Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 16
16 Spurningin Treystirþú þér til að ganga hringinn um landið? Jón Haukur Danielsson kennari: Nei, ég mundi ekki nenna því en ég vil nota tækifæriö og senda Reyni Pétri kæra kveðju fró íþróttafélaginu ösp. Njáll Kjartansson múrari: Nei, ekki nema aö þjálfa mig upp til þess fyrst. Ingibjörg Sigurðardóttir húsmóðir: Eg held varla, maður þarf að vera í góðu líkamlegu ástandi til að ganga hringinn. Hildur Thors nemi: Eg held ekki. Þórey Pálsdóttir húsmóðir: Nei, ég hugsa ekki. Eg held aö ég hefði ekki þrek í það. Þórður Aðalsteinsson blaðasali: Varla. Það er liklega of erfitt og svo er ég of ungur. DV. MANUDAGUR1. JtJhl 1985. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hvernig vill Jón Óttar haga verðstýringu á bjór? Góður matur íKjötbúðinni Borg Guðmundur Karlsson hringdi: Vegna skrifa á Neytendasíðu DV um kónguló í mat frá Kjötbúðinni Borg vil ég koma á framfæri mót- mælum. Eg hef keypt mat þar nú í sumar, 10 skammta á dag. Maturinn hefur alltaf verið mjög góður og starfsmönnum minum líkað vel viö hann. Reyndar hef ég keypt mat þama í lengri tíma og nokkuð reglu- lega og aldrei orðið var viö neitt í matnum hjá mér eða þeim sem ég versla fyrir. Gæðin og veröið á matn- um h já Þorbirni í Borg er það gott að ég get ekki annað en verið ánægður. Lækkun á rafmagnsverði: Töluleikur Maður hringdi: Nýlega var verð á rafmagni frá Rafmagnsveitunni lækkaö úr 3,88 krónum á kílóvattstund niður i 3,60. Jafnframt var sett aukagjald á hvem mæli sem nemur 1400 krónum. Þessi lækkun er því í raun ekkert annað en blekking og nýtist þeim sem sist skyldi. Efnalitiö fólk, sem notar lítið rafmagn, borgar jafnháan eða hærri rafmagnsreikning en áður en fólk sem notar mikið rafmagn, á þvottavélar, uppþvottavélar og önn- ur ólíka rafmagnstæki, sem og fyrir- tæki, ber hagnað af lækkuninni, lítinn þó. Það þarf 13 kílóvattstundir tilaöþettaberisig. SANDALAR Efni: Plast Litur: Rautt Verð aðeins kr. 195,- Sendum í póstkröfu AUSTURSTRÆTIÍO SÍMI 27211 Halldór Kristjánsson skrifar: Doktor Jón Ottar Ragnarsson hef- ur haldið því f ram að með þ ví að gefa mönnum kost á að kaupa áfengan bjór og hafa rétta verðstýringu áfengismála mætti stórbæta drykkjusiði Islendinga. Eg hef viljað ræða þetta mál viö doktorinn. Þess vegna spurði ég fyrir nokkm hvemig hann vildi haga verð- stýringunni. Hvað ætti áfengi bjórinn aðkostanú? Þetta er grundvallarspurning í málinu. Maður sem er sannfærður um gildi verðstýringar hlýtur að hafa hugsað þetta. Hann hlýtur að hafa svar á reiöum höndum. Annars væri hann bara að blaðra um mál sem hann hefur ekki hugsaö til enda og ekki gert sér grein fyrir. Hver trúir því að svo sé ástatt með dr. Jón Ottar Ragnarsson? Þar sem það hefur lent í undan- drætti hjá dr. Jóni Ottari að upplýsa mig og aöra um tilhögun þessarar verðstýringar ítreka ég nú þau til- mæli að hann birti opinberlega hvað hann telur heppilegt verðhlutfall áfengistegundanna. Hvemig vildi hann verðleggja bjór og brennivín ef hann mætti nú ráða? Enda þótt Jón Baldvin og félagar Bílaíþróttir og bítlatónlist Seyðflrðingur hringdi: Við höfum rætt það hér nokkrir kunningjar að lítið sé sýnt frá bíla- íþróttum í íþróttaþáttum sjónvarps. Það heyrir til undantekninga og þá er í mesta lagi sýnt frá einhverjum kapp- akstri úti í heimi. Nú er tímabil bíla- íþrótta hér á landi. Um hverja helgi er einhvers konar keppni; rallakstur, kvartmiluakstur eða sandspyrna. Sjónvarpið má til með að taka við sér í þessu efni enda era áhugamenn um bílaíþróttir fjölmargir. I annan stað langar mig til að minn- ast á tónleikana sem era i Broadway um þessar mundir, — innrás sjöunda áratugarins . Mér þætti gaman að vita hvort sjónvarpið hefði hugsað sér að taka þessa tónleika upp á mynd- band. Hér er eflaust mjög vönduð skemmtun á ferð og sjálfsagt aö gefa allri þjóöinni tækifæri á að njóta henn- ar í einhverjum mæli. Seyðfirðingi finnst að sýna mœtti meira frá bilaíþróttum í sjónvarpi. hans kæmu ekki bjórmáh sínu gegn- um þingið að þessu sinni verður áfengislöggjöf og áfengismál undir stöðugri endurskoöun framvegis. Jón Ottar ætti því aö sjá aö hér er verið að biðja hann um að birta þau rök sem liggja til grandvallar þeirri stefnu sem hann boðar og trúir á. Hitt er svo annað mál að nokkuö mis- jafnt kann að vera hverja trú við höf- um hvert og eitt á verðstýringunni. En fyrst þarf að lýsa henni fyrir okk- ur. Þar sem Jón Ottar verður að telj- ast iðjumaður við blaðaskrif vona ég aö hann láti nú ekki bíöa lengi eftir sér. Halldór segir að þótt Jón Baldvin og fólagar hans kœmu ekki bjór- máli sinu gegnum þingið að þessu sinni verði áfengislöggjöf og áfengismál undir stöðugri endur- skoðun framvegis. Hlustið á tónlist „Frankie”-aðdáandi skrifar: Lágtvirtu Duran Duran aðdáendur! Eruö þið svo vitlausir aö skilja ekki að Duran Duran er búin að vera? Reyniö frekar að hlusta á tónlist eins og t.d. Frankie goes to Hollywood spil- ar. Þið haldið því fram aö Duran Duran sé vinsælasta hljómsveitin. Það er kannski satt en hún nýtur vinsælda bara meðal 10 ára heilaþveginna barna eða ruglaðra unglinga. Duran Duran aödáendur, verið ekki svona blindir. HLUSTIÐ A TONLIST. Hinir afslöppuðu piltar í Frankie Goes to Hollywood en sumir hafa viljað kalla hljómsveit þeirra Friðgeir bregður sér i bæinn á íslensku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.