Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 4
4 Dy, MÁNUDAGUR1. JtJLI 1985. Náttfari 776 frá Ytra-Dalsgerði ásamt knapanum, Jóhanni Þorsteinssyni frá Miðsitju, í einum þeirra mörgu glæsiskeiðspretta. (DV-mynd EJ) Náttfari sigurveg- ari fjórðungsmótsins Fjóröungsmóti sunnlenskra hesta- manna lauk í gær í Víðidal. Mótið fór vel fram, skipulagning til fyrirmynd- ar og er talið aö milli fimm og sex þúsund manns hafi komið á svæðið. Heldur minna er vonast var eftir og vita menn ekki skýringu á fólksfæð. Veörið var rysjótt. Veðurguðimir höfðu ekki stillt saman strengi sína og spiluöu af fingrum fram moll í sól og skúr. En það sem mestu máli skipti var aö veðriö var gott þegar þess varmestþörf. Margt fallegra hrossa kom fram á þessu móti. Til dæmis voru 17 hryssur með 1. verðlaun og eru það þrisvar sinnum fleiri hryssur en á síðasta F M á Suðurlandi. Náttfari 776 frá Ytra-Dalsgerði kom sterkur út' úr þessu móti. Ekki einungis stóð hann efstur í flokki stóðhesta með af- kvæmi með einkunnina 8,14 heldur átti hann fimm af sautján 1. verðlaunahryssum og einn af fimm stóðhestum sem náðu 1. verðlaunum. Auk þess voru margir fallegir gæöingar undan honum. Hrafn 802 frá Holtsmúla átti einnig mörg afkvæmi í verðlauna- sætum. Til dæmis fjóra stóðhesta af fimm með 1. verðlaun og þrjár hryssur með 1. verðlaun. Annars urðu helstu sigurvegarar þessir: I töltkeppni svo og B flokki sigraði Snjall frá Gerðum og var Olil Amble knapi í báðum tilvikum og keppti fyrir hestamannafélagið Geysi. Snjall fékk 8,71 í einkunn í B flokki. I A flokki gæðinga sigraöi Júní frá Syðri-Gróf (Sleipni) með einkunnina 8,49. Knapi var Einar öder Magnús- son. 1 eldri flokki unglinga sigraði Ingólfur Þorvaldsson (Sleipni) á Krumma og fékk 8,44 í einkunn. I yngri flokki unglinga sigraði Berg- lind Ragnarsdóttir (Andvara) á Lýsingi með einkunnina 8,37. Náttfari 776 frá Ytra-Dalsgerði stóð efstur stóðhesta með afkvæmi með einkunnina 8,14. Viðar 979 frá Viðvík stóð efstur stóðhesta sex vetra og eldri með aðaleinkunn 8,17. Stígur 1017 frá Kjartansstöðum stóð efstur í flokki fimm vetra stóðhesta með einkunnina 8,15 og 1. verðlaun eins og Viðar frá Viðvík. Ljóri 1022 frá Kirkjubæ stóð efstur fjögurra vetra stóðhesta með einkunnina 8,00 og 1. verðlaun. Nótt 3723 frá Kröggólfsstöðum stóð efst hryssna með afkvæmi með einkunnina 8,08 og 1. verðlaun. Kolbrá 5354 frá Kjamholtum stóð efst hryssna sex vetra og eldri með einkunnina 8,20 og 1. verðlaun. Engin hryssa í fimm vetra flokknum fékk 1. verðlaun en efst stóð Gæfa 6174 frá Stóra-Hofi með einkunnina 7,95. Ein hryssa, fjögurra vetra, fékk 1. verölaun og var þar um að ræða Hremsu 6189 frá Stóra-Hofi. Hún fékk einkunnina 8,01. Góðir tímar náðust í kappreiðum. Til dæmis jafnaði Penni frá Arnar- holti Islandsmetiö í 150 metra skeiöi, rann skeiðið á 13,8 sek. Eigandi og Knapi var Magnús Halldórsson. Lótus sigraði í 250 metra stökk. Sigurvegari í A-flokkl, Júní, og knapinn, E'mar ödar Magnússon. Afhent verðlaun i B-flokki. Halldór Sigurðsson gullsmiður afhendir Guðna Kristinssyni, eiganda Snjalls sem var efstur í B-flokki, sérstök verðlaun fyrir hæstu einkunn. Knapi Róbert Jónsson en eigandi Kristinn Guðnason. I 350 metra stökki sigraði Léttir Guðbjargar Þorvaldsdóttur sem Sigurlaug Anna Auðunsdóttir sat á 24,38 sek. I 250 metra skeiði sigraöi Villingur á 22,8 sek., knapi var Eiríkur Guðmunds- son en eigandi Höröur G. Albertsson. 300 metra brokk sigraöi Sörli Guðjóns Halldórssonar sem Magnús Halldórsson sat á 34,57 sek. 800 metra stökk sigraði Lýsingur á 59,18 sek. Knapi Jón Olafur Jóhannesson en eigandi F jóla Runólfsdóttir. Auk hefðbundinna keppnisatriða á fjórðungsmótum var sýning ræktunarbúa, dansleikir og kvöld- vaka sem þótti heppnast sérstaklega vel. Stutt atriöi voru á dagskrá, flest tengd hestamennsku, og flutt að mestu af hestamönnum en einnig leikurum, alþingismönnum, prestum og fleirum. Aldnir sunnlenskir hesta- menn sýndu reið og þótti það há- punkturinn er Þoriákur Ottesen sem stendur á níræðu lagði hest sinn á flugskeið í kvöldhúminu. Einnig verður sprettur Þorkels B jamasonar og Náttfara eftirminnilegur. Meira síðar. EJ. í dag mælir Dagfari I dag mælir Pagfari I dag rrtælir Dagfari Þingtrúðar á hestamannamóti Pólitíkusar hafa lengið fengið skemmtikrafta til trúðleika þá haldnar eru samkomur á vegum stjórnmálaflokkanna. Hefur þetta þótt nokkuð örugg aðferð tíl að lokka fólk tU að koma og þar með gefist tækifæri tU að koma að nokkr- um áróðri þegar trúðarnir fara í pásu. Nú virðist þetta hins vegar hafa snúist við. Alþingismenn hafa tekið við hlutverki trúðsins á sam- komum hestamanna. Samkvæmt fréttum blaða eru það þó ekki aðeins þingmenn sem koma hestamönnum tU aðstoðar á þennan hátt, heldur einnig nokkrir prestar og leikarar. Samkvæmt sömu heim- Udum á að nota Árna Johnsen, Guö- mund Einarsson, Davíð Aðalsteins- son, Kjartan Jóhannsson og Olaf Þ. Þórðarson tU trúðleikanna. Skemmt- unin átti að vera fólgln í því, að þess- ir menn færu í kappreið mikla að dúkuð borði'hvar á stæðu freyðandi bjórkönnur. Knaparnir éttu síðan að stíga af baki, tæma könnurnar og þeysa aftur tU baka. Ekki hefur Dag- fari haft spurnir af úrsiltum í keppni þessari. Hann sleppti að mæta af þeirri einföldu ástæðu að enginn þeirra þingmanna sem nefndir voru hér að framan eru kunnir fyrir skemmtUegheit nema siður væri. En ekki skal dregið i efa að trúðarnir hafa teklð sig vel út, þeysandi á bikkjunum við fagnaðaróp hrossa- bænda og annarra áhorfenda. Og væntanlega hefur þetta verið hörð og jöfn keppni mUli leikhópanna þriggja. Þingmenn hafa stundum komið fram á samkomum sem haldnar eru i góðgerðarskyni, spark- að fótbolta eða ekið i hjólastólum og skal slikt ekki lastað. En er það ekki nokkuð langt gengið þegar þeir opin- bera löngun sina i athygU fjöldans með þeim hætti sem gert var á hrossaskraUinu i Víðidal. Og eflaust fylgir eitthvað fieira á eftir. Það má til dæmis gera ráö fyrir að diskókóngurinn i Broadway hafi upp- götvað Aiþingi sem útungunarvél f yrir grinara. Kannski að OU Laufdal fari nú að auglýsa keppni mUli þlng- manna um að reykja stóra vindla á sem skemmstum tima, borða söl án þess að snerta það með höndunum, fegurðarsamkeppnl þingmanna og þannig mætti lengi telja því mögu- leikarnir eru óteljandi. Enda er það aUs ekki útUokað að þingmenn geti verið skemmtUegir fyrir fólk á fjórða glasi og ekkl er endalaust hægt að nota Omar og Ríótríóið. Og nú hafa menn séð að það þarf ekki lengur að nota leikara í aukahlut- verk þingmanna i áramótaskaupi sjónvarpsins. Það er miklu ódýrara að nota bara ekta þingmenn og eins og allir vita snýst rekstur sjónvarps- ins fyrst og fremst i kringum spam- að á öUum sviðum. Fyrir þá sem ekki fylgdust með trúðleikum á móti hestamanna er ef tU vUl rétt að upplýsa að auk þing- manna, presta, og leikara komu þaraa fram ræningjarnir Kasper, Jesper og Jónatan, Flosi Olafsson, Stuðmenn, Megas og Lína Langsokk- ur. Hins vegar er ekki að s já að neinn fuUtrúi hafi mætt frá KvennaUstan- um, hvernig sem á þvi stendur. Davið Oddsson mætti vist ekki heid- ur á mótið, en lét nægja sem sitt framlag aö láta mynda sig i hest- vagni á leið um götur borgarinnar. Kann það að vera fyrirboði þess sem koma skal þvi ekki ku það óaigengt að erlent fyrirfólk láti aka sér f hest- vögnum um strætin svo lýðurinn fái tækifæri tU að votta vlðkomandi und- irgefni sina og lotningu. Þá bar ekk- ert á Steingrimi þennan dag og hiýt- ur ástæðan að hafa verið fjarvera ráðherrans úr bænum. Nú bíðum við bara eftir Sumargleðiflokki þing- manna á þeyslreið um landlð. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.