Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1985, Blaðsíða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR13. FEBRUAR1985.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Nokkrar róstur voru í Suður-Kóreu fyrir kosningarnar þegar fólk mótmælti einræði herstjórnarinnar á
stórum útifundum. Lögregla þurfti að beita táragasi og kylfum gegn mannfjöldanum.
KosningaríSuður-Kóreu:
Flokkur Kim
næststærstur
— en stjórnarf lokkurinn heldur velli
Nýi réttlætisflokkurinn, flokkur
Chun Doo Hwan forseta, vann þing-
kosningamar í Kóreu í gær. En Nýi
kóreski lýðræðisflokkurinn, ný-
stofnaður flokkur sem stjómarand-
stöðuleiðtoginn Kim Dae-Jung styður,
vann mjög á og er orðinn næststærsti
flokkur landsins.
Kóreska sjónvarpið sagöi að eftir
talningu 96 prósent atkvæöa hefði
stjórnarflokkurinn unnið 80 þingsæti
en Nýi lýðræðisflokkurinn fengið 42.
Samkvæmt kosningalögum Suður-
Kóreu fær fiokkurinn sem flest þing-
sæti vinnur aukalega 61 sæti.
Kim Dae-Jung lýsti strax og úrslit
voru kunn yfir því aö kosningarnar
sýndu iýðræðisvilja fólksins. Stjórn-
málaskýrendur segja að nærvera Kim
hafi hjálpað mikið til við sigur flokks
hans. Hann kom úr tveggja ára útlegö í
Bandarík junum á föstudag.
Flokkurinn sem áður var aðal-
stjórnarandstöðuflokkurinn, Þjóðar-
flokkur Kóreu, fékk 21 sæti. Annar
stjórnarandstöðuflokkur fékk 13 sæti.
Þátttaka í kosningunum var meiri en
nokkru sinni undanfarin 27 ár eða 84,6
prósent. A siöasta þingi hafði stjórnar-
flokkurinn yfir 150 þingsæti á sínu
valdi.
STUÐLARUM
Ný hönnun
og framleiðsla
eins og tveggja
manna rúma
! viðarlit
eða máluð
Fyrir-
liggjandi
á lager
FURUHÚSGÖGN
Franskur þingmaður
sakaður um myrkraverk
Frá Ama Snævarr, fréttaritara DV í
Lyon:
Jean-Marie Le Pen, foringi flokks
hægri þjóðernissinna i Frakklandi,
hefur verið sakaður um aö hafa beitt
pyntingum er hann gegndi herþjón-
ustu i Alsir árið 1957.
Blaðið Liberation birtir frásögn
fimm Alsírbúa sem nefna fjölmörg
dæmi um pyntingar. Le Pen er meðal
annars sakaður um að hafa kastað
fanga út um glugga, tekið vamarlaus-
an fanga af lífi, beitt raflostum, reynt
’að drekkja mönnum auk barsmíða svo
örfá dæmi séu nefnd. Blaðið birtir á
alls átta siöum frásagnir af myrkra-
verkum Le Pen og forsíða blaðsins er
þakin fyrirsögninni „Pyntaðir af Le
Pen” skráðrimeðstríösletri.
Le Pen segir innflutning á vinnuafli auka á atvinnuleysi Frakka sjálfra.
HótelbruniíManila
Tuttugu og tveir eru þegar taldir af
og vitað er um aö minnsta kosti þr játíu
slasaða eftir aö lúxushótel í Manila,
höfuðborg Filippseyja, brann í nótt.
Flest þetta fólk vom útlendingar sem
gistuhótelið.
Ottast er um líf miklu fleiri því aö
slökkviliðinu hefur ekki tekist að kom-
ast inn á öll hótelherbergin vegna elds-
ins. — Hótel „Regent of Manila” hefur
425 gistiherbergi.
Hundruö slökkviliðsmanna börðust
við eldinn og höfðu ekki ráðið niðurlög-
um hans þegar síðast fréttist, tíu
stundum eftir að hann braust út.
Stendur hótelið við ströndina og geröi
hafgolan þeim erfitt fyrir að hemja
eldinn.
Térnenkó:
Boðar einhliða afvopnun á svæð-
um sem liggja að Norðurlöndum
Témenkó, forseti Sovétrikjanna,
hef ur boðið Norðurlöndum að Sovétrik-
in muni einhliða draga úr kjarnorku-
vopnavæðingu sinni í þeim hémðum
sem liggja aö Norðurlöndum. Þetta
vonast hann til að veröi upphafið að
yfirlýsingu um kjamorkuvopnalaus
svæði á Norðurlöndum.
Térnenkó segist ekki búast við neinni
sérstakri eftirgjöf af NATO hálfu
vegna þessa.
Tilboðið kom i bréfi til norsku friðar-
hreyfingarinnar „Sáttmála nú! ”
Vamarmálasérfræðingar segja að
þeir einu sem hafi kjarnorkuvopn á
Norðurlöndum séu Sovétmenn. Þeir
eyði nú miklum peningum í hafnir í
Eystrasalti til að þær geti tekið á móti
stærstu kjamorkukafbátum sovéska
flotans.
NATO er á móti yfirlýsingum um
kjamorkulaust svæði á Norðurlöndum.
Bandalagið segir nauðsynlegt aö þaö
sé reiðubúið aö nota kjarnavopn í
nauðvörn.
Þetta er í fyrsta skipti sem franskt
blað birtir svo nákvæmar ásakanir
nafngreindra manna i garð Le Pen en
engan veginn í fyrsta skipti sem slíkt
ber á góma. Le Pen hefur stefnt hverj-
um þeim sem minnst hefur á slikt og
þvemeitar að hann hafi nokkru sinni
brotið mannréttindi. Nú standa einmitt
yfir réttarhöld vegna málshöföunar Le
Pen á hendur blaðinu „Le Camard
Enchaine” vegna svipaðra ásakana.
Le Pen varð yngsti þingmaður í
sögu franska þingsins árið 1956 fyrir
svokallaða toujatista. Hann varð þó
ekki ellidauður á þinginu því hann
gekk í herinn og var sendur til Alsir í
ársbyrjun 1957. Um það leyti var her-
inn aö berja niöur mikla hryðjuverka-
öldu sem alsírskir skæruliðar stóðu
fyrir.
Margsannað er að pyntingar vom
daglegt brauð í baráttu franska hers-
ins gegn skæruliðum. Le Pen situr á
Evrópuþinginu í Strassburg og er for-
ingi Front Nationale en sá flokkur
berst meðal annars fyrir að inn-
flytjendur sem margir hverjir em af
alsírskum uppruna veröi látnir hverfa
til sins heima.
VIÐ RÝMUM
FYRIR IMÝRRI
LÍNU.
og seljum allar
sýningarinnréttingar
með góðum afslætti.
Nú er tækifærið til að gera
^kjarakaup og eignast eldhúsinn-
réttingu, fataskápa, baðinnréttingu og
ýmislegt fleira á góðu verði.
Það er bara að vera fljótur í ferðum.
Kalmar
SKEIFAN 8 - 108 REYKJAVlK - SlMI 82011