Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 5
DV. MANUDAGUR1. JULI1985. 5 Albert Guðmundsson: „Enginn vill auka skuldir þjóðarínnar” „En eigum við endalaust að taka erlend lán til að gera við vegi sem skolast í burtu í næstu rigningu?” „Auðvitaö vill enginn auka skuldir þjóðarinnar frekar en eigum við endalaust aö taka erlend lán, safna skuldum til að gera við vegi sem kannski skolast í burtu í næstu rign- ingu?” Þetta sagöi Albert Guðmundsson fjármálaráðherra er DV spurði hvort hann væri tilbúinn að styðja við bakið á Matthíasi Bjarnasyni og taka erlend lán til að flýta fyrir lagn- ingu bundins slitlags á landinu. „Matthias er stórhuga maður og við eigum að styðja við bakið á slíkum mönnum, fylgja athafna- mönnum eftir. Þess vegna fagna ég því að Matthías vilji út i þessar f ram- kvæmdir. Við þurfum að setjast niður og ræða málin, sjá hvað við höfum efni á að gera, hvort við viljum leysa málin fyrir framtíðina, gera vegina varanlega eða ekki. Sjálfur hef ég alltaf verið þeirrar skoöunar aö við eigum að vegavæða landið eins og við höfum rafvætt það. Það má líkja rafkerfinu við tauga- kerfi þjóðarinnar, og vegunum því við lífæð þjóðarinnar. Og þeim fjár- munum er ekki aöeins vel varið sem fara í vegi, þeir eru nauðsynlegir.” — En ertu þá til í að auka erlend lán og styðja við bakið á Matthíasi í vegaframkvæmdum? „Það má ekki tala eins og erlendar lántökur og lagning vega séu einka- mál okkar Matthíasar. Þegar til kastanna kemur er það Alþingi sem tekur ákvörðun í þessummálum. -JGH Vegaáætlun 1650 milljónir: Aðeins 145 milljónir fara í nýtt slitlag Háskólahátíð var haldin á laugardaginn. Brautskráðir voru a tjorða hundrað kandídatar. Flestir eða 54 með BA próf úr heimspekideild en næststærsti hópurinn var 50 manns með embættispróf i læknisfræði. Á myndinni sést Guðmundur Magnússon háskólarektor óska einum hinna nýútskrifuðu lækna, Önnu Geirsdóttur, til hamingju. DV-mynd VHV. Hestamenn á víðavangi Töluverð ölvun var á dansleik er haldinn var á fjórðungsmóti hesta- manna í Víðidal á laugardagskvöld- iö. „Við vorum aö keyra menn heim allt fram til klukkan sex um morgun- inn,” sagði lögreglumaður í Árbæ í samtali við DV. „Sumir rötuðu ekki heim, aðrir höfðu lagst til svefns í göröum hérna í Árbænum og einn fundum við sofandi niðri á Miklatúni. Viö þekktum þá alla af plastarm- bandi sem þeir höfðu á hendinni og gilti sem aðgöngumiði,” sagði lög- reglumaðurinn. -EIR. — en beint viðhald malarvega kostar tæpar 400 milljónir Alls verða 1650 milljónir króna settar í vegagerð á þessu ári. Þar af er 661 milljón í viðhald gamalla vega og 678 milljónir í nýjar framkvæmdir. Það er athyglisvert að aðeins er varið 145 milljónum króna í lagningu bundins slitlags, nýjar framkvæmdir, af heildarupphæðinni 1650 milljónum kr. Og það kostar þjóðina skildinginn aö gera við malarvegina. Viðhald malar- vega nemur 169 milljónum, heflun malarvega 88 milljónum, rykbinding 32 milljónum, mölun 82 milljónir, alls 371 milljón. Það þarf aö halda vegum með bundið slitlag við á hverju ári, í þetta skiptið er eytt í það 96 milljónum kr. Sú upp- hæð er ekki inni í 145 milljónunum sem ætlaðar eru í nýlagningu bundins slit- lags. I brúargerð er áætlað aö eyða 57 milljónum króna. Og rekstur vega- gerðarinnar kostar 81 milljón, stjómunarkostnaður. Setjum þetta í töflu: Vegaáætlun: 1650 milljónir kr. fara í: Viðhaldvega: 661 Nýjarframkv.: 678 Brýr: 57 Fjallvegi: 19 Kaupst./kaupt.: 96 Stjórnk.: 81 Annað: 58 1650 -JGH Millisvæðamótið íBiel: Margeir áttundi — samkvæmt nýju ELO-stigunum Frá Jóni L. Árnasyni, fréttaritara DV á millisvæðamótinu í Biel: Margeir Pétursson er áttundi stiga- hæstur þeirra skákmanna sem taka þátt í millisvæðamótinu í Biel, sam- kvæmt nýju ELO stigunum sem taka gildiídag. Fjórir efstu menn á mótinu komast áfram í áskorendakeppnina og má því segja að með smáheppni ætti Margeir að eiga möguleika á því, en við ramman reip er að draga. Mótið er í 12. styrkleikaflokki og þarf Margeir 10 og hálfan vinning til að tryggja sér stórmeistaratitil. Átján keppendur taka þátt. Samkvæmt nýju ELO stigunum er Karpov heimsmeistari orðinn stiga- hæstur á ný með 2720 og kemur Kasparov næstur á eftir. Til gamans má geta að Fischer var með 2780 þegar best lét. Ekki er enn ljóst við hvern Margeir teflir í fyrstu umferð því dregið er um töfluröð rétt áður en sest er að skák- borðinu. Stigahæstu menn mótsins sam- kvæmt nýju ELO stigunum eru 1. Vaganjan (2625 ) 2. Ljubeovich (2615) 3. Polugajevsky (2600) 4. Anderson (2590 ) 5. Short (2575) 6. Seirawan (2570 ) 7. Sokolov (2555 ) 8. Margeir (2550 ) 9.-10. Torre (2535 ) 9.-10. Sax (2535) 11. Quinteros (2525) 12. Van der Wiel (2520) 13. Rodriguez (2505) 14. Goodman (2485) 15. Jansa (2480) 16. Li (2465) 17. Martin (2430) 18. Partos (2425). Göngu-Reynir í Vestmannaeyjum Göngu-Reynir kom í opinbera heim- sókn til Vestmannaeyja í boði bæjar- stjórnarinnar á laugardag. Sigldi hann með Her jólfi út í Eyjarnar og var fagn- aö þar af fjölmenni. Skrúðganga með homaflokk í fararbroddi gekk upp í bæ þar sem forseti bæjarstjómar Vest- mannaeyja færði Reyni álitlega peningagjöf til íþróttahússbyggingar- innar í Sólheimum. I gær var Reyni síðan boðið í báts- ferð umhverfis Vestmannaeyjar í fylgd Sigurðar Jónssonar, forseta bæjarstjórnar, og Arna Johnsen alþingismanns. Að henni lokinni var göngugarpurinn kynntur fyrir íbúum EUiheimDisins í Eyjum. -EHt. mm Hefur þig ekki alltaf langaö aö eignast torfærubíl ... en ekki lagt í þaö vegna verösins? sfíM hefur okkur tekist aö Mm veröiö úr 420.000 í aöeins Standardútgáfa af Lödu Sport meö ryövörn P.S.: Við bjóðum að auki okkar rómuðu greíðslukjör. BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF. 'Tl'VJn'Tl' > cvvnTim Aimcnn atit i * c . Qconn c cni vmrn oioofi SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEELD: 31236

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.