Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1985, Side 14
14
DV. MIÐVIKUDAGUR13. FEBRÚAR1985.
Heilbrigðisfulltrúi
Staöa heilbrigöisfulltrúa við Heilbrigðiseftirlit Reykjavík-
ursvaeðis er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. mars
1985. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar. Um menntun, réttindi og skyldur fer
samkvæmt reglugerð nr. 150/1983 ásamt síðari breyting-
um.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í heilbrigðis-
eftirliti eða hafa sambærilega menntun.
Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri störf
skulu hafa borist formanni svæðisnefndar Reykjavíkur-
svæðis (borgarlækninum í Reykjavík) fyrir 25. febrúar
nk., en hann ásamt framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits
veitir nánari upplýsingar.
Borgarlæknirinn
í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 3. tbl. þess
1985 á Skriöustekk 13, þingl. eign Guðbjargar Einarsdóttur, ferfram eft-
ir kröfu Guöjóns Á. Jónssonar hdl., GJaldheimtunnar í Reykjavik,
Tryggingastofnunar rikisins, Baldurs Guölaugssonar hrl. og Árna Ein-
arssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 15. febrúar 1985 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 3. tbl. þess
1985 á hluta í Hrafnhólum 8, þingl. eign Guðmundar O. Hallgrimssonar,
fer fram eftir kröfu Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 15. febrúar 1985 kl. 14.45.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 28., 31. og 34. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á hluta í
Safamýri 51, þingl. eign Jóns Þorkelssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Út-
vegsbanka Islands og Iðnaðarbanka Islands hf. á eigninni sjálfri föstu-
daginn 15. febrúar 1985 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 51., 55. og 57. tbl. Lögbirtingablaös 1984 á hluta I
Rofabæ 27, þingl. eign Kristjáns Magnússonar, fer fram eftir kröfu Út-
vegsbanka Islands á eigninni sjálfri föstudaginn 15. febrúar 1985 kl.
10.30.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 3. tbl. þess
1985 á hluta í Kríuhólum 6, þingl. eign Simonar Símonarsonar, fer fram
eftir kröfu Guöjóns Á. Jónssonar hdl., Veödeildar Landsbankans,
Sveins H. Valdimarssonar hrl. og Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eign-
inni sjálfri föstudaginn 15. febrúar 1985 kl. 14.15.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 1101. og 109. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 3. tbl. þess
1985 á hluta i Ferjubakka 12, þingl. eign Guörúnar Grétarsdóttur, fer
fram eftir kröfu Veödeildar Landsbankans, Gjaldheimtunnar i Reykjavik,
Baldurs Guölaugssonar hrl. og Landsbanka íslands á eigninni sjálfri
föstudaginn 15. febrúar 1985 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 3. tbl. þess
1985 á hluta í Gaukshólum 2, þingl. eign Alexanders Ólafssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, tollstjórans I Reykjavík og
Skúla J. Pálmasonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 15. febrúar 1985
kl. 15.15.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 3. tbl. þess
1985 á hluta i Orrahólum 7, tal. eign ívars Erlendssonar o.fl., fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 15.
febrúar 1985 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavík.
HARKA VK>
NtÐURSKURÐ
Vegna yfirlýsingar Valdimars
Gislasonar f.h. Búnaöarsambands
Vestfjaröa og Bergs Torfasonar f.h.
Fjárskiptanefndar, sé ég ástæöu til
aö koma á framfæri nokkrum
athugasemdum.
Ófíkar skoðanir yfirvaida
Þeirfélagarsegja: ..Fullreynt var
talið að niöurskuröur einstakra
hjaröa eins og hann hafði veriö fram-
kvæmdur á Barðaströnd stöðvaði
ekki veikina.” En í bréfi Sauðfjár-
veikivarna dagsettu 14.6.1984 undir-
rituöu af Sigurði Siguröarsyni segir:
„A fundi Sauðfjársjúkdómanefndar
var tekiö undir tillögur Rauöstrend-
inga um giröingu milli Rauöasands
og Baröastrandar úr Stálf jalli í Pat-
reksfjörö viö Skápadal.
Heimamönnum var heitið aðstoö,
settu þeir upp giröinguna. Þessi
giröing gæfi kost á því aö fresta eöa
hlífa við fjérskipti svæði, sem hvorki
hefir fundist riðuveiki á eða grunur
um hana. Til nokkurs er að vinna,
þvi á skaganum sem myndi giröast
af eru yfir tvö þúsund fjár. Haldi
giröingin vel mætti jafnvel fireista
þess aö hreinsa þetta hólf ef riöa
fyndist siöar, meö því aö lóga fé á
einstökum bæjum og þaö eftir að
ósýkt fé er komið aftur til Baröa-
strandar.”
Væri ekki rétt aö Valdimar,
Bergur og Sigurður reyndu að jafna
þennan ágreining sinn áöur en fram-
kvæmdir veröa hafnar viö girðing-
una. Þaö er fjöldamargt sem ég sé
athugavert viö yfiriýsinguna, en í
stuttri blaöagrein er ekki hægt að
sinna þvi öllu, nema tilefni gefist til
síöar. 1 máli þeirra félaga kemur
fram aö ýmis félagasambönd og
sýslunefndir og einnig fundur full-
trúa sveitarfélaga, sem haldinn var
á Núpi 30. júní 1984, hafi lýst stuön-
ingi viö þá stefnu að skera niður allt
sauðfé í Vestf jarðahólfi.
Er þetta sannleikanum sam-
kvæmt?
Sýslunefnd Vestur-Baröastrandar-
sýslu hefir aldrei samþykkt niöur-
skurö á sauðfé utan Baröastrandar-
hrepps. A fundinum á Núpi var engin
tillaga samþykkt um niðurskurö.
KRISTJÁN
HANNESSON
BÓNDI, LAMBEYRI
ITÁLKNAFIRÐI
Vegna afgerandi andstööu fulltrúa
sveitarstjóma frá Patreksfiröi,
Tálknafiröi og Ketildala- og Suöur-
fjarðahreppi gegn niöurskurði kom
fram tillaga frá össuri Guðbjarts-
syni og Siguröi Siguröarsyni. Niður-
lag tillögunnar var svohljóöandi:
.í’undurinn felur stjóm Búnaöar-
sambandsins aö fá fram afstööu
allra sveitarstjóma í hólfinu og aö
þvi loknu hlutast til um skipun fimm
manna nefndar er taki tilÚt til sem
flestra sjónarmiða um þetta mál og
verði samninga- og framkvæmdaaö-
ili fyrir hönd f járeigenda.”
Nú spyr ég Valdimar Gíslason,
framkvæmdastjóra Búnaöarsam-
bands Vestfjaröa: Ertu búinn aö fá
fram afstööu allra sveitarstjóma á
svæöinu, og með hvaða hætti var tek-
ið tillit til þeirra sjónarmiða sem
komu fram á fundinum? Einhvem
veginn hefur þetta starf Búnaðar-
sambandsins fariö fram hjá hrepps-
nefnd og fjáreigendum í Tálknafirði.
Þaö er rétt aö bændur bera fullt
traust til starfsfólks tilraunastööv-
arinnar aö Keldum. Hitt er alrangt
aö þaö sé elnkamál starfsmanna
Sauöfjárveikivama hvernig þeir
skipta með sér verkum. Ég treysti
ekkl Kjartani Blöndal framkvæmda-
stjóra til þess aö vinna aö tllraunum i
rannsóknarstofunni á Keldum. Þaö
hefur lika sýnt sig aö dýralæknirinn
er alls óhæfur til aö sinna mannleg-
um samskiptum. Þaö er affarasæl-
ast aö Kjartan sinni sínu starfi og
Siguröur sínu.
Harkalegar aðfarir
I yfirlýsingu ykkar segir: „Starfs-
menn Sauðfjárveikivarna hafa haft
fullt samráö við heimamenn um aö-
geröir í niðurskurðar- og fjárskipta-
málum og rætt þau ýtarlega viö ein-
staka fjáreigendur og aðra þá er
málið varöar.” Þetta er fallega sagt,
ef satt væri. Hvaö okkur fjár-
eigendur varöar hefur þetta samráö
og ýtarlegu umræöur líkst meir
galdraofsóknum, þar sem einskis er
svifist. 1 stað umræöna um máliö var
nú beitt þeirri tækni aö leggja
einstaka fjáreigendur i einelti og
beita þáþrýstingi.
Aöferðin var einföld og árangurs-
rík; meö fagurgala og loforöum um
fjárbætur annars vegar og svo
nótunum um fjárútlát og valdbeit-
ingu hins vegar. Hefir tilraunamann-
inum frá Keldum tekist aö brjóta
niður viljastyrk fjáreigenda á Pat-
reksfiröi svo aö þeir hafa sár-
nauðugir afhent kindumar sinar
undir hnif inn. Af þessum ofsóttu f jár-
eigendum stend ég nú einn og þrátt
fyrir hertar aögerðir gegn hjörö
minni lifir hún enn og mun halda
áframaö lifa.
Fréttatilkynningar frá Sauðfjár-
veikivömum sem birst hafa í
sjónvarpi, útvarpi og blööum um að
búiö sé aö skera niöur hjá mér eru
tilhæfulausar. Meö vaxandi undrun
hefur almenningur fylgst meö
þessum aðgeröum. Bændur og fjöl-
skyldur þeirra hafa fyllst ótta og
öryggisleysl og réttarvitund fólks
hefur verið alvarlega misboöiö.
Bóndanum á Ósi í Amarfiröi votta
ég samúö mína, en hjörö hans var
skorin niöur i haust af litlu tilefni og
gegn mótmælum hans. Enginn efast
um dugnað og ósérhlifni rannsóknar-
mannsins frá Keldum, til dæmis má
nefna aö hann lagði þaö á sig núna
rétt fyrir jólin aö fara vestur á
Baröaströnd og i mesta fárvirði sem
gengið hefur yfir Vestfirði á þessum
vetri braust hann ásamt fríöu föm-
neyti yfir Dynjandisheiði, meöal
annars til aö heimsækja Pétur bónda
aðósi.
Þetta var hraustiega gert og virö-
ingarvert ef tilgangur feröarinnar
hefði verið sá aö veita gamla mann-
inum andlegan styrk vegna álagsins
er hann varö fyrir er kindur hans
voru skomar niður. En því miöur,
þaö var ekki tilgangur feröarinnar,
heldur fékk Pétur skipun frá þessum
valdamlkla manni um aö jafna fjár-
húsin viö jöröu og brenna
og jarðsetja allt heila draslið.
Tilfinningasemi kemur auövitaö
ekki til greina þegar vísindamenn
eru aö störfum. Þaö er vonandi að
tár gamla mannsins hafi ekki spilit
jólagleði vísindamannsins eftir aö
hann kom heim úr þessari frægöar-
för.
Ein spurning
Ein spuming aö lokum til ykkar fé-
laga, Valdimars og Bergs. Gæti
hugsast aö sextugasta og sjöunda
grein stjómarskrár lýöveldisins
Islands gildi fyrir umkomulitla og af-
skekkta bændur vestur á fjörðum?
Þiö þurfiö ekki aö svara; slikt er
óhugsandi! Friöhelgi eignarrétt-
arins nær ekki út fyrir Stór-Reykja-
víkursvæðið. Að lokum legg ég til aö
málið veröi sett í geörannsókn.
Kristján Hannesson.
„Af þessum ofsóttu fjáreigendum stend 6g nú einn og þrátt fyrir hertar
aðgerðir gegn hjörð minni lifir hún enn og mun halda áfram að lifa."
A „I staö umræöna um málið var nú
beitt þeirri tækni að leggja
einstaka f járeigendur í einelti og beita
þá þrýstingi.”