Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Blaðsíða 21
DV. MÁNUDAGUR1. JOLI1985.
21
Argentína
til Mexíkó
— en Perú þarf að leika aukaleiki
ásamt Columbíu
Pétur atvinnumað-
ur í Finnlandi?
Finnsk körfuboltafélög hafa mikinn
áhuga á Pétri Guðmundssyni
Míklar líkur eru á því aö Pétur
Guðmundsson, hinn hávaxni
körfuknattleiksmaður, muni leika sem
atvinnumaður í 1. deild finnska
körfuboltans á næsta keppnistímabili.
Samkvæmt heimildum DV höfðu
nokkrir Finnar samband við Einar
Bollason á síðasta Noröurlandamóti í
körfuknattleik til að spyrjast fyrir um
Pétur. Höfðu þeir mikinn áhuga á þess-
um hávaxna Islendingi. Ekki er að efa
að Pétur myndi sóma sér vel í finnsk-
um körfuknattleik sem er hátt skrif-
aður í Evrópu. Pétur hefur í sumar
feröast um Evrópu og leikið
körfuknattleik með liði frá Banda-
ríkjunum og mun halda því áfram þar
til í haust. Hann lék sem kunnugt er á
Englandi en hefur ekki hug á að leika
þar áfram. Væri fróðlegt aö fylgjast
með Pétri ef hann færi til Finnlands en
miklar líkur eru taldar á að svo verði,
eins og áður sagði.
-SK.
Argentína varð í gærkvöldi sjötta
þjóðin til að tryggja sér þátt-
tökuréttinn í heimsmeistarakeppninni
í knattspyrnu sem fram fer á næsta ári
í Mexíkó.
Argentína lék viö Perú og náði jafn-
tefli, 2—2. Leikið var í Buones Aires.
Argentína náði forystunni í leiknum
meö marki Pedro Pasculli en gestimir
gáfust ekki upp, náðu aö jafna og kom-
ast yfir með mörkum Jose Velazques
og Julio Cesar báöum skoruðum fyrir
hlé. Jöfnunarmark Argentínu kom
síðan á 80. mínúta Daniel Passarella
átti þá þrumuskot sem markvörður
Perúliðsins náði að verja í stöng,
þaðan rúllaði boltinn til varamannsins
Ricardo Careca sem skoraði af stuttu
færi. Perúmenn reyndu ákaft að jafna
það sem eftir lifði leiktímans en tvö
góð tækifæri þeirra fóru bæði for-
görðum.
Perú á þó enn góða möguleika á
Mexíkósæti. Perú þarf að leika auka-
leiki við lið Columbíu, Chile og
Paraguay.
Þá áttust við lið Columbíu og
Venezuela og höfðu Columbíu-
mennirnir betur, 2—0.
Lokastaðan í S-Ameríkuriðli eitt er
þvíþessi:
Argentína 6 4 11 12—6 9
Perú 6 3 2 1 8-4 8
Columbía 6 2 2 2 6—6 6
Venezuela 6 0 1 5 5—15 1
-fros
STAÐAN
1. DEILD
Staðan í 1. deild eftir leikina um
helgina er sem hér segir:
Fram—FH 2-0
Þór—Þróttur 3—2
Víkingur— ÍA 2—3
Víðir—KR 0-2
Fram 8 7 1 0 22—8 22
Akranes 8 4 2 2 16-7 14
Þór, Ak. 8 4 13 12—10 13
Þróttur 8 4 0 4 11—9 12
KR 8 3 3 2 8—11 12
Keflavík 7 3 13 10-11 10
FH 8 3 1 4 9—14 10
Valur 7 2 3 2 10—8 9
Víöir 8 1 2 5 7—18 5
Víkingur 8 10 7 10-19 3
Næsti leikur er í kvöld en þá leika
Valur og Keflavík á Valsvelli kl. 20.00.
2. DEILD
Staðan er þessi í 2. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu eftir leiki helg-
arinnar:
Breiðablik-Skallagrímur 3—3
Leiftur—KS 1- -2
Völsungur—IBV 3—1
Njarðvík—Fylkir 1-0
iBl—KA 0-3
Breiðablik 7 5 1 1 17—8 16
KA4á. 7 4 1 2 14—6 13
IBV 7 3 3 1 11—7 12
KS 7 3 2 2 9—7 11
Völsungur 7 3 2 2 10-9 11
IBI 7 2 3 2 8—8 9
Njarðvík 7 2 3 2 3—4 9
Skallagrímur 7 1 4 2 8—13 7
Fylkir 7 0 3 4 3-9 3
Leiftur 7 0 2 5 4—15 2
Arnór Guðjohnsen í það heilaga
■ Arnór Guðjohnsen, sem af I Olöfu Einarsdóttur sem reyndar er I Bústaðakirkju en á eftir var brennt
I mörgum er talinn okkar snjallasti systir annars fótboltakappa, Einars upp í Veitingahúsið Artún þar sem
Iknattspyrnumaður, gekk í það Einarssonar sem leikur með þessi mynd Eiríks Jónssonar safn-
heilaga á laugardaginn. Arnór giftist ( Víkingsliðinu. Athöfnin fór fram í j varðar var tekin. Á henni má sjá
J||*r'
Einar mætir Uwe Hohn í kvöld
— í fyrsta sinn á Grand Prix mótinu í frjálsum sem f ram fer í Stokkhólmi
Hápunktur fimmta Grand Prix
mótsins sem fram fer í Stokkhólmi í
kvöld er án efa viðureign Einars Vil-
hjálmssonar og austur-þýska heims-
methafans Uwe Hohn sem er eini mað-
urinn sem tekist hefur að kasta spjót-
inu yfir 100 metra.
Sigur gegn Hohn væri mjög stór rós í
hnappagat Einars sem tekið hefur þátt
í þrem af f jórum Grand Prix mótum
ársins og hefur enn ekki beðið ósigur.
Hohn hlýtur þó að teljast sigurstrang-
legri aðilinn í kvöld, hann hefur undan-
farið virst vera öruggur með köst yfir
90 metra. Þeir tveir hafa aldrei áður
keppt saman en eins og áður segir er
talið að keppnin verði aöalviðburður
mótsins. Fyrir utan Einar og Hohn
koma fleiri stór nöfn til keppninnar.
Nægir þar að nefna finnska ólympíu-
meistarann Arto Harkonen og sigur-
! Svanur fótbrotnaöi
_ Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttamanni
I DV áSuðurnesjum:
• Hann endaöi ekki vel fyrsti meist-
* araflokksleikurinn hjá Svani Þor-
■ steinssyni sem lék með Víði frá
1 Garði í leik liðsins gegn KR á laugar-
J^aginn.
I
Svanur varð fyrir þvi óhappi aöj
fótbrotna í leiknum, lenti í samstuði |
við einn KR-ing og tvíbrotnaöi fyrir ■
ofan ökla. Það er því öruggt aö Svan-1
ur, sem er mjög efnilegur sóknar- *
leikmaður, mun ekki leika meira I
meðVíðiísumar. -SKj
vegarann úr síðustu heimsmeistara-
keppni, Deflet Michels.
Einar hefur átt einstöku gengi að
fagna á þessu ári þó að hann hafi þurft
• Uwe Hohn.
að lúta í lægra haldi í síðasta móti sínu
er Bandaríkjamaðurinn Tom Petran-
off sigraði á 91,56 metra kasti.
-fros