Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Side 7
DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985. 7 Árangur af átaki í útflutningi ullarvara: Dollarar lyrír ullina hafa fjórtánfaldast Ullariönaöurinn í iandinu hefur fjórtánfaldaö verömæti útflutnings sins í dollurum frá árinu 1971. Þetta kom fram í ræöu Víglundar Þorsteinssonar viö setningu ársþings Félags íslenskra iönrekenda. Víglundur nefndi þetta sem dæmi um árangur sem ná má ef markvisst er unnið. Hannsagöi: „Hver heföi trúaö því árið 1971, viö upphaf átaks í útflutningi ullarvara, aö þessi grein myndi flytja út vörur fyrir 30 milljónir dollara áriö 1984? Á þessum árum hefur ullariðnaðurinn fjórtánfaldaö útflutningsverðmætiö í dollurum þrátt fyrir óhagstæö skilyröi flest árin vegna óðaverðbólgu og gengissveiflna. Annað dæmi um nýja útflutn- ingsgrein í iönaöi, sem hér er óöum að eflast, er útflutningur á fjárfestingar- og rekstrarvörum fyrir sjávarútveg. Á sjö árum hefur útlfutningur þessarar framleiöslu fimmfaldast í dollurum. Er þaö sannfæring min aö hér sé aö skjóta upp kollinum ný útflutnings- grein sem hefur örugglega jafnmikla eöa meiri möguleika en ullariönaöur- inn. Þannig má áfram telja. Þaö er fjöldinn aDur af anásprotum aö skjóta upp kollinum í útflutningsstarfseminni og þeir munu vaxa og dafna á komandi árum, verði aö þeim hlúö, og færa okkur drjúgan skerf til aukningar þjóöartekna. Samfara aukinni áherslu á útflutn- ingsstarfsemi þurfum viö aö efla verulega hagnýtar rannsóknir í þágu atvinnuveganna og styrkja betur en nú samband fyrirtækja, rannsóknar- stofnana og Háskólans,” sagði Víglundur Þorsteinsson, formaður F élags islenskra iönrekenda. -KMU. Framkvæmdanefnd rauðu fjaðrarinnar 1985 en hana skipa Ingi Ingimundar- son, Gylfi Þórðarson, Jóhann Einvarðsson, formaður, Þórunn Gestsdóttiur og Björn Magnússon. Á myndinni er einnig Þórhallur Arason, ritari fjölumdæmisráðs Lions. DV-mynd KAE „FJÖÐUR í HATT ÞJOÐARINNAR” Dagana 12,—14. apríl nk. fer fram landssöfnun á vegum lions- hreyfingarinnar á Islandi. Þau tæplega þrjú þúsund konur og karlar, sem eru félagsmenn í Lions, munu þá selja rauöar f jaörir um allt land. „Þetta er í fjóröa sinn sem lionsmenn selja rauöa f jöður hér á landi — nú undir kjöroröinu „fjööur í hatt þjóðarinnar”. Söfnunarfénu veröur variö tU kaupa á línuhraöli sem er geislalækninga- tæki. Nýlega var fyrsta skóflustungan tekin viö K-byggingu Landspítalans en þangað fer linuhraöallinn. Frumskilyröi fyrir kaupum á slíku tæki er aö fyrir hendi sé sérhæfö bygging og vonir standa til að K- byggingin veröi tilbúin þegar línu- hraðallinn kemur til landsins. Arlega eru 250 til 300 krabbameins- sjúklingar meðhöndlaöir með kóbalt- tæki Landspítalans. Má ætla aö um helmingur þeirra þyrfti geislun í línu- hraðli. Kóbalttækiö er oröiö fimmtán ára gamalt og mjög slitið. Utilokaö er aö byggja áframhaldandi geislameöferö á Islandiá því tæki. Sérstök fimm manna framkvæmda- nefnd hefur veriö skipuö hjá fjöl- umdæmisráöi Lions sem annast skipu- lag og yfirstjórn á sölu rauöu fjaðrarinnar. Formaöur fram- kvæmdanefndarinnar er Jóhann Einvarösson, aðstoöarmaöur félags- málaráðherra. Takmark lionsmanna er aö hver landsmaöur beri rauöa fjööur helgina eftir páska. -þg Rannsókn „leigubflamála" lokið: „ÓMERKILEGAR, ÓDÝRAR LYGAR” — segir stöðvarstjori Steindors Lögreglurannsóknum í leigubílamál- um er lokiö. Lögreglan í Kópavogi hefur lokiö rannsókn á atburöinum sem átti sér staö þar þegar tvær fram- rúður voru brotnar. Máliö hefur verið sent til ríkissaksóknara. fteykjavikurlögreglan hefur einnig lokiö rannsókn sinni i sambandi viö „leigubíla”. Þaö mál, sem þar hefur veriö í rannsókn, snýst aðallega um bílstjóra sem ók fólki ólöglega hjá Steindóri. Ekki er vitaö hvort ákært verður í því máli en eftir helgi veröur málið sent ríkissaksóknara. Leigubílstjórar í Frama hafa sagt um rúðubrotin að Steindórsmenn hafi sviösettþau. „Þaö eru ódýrar og ómerkilegar lygar að þetta hafi verið sviðsett af okkar hálfu,” segir Guömundur Rúnar Asmundsson, stöövarstjóri á Steindóri. Hann segir aö formaöur Frama, Guömundur Valdimarsson, sé í farar- broddi að bera þetta út. „Eg bara spyr: Hversu lengi ætlar hann aö bakka upp sína menn? Ætlar hann að bakka þá upp jafnvel þegar þeir hafa oröið mannsbani, sem hæg- lega heföi getaö oröiö í þessu tilviki?” segir stöðvarstjóri á Steindóri. -APH. Kona mikið slösuð Kona var flutt á gjörgæslu alvarlega slösuö eftir haröan árekstur á mótum Nýbýlavegar og Stórahjalla sl. mánu- dag. Varö áreksturinn um klukkan hálf- níu um morguninn og auglýsir lögregl- an í Kópavogi eftir vitnum aö slysinu. Bifreiöamar voru Fiat fólksbill og Ford Bronco jeppi. Þeir sem kunna að hafa orðiö vitni að umferöai-slysinu eru beönir að hafa samband viö lögregluna í Kópavogi semfyrst. -EH. Hér færð ÞÚ svarið Daglega þarf fjöldi fólks að leita upplýsinga um islenskfyrirtæki, starfsemi þeirraog starfsmenn bæði vegna viðskiptaerinda og annars. Slíkt er oft tímafrekt og fyrirhafnarsamt. í bókinni ÍSLENSK FYRIRTÆK11985 er að finna svör við flestum spurningum um íslenskfyrirtæki og eru upplýsingarnar settarfram á aðgengilegan hátt, þannig að auðvelt á að vera að finna það sem leitað er að. ÍSLENSK FYRIRTÆKI er ekki bók sem menn grípa með sér í rúmið til skemmtilesturs, heldur bók sem hefur margþætt notagildi og sparar tíma og fyrirhöfn. ÍSLENSK FYRIRTÆKI er handbók sem ómetanlegt er að hafa við höndina. í bókinni ÍSLENSK FYRIRTÆK11985 er m.a. að finna: ★ Skrá yfir útflytjendur ★ Umboðaskrá ★ Vöru- og þjónustuskrá ★ Skrá yfir íslensk fyrirtæki og helstu starfsmenn þeirra ★ Skipaskrá. Hafðu ÍSLENSK FYRIRTÆK11985 við höndina ÍSLCNSK FVftlftTflEKI Ármúla 18 — 108 Reykjavík — ísland — Sími 82300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.