. I bigerð er að auka viö framleiösluna, til dæmis fiögum. Snakk er framleitt úr kartöflum sem eru ræktaðar á Eyr- arbakka. Eg óska hinum ungu eigendum allra heilla með sinn atvinnurekstur í nútiö og framtíö. Þess má geta að þetta fólk er ekki hóskólagengið, ekkert af þvi. Alltaf gleður það mig sem gamla konu þegar ungt fólk setur upp sitt eigið fyr- irtæki og heimtar hvorki af bæ né sveit eins og bændur og útgerðarmenn. Það var lífsgleði og ferskur andi sem sveif yfirfólkinu. OY Henry Nielsen AB Box 199 SF00101 - Helsingfors 10 Cables: Ton'nage Tel. 90-17291 Telex: 124673 Flutningur er okkar fag EIMSKIP Sirni 27100 Umboðsmaður í Helsinki: Nú önnumst við vikulega gámaflutninga frá Helsinki til Reykja víkur og reglubundna stórflutninga beint frá Helsinki á 3ja vikna fresti. Þessi tvíþætta flutningskeðja milli Finnlands og íslands tryggir styttri flutningstíma, hag- kvæmari flutning og öruggt vörustreymi allan ársins hring.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.