Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 24
24 DV. MANUDAGUR1. JtJLl 1985. íþróttir íþróttir Iþróttir íþróttir (þr Mikið Tjor a Akui þegar Þór vann Þrótt, 3:2, í gærkvöldi Frá Magnúsi Þorvaldssyni, frétta- manni DV á Akureyri: „Auðvitað erum við ánægðir með þennan sigur. Þetta var sanngjarnt hjá okkur og við vorum miklir kiaufar að klúðra mörgum góðum marktæki- færum. Við leiddum leikinn lengst af en vorum kiaufar að láta Þróttarana skora tvö mörk. Sérstaklega var síðara mark þeirra klaufalegt af okkar hálfu og þar átti ég nokkuð mikinn hlut að máli,” sagði Nói Björnsson, fyrirliði Þórs frá Akureyri, i samtali við DV í gærkvöldi eftir að Þór hafði sigrað Þrótt í stórskemmtilegum leik liðanna á Akureyri. Þórsarar skoruðu þrjú mörk en Þróttarar tvö. Staðan í leik- hléi var 2:0 fyrir Þór. Þróttarar áttu í fullu tré við Þórsara í byrjun leiksins og áttu síst minna í leiknum fram að því að Þórsarar skoruöu sitt fyrsta mark á 26. mínútu. Þórsarar náðu þá stórgóöri sókn. Kristján Kristjánsson gaf frábæra sendingu fyrir mark Þróttara á Bjarna Sveinbjörnsson sem skoraöi af öryggi. Bjami gaf sér góðan tíma, lagði knött- inn fyrir sig og skoraði með góðu skoti. Stuttu seinna átti Arsæll Kristjánsson góöan skalla að marki Þórsara en rétt framhjá. A 37. mínútu skoruðu Þórsarar aftur og var það nánast endurtekning á fyrsta markinu. Kristján gaf vel fyrir á Bjarna sem var óvaldaður, gat lagt knöttinn vel fyrir sig og skoraði af öryggi. Þórsarar héldu áfram að sækja eftir markið og á 40. minútu átti Nói Björnsson hörku- skot að marki Þróttar sem sleikti sam- skeytin. Nú var komið að Þrótturum. Tvisvar sinnum í sömu sókninni á markamínútunni, 43. mínútu, björguðu Þórsarar á línu og var Júlíus Tryggva- son þar að verki í bæði skiptin. Var mikill hamagangur í vítateig og mark- teig Þórsara sem sluppu svo sannar- lega með skrekkinn. Ekki voru liðnar nema tvær mínútur af síðari hálfleik þegar Bjarni Sveinbjömsson átti þrumuskot að marki Þróttar sem Guömundur Erlingsson varði stórvel. Þróttarar minnkuðu síðan muninn á 6. minútu síðari hálfleiks. Náðu þeir skyndisókn, fáir Þórsarar til vamar. Einn Þróttar- anna var að komast í marktækifæri i vítateigshorni þegar Július Tryggva- son sá þann kost vænstan að bregða viðkomandi og dæmd var vítaspyma sem Kristján Jónsson skoraði örugg- lega úr. Staðan 1:2. Þegar hér var komiö sögu tóku Þórsarar málin í sínar hendur og hver sóknin af annarri buldi á marki Þróttar. Þórsarar óðu í færum og léku stórvel. Var furðulegt að mark Þróttar skyldi sleppa án þess að knötturinn færi í netið. Það var þó á 43. mínútu, tveimur mínútum fyrir leikslok, að Þórsarar skomðu sitt þriöja mark og innsigluðu sigur sinn þar með. Bjami Sveinbjömsson hljóp vöm Þróttar af sér og gaf mjög laglegt á félaga sinn Halldór Áskelsson sem skoraði af öryggi. En Þróttarar höfðu ekki sagt sitt siöasta orö og á toka- • Ivar Hauksson varð öruggur sigur- vegari á Akranesi um helgina. Þiír bráða- banar hjá unglingunum Gífurlega hörð keppni á unglingameistaramóti íslands í golfi um helgina tvar Hauksson, GR, og Birgir Ágústsson, GV, urðu um helglna ung- lingameistarar i goifi. Þeir sigruðu í sínum aidursflokkum á unglinga- meistaramóti tslands sem fram fór á Garðavelli við Akranes. tvar Hauksson sigraði i flokki 15 ára og eldri og Iék hann 72 holur á 296 höggum. Annar varð Kristján Hjálmarsson, GH, á 303 höggum og jafnir í þriðja sæti urðu þeir Þorsteinn Hallgrímsson, GV, og Magnús Ingi Stefánsson, NK, á 308 höggum. Þor- steinn hreppti þriðja sætiö eftir mjög skemmtilegan og vel leikinn bráða- bana og vannst hann á 5. holu. Þor- steinn hafði þá leikið á tveimur höggum undir pari en Mágnús Ingi á einu höggi undir pari. Þessi frammi- staða Magnúsar vekur athygli fyrir þær sakir að hann hefur iitið sem ekkert æft né keppt í sumar. Var þetta hans fyrsta mót í sumar. 1 yngri fiokknum sigraði Birgir Ágústsson, GV, og lék hann á 309 höggum eins og Magnús Karisson, GA, en Birgir vann eftir bráðabana á 4. holu. Gífurlega hörð keppni var í þessum flokki og þurfti einnig bráða- bana um þriðja sætið. Þar urðu þeir jafnir Hilmar Viðarsson, GR, og Kristján Haraldsson, GK, og sigraði Hilmar á 3. holu. 1 s túlknaflokki mættu aðeins þrjár stúlkur til ieiks og hiýtur það að vera umhugsunarefni. Ragnhildur Sigurðardóttir sigraði í flokki 15 ára og yngri á 364 höggum. Karen Sævars- dótör, GS, varð önnur á 382 böggum. I cldri flokknum, 15 ára og cldri, sigraði Linda Hauksdóttir, GR, á 466 höggum. -SK. Souness skoraði en Hateley ktúðraði í úrslitaleik ítölsku bikarkeppninnar Breskir knattspyrnumenn spiiuðu stóra rullu í fyrri úrsiitaieik ítölsku bikarkeppninnar sem leikin var í gær á mllli Sampdoria og AC Milano. Leiknum lyktaði með sigri Sampdoria, 1—0, sem stendur því betur að vígi fyrir seinnl leik liðanna sem leikinn verður á miðvikudaginn. Það var skoskl landsliðsfyrirllðinn Graeme Souness sem skoraði sigur- mark leiksins eftir fyrirgjöf frá öðrura Breta, Trevor Francis. Francis þurfti síðan að yfirgefa leikvölllnn vegna meiðsla. Milano ieikmaöurinn Mark Hateley kom mikið við sögu, hvað eftir annað fékk hann góð tækifæri til þess að jafna ieikinn en allt kom fyrir ekki, boltinn vildi ekki bm og Sampdoria á nú mjög góða möguleika á sigri í ítölsku blkarkeppninnl í f yrsta sinn. -fros. Gott skor og hörku- keopni í GR-mótinu Margir kylfingar fóru á kostum á opna GR-mótinu Kylfingar þeir er tóku þátt í opna GR-mótinu um helgina í Grafarholti voru í miklu stuði og var skor kepp- enda mjög gott þrátt fyrir að veður væri ekki eins og best verður á kosið. Þeir Guðmundur Sigurjónsson og Ög- mundur ögmundsson, báðir í GS, sigr- uðu og fengu þeir 89 punkta. Gifurleg barátta var um annaö sætið og voru fimm næstu pör með 85 punkta. Fimm punktar eru veittir f yrir að leika holu á þremur höggum undir pari, f jórir fyrir tvö högg undir pari, þrir fyrir einn und- ir, tveir fyrir par og einn punktur fyrir að leika holu á einu höggi yfir pari. Hér koma úrslitin á mótinu: Punktar 1. GuðmundurSigurjónsson, GS ögmundur ögmundsson, GS 89 2. Tryggvi Tryggvason, GS Hjörtur Kristjánsson, GS 85 3. JóharmesÁmason.GR Gunnar Ámason, GR 85 4. PeterSalmon.GR Hermann Guðmundsson, GR 85 5. GarðarEyland.GR Haukur Björnsson, GR 85 6. OskarSæmundsson.GR Stefán Sæmundsson, GR 85 7. HrólfurHjaltason, GR Hjalti Þórarinsson, GR 83 8. Tryggvi Traustason, GK HarryHilsmann.GK 83 9. Vilhjálmur Olafsson, GR Sverrir Norðdal, GR 82 10. Agúst Guðmundsson, NK Eggert Steingrímsson, GR 82 11. Kari Jóhannsson.GR John Drummond, GR 82 Alls tóku 160 kylfingar þátt í mótinu sem fram fór á laugardag og sunnu- dag. Fjölmörg verðlaun vom veitt og meðal verðlauna voru sjö utanlands- ferðir. A stúttu brautunum vom veitt aukaverðlaun fyrir að vera næstur holu eftir upphafshögg. Sigurður Run- ólfsson, formaður Golfklúbbs Ness, ætti að geta boðið vinum og kunningj- um i svínasteik á næstunni þvi hann fékk heilan svínsskrokk fyrir að vera næstur holu á 2. braut, 78 cm f rá holu. A6. braut varGuðmundur Jónasson, GR, næstur holu, 3,62 metra frá holu og fékk að launum golfkerru og golfpoka. Jónas Karisson, GK, var næstur holu á 11. braut. Kúla hans hafnaði 86 cm frá holunni og í verðlaun fékk Jónas forláta skrifborðsstól. Þekktur kylfingur norðan heiða, Þorbergur Olafsson frá Akureyri, gerði sér lítið fyrir og nældi í utan- iandsferð með þvi aö slá kúlu sína af teig 17. brautar og hafnaði hún 1,46 metra frá holu. Þorbergur mun því ef- laust leggja land undir fót fljótlega og eflaust nota tímann til æfinga erlendis. Eins og fram hefur komið i fréttum var forláta Toyota bifreið í verðlaun til handa þeim kylfingi sem færi holu í höggi á 17. braut í gær. Enginn kylf- ingur fór holu í höggi og bifreiðin því enn til sölu. Næsta mót hjá GR er opin unglinga- mót, Nissan-mótið, og fer það fram á morgun í Grafarholtinu. -SK. „Við vorum síst lakari” — sagði Jóhannes Eðvaldsson * „Víð vonxm sist lakari aðilinn í leiknum þar ' til Þörsarar skoruðu sitt fyrsta mark. Við vorum reyndar meira með knöttinn fram að þeim tima sagði Jóbannes Eðvaldsson, þjálf- ari Þróttar, eftir að hans menn höfðu tapað fyrir Þör á Akureyri i gærkvöldi. „Það var ösanngjamt miðað við gang leiks- ins að Þórsarar skyldu skora markið á 26. mínútu. Það mark kom upp úr nákvæmlega engu,” sagði Jéhannes. M.Þ. Akureyri/SK. • Halldór Haildórsson, markvörður FH, gripur bér vel hin i sóknarlotu Framara i gær. Pétur Ormslev, lengst til hægri, sk Þeir voru margir kylfingamir sem fengu stórglæsileg verðlaun fyrir i frammistöðu sína á opna GR-mótinu i golfi í Grafarholti um belgina. Hér sjást þeir garpar sem unnu til verðlauna á mótinu. DV-myndS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.