Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 27
DV. MÁNUDAGUR1. JULI1985. íþróttir íþróttir Ásbjöra með tvist — Ásbjörn Björnsson skoraði bæði mörk KR-inga er þeir sigruðu Víðismenn í Garðinum Víðismenn töpuðu sínum fyrsta Ieik á nýja grasvellinum fyrir KR-ingum á laugardaginn og geta huggað sig við það eitt að fall sé fararheill. Sigrarnir á þessum nýja velli komi seinna. Staðan í hálfleik var jöfn, 0:0, en KR- ingar voru yflrleitt meira í sókn og úrslitin réttlát. Víðismenn eru því enn í næstneðsta sæti og verða að spjara sig í næstu leikjum ef þeir ætia að halda sér í deildinni. Fyrir KR-inga hafa þrjú stigin sem þeir höfðu með sér úr Garðinum mikla þýðingu. Þeir geta farið að blanda sér í baráttuna um ann- að sætið eins og svo mörg önnur lið. mörk KR-inga i Garðinum. Veður til knattspyrnu var hið besta, logn og sólarlaust, en aðeins duttu dropar úr lofti í seinni hálfleik, svona rétt til að vökva þurrt nýja grasiö. KR- ingarnir komu þrælgrimmir til leiksins og þjörmuðu mjög að hikandi Víðis- piltum sem áttu í mestu erfiðleikum með að koma knettinum fram fyrir miðju fyrsta stundarfjórðunginn. KR- ingarnir létu sóknaraðgerðirnar ganga meðfram hliðarlínunum — kannski vissu þeir aö Víðismenn voru óvanir breiðum velli, en þrátt fyrir nokkrar hornspymur tókst KR-ingum ekki aö finna knettinum leiö í Víðismark-1 ið, reyndu um of að spila sig í gegn í staö þess að skjóta strax. Einna hættulegasta tækifærið átti Asbjöm Ragnarsson á 32. min. en knötturinn smaug rétt hjá marksúlunni. Víðir skapaði sér aðeins eitt gott marktæki- færi í fyrri hálfleik, þegar Svanur Þor- steinsson fékk sendingu inn í vítateig- inn — en í stað þess að skjóta strax tók hann tvö skref og missti af knettinum. Þrátt fyrir öilu meiri sókn gekk hvorki né rak hjá KR-ingum þegar að marki kom. Þeir voru næst því að skora í fyrri hálfleik þegar Bjöm Rafnsson þaut eins og elding fram meö hliðarlínu allt frá miðju og inn á mark- teig Víöis og skaut en Gísli Heiöarsson, sem var þó ekki öruggur í markinu, varði meistaralega á 41. mínútunni. KR-ingar lögðu sig mjög fram strax i seinni h&lflelk til að knýja fram mark en Viðismenn voru fastir fyrir eða björguðu á eUeftu stundu, þar af tvisvar á Iínu, þeir ðlafur Róbertsson og GísU Eyjólfsson. 1 fyrra sinnið varþað skot frá Asblmi Bjömssyni en Ásbjöra átti eftir að komast lengra áielðis með knöttinn þótt sfðar yrði. A 55. min. kom knötturinn svifandi fri vbistri inn á marktelgsbom Viðis. GisU mark- vörður vb-tist geta gripið hann en stóð kyrr, fálmaði til knattarins sem hrökk að lokum tU Ásbjöms sem sendi hann í netið, 0:1. Asbjöm var aftur að verki á 86. min. Jálius Þorfinnsson skaut hörkuskoti í marksúluna. Kötturinn hrökk fram i vítateiginn þar sem Asbjöm kom þjótandi og skoraði örugglega með föstu skoti, óverjandi fyrir Gísla, 0—2. Vfðismenn náðu nokkmm skyndisóknum i bálfleiknum en aldrei skapaðist vemleg hætta við KR-marklð. Grétar Einarsson og Guð- mundur Jens Knátsson, kominn á fyrir Svan i f.h., áttu skot ár sæmUegum fæmm en fram hjá marki. Dómari: Baidur Scheving og hafði gott vaid á verkefni sinu. Áhorfendur: 710. Lið Viðis, GísU Heiðarsson, GisU Eyjólfsson, Klemenz Sæmundsson, Guðjón Guðmundsson, ðlafur Róbertsson, Danicl Einarsson, Grétar Ein- arsson, Svanur Þorsteinsson (Guðmundur Knátssson (27. min.) VUberg Þorvaldsson, Sigurður Magnásson, Einar Ásbjöm Olafs- son. Lið KR: Stefán Jóhanusson, Gunnar Gislason, Háifdán Orlygsson, Jósteinn Einars- son, Stefán Pétursson, Ágúst Már Jónsson, WUlum Þórsson, Sæbjöm Guðmundsson, Ás- björn Björnsson, Björa Rafnsson, JáUus Þorfinnsson, Gult spjald, WUlum Þórsson, 82. min. Maður leiksins Ásbjöm Bjömsson KR. emm. Athugasemdir f rá aðalstjórn Ágæti ritstjóri. I þínu annars ágæta I blaði sl. föstudag er komist svo að orði um Knattspymufélagið Víking aö allt sé að fara í hund og kött. Blaöamaður virðist draga þá ályktun vegna þess að ákveðinn leikmaður sé að hætta aö leika með meistaraflokki vegna óánægju með þjálfara, mikill fjár- hagsvandi sé hjá félaginu og félags- heimilið á nauðungaruppboði. Vegna þessarar ályktunar viljum við vekja athygli á eftirfarandi: Leikmennkoma og fara frá íþróttafélögum núorðið án mikilla afskipta hinna ýmsu félags- stjóma af ástæðum þeirra flutninga en eflaust getur margt spilað þar inn í. Um fjárhagsvanda knattspyrnudeild- ar er það að segja að hann hefur lag- ast, en hvort rétt sé að f jalla mikið um nánari útlistanir í blöðum skal ósagt,, látið. Stjóm knattspyrnudeildar mun væntanlega svara fyrir einstök mál í samb. við umfjöllun DV á þeirra högum, eftir umfjöllun í sínum her- búðum. Varðandi það að félagsheimilið hafi lent á nauðungamppboði er það að| segja aö þar sem ákveðnir þjálfarar hjá félaginu hafa ekki skilaö skatta- skýrslum fyrir ákveðin tímabil er félagið gert ábyrgt fyrir áætluðum sköttum þeirra. Það hefur lengi verið unnið i þessu máli en nú hillir undir úr- slit í því máli. Hr. ritstjóri. Þar sem okkur Vikingum frnnst ósmekklegt að ráðast á stjóm félagsins og stjórn knatt- spymudeildar án þess svo mikið sem bjóða okkur að koma með skýringar á sjónarmiöum okkar, teldum viö eðlilegt að ef fjalla á um innra starf okkar félags eða annarra, að leitað sé til þeirra sem stjóma félögunum áður en tekið er fram stóra letrið um hund ogkött. Með von um jákvæða meðhöndlun í íþróttaskrifum í framtiöinni. Aðalstjórn Knattspymufélagsins Víkings. Gunnar Jónasson. Athugasemdir blaðamanns Svar aðalstjóraar við greininni i DV á föstudag hér að ofan er eðillega i máttlausara lagi. Og brotthvarf tígmundar Kristinssonar frá félaginu varð ekki kveikjan að grein undlrrftaðs sem svo mjög hcfur farið fyrir brjóstið á Vikingum. Það sem átti allan þátt að fæðlngu þessarar greinar var elnfaldiega hmn Vikingsliðsins og grátmáttlaus stjóm knattspymudelidar. Staðreyndir sem þeir sem hiut elga að máli vilja ekki kannast við. Viklngum væri nær að eyða tima sínum i að toga bjálkann ár elgln auga í stað þess að reyna að draga flísina ár þcim sem fara með rétt mál og segja frá staðreyndum. Grelnln sem undirrltaður skrifaði á föstudag er skot- held, allt scm kemur fram f henni er rétt. -SK. 27 SPARTA LAU6AVEGI49 SÍMI23610 SÍM112024 Fyrir sumarleyfið. Glæsilegt gallaúrval. EE _______I EUROCAB Opið laugardaga. Póstsendum. SPORTVÖRUVERSLUNIN Laugavegi 49, sími 23610. Don Cano glansgallar, nr.6-8, kr. 3.315, nr. 10-12, kr. 3.520, nr. XS-XL, kr. 3.720. Henson Le Bon bómullargallar, gulir og bleikir, nr. 32 - 34 - 36- 38, kr. 1.998. H^O gallar, 100% bómull, í frábær um litasamsetningum, nr. XS-XL, frá kr. 2.385. Markmannstreyjur, markmannsbuxur, stuttar og síðar, markmannshanskar, öll númer. Hummel glansgallar í mildum past- ellitum, nr. 38 - 46, kr. 2.853. Adidas Mississippi, 3 litir (franskur). nr. 102-156, kr. 1.523, nr. 162-192, kr. 1.792. Adidas Wembley (franskur), nr. 126-156, kr. 1.637, nr. 162-192, kr. 1.907. Adidas New York, nr. 34 — 52, dökkblár, og Ijósblár, kr. 3.734. Nýtt, nýtt, Don Cano bómullarhettugallar, nr.6-8, kr. 2.112, nr. 10-12, kr. 2.412, nr. XS-XL, kr. 2.822. þessir gallar eru með upphleyptu prentl. Henson glanshettugallar, nr. 22 — 36, margir litir, kr. 2.747 - 2.999. mmmi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.