Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Side 8
8 DV. MANUDAGUR1. JULI1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Gandhi leysirsikka Indverska stjómin hefur skipaö aö 150 sikkar veröi leystir úr haldi til aö stuöla að slökun á spennu í Punjab, fylki sikkanna. AUir sikkarnir 150 voru í haldi vegna gruns um aöUd aö öfgaverkum. Nýlega kröföust leiötogar sikka þess aö mörg hundruð sikkar yröu leystir úr haldi. Harchand Singh Longowal, sem leiðir hinn hægfara AkaU Dal stjórnmálaflokk, hefur sagt að hann hyggist hefja mót- mælaherferð gegn stjórnvöldum bráölega. Frelsun sikkanna 150 er síðasta aðgerðin í röð sáttaumleitana Rajivs Gandhi forsætisráðherra. Áöur hefur hann tU dæmis aflétt banninu á nemendasamtök sikka, sem móöir hans Indira kom á. Burttil Vestur- Þýskalands Utanríkisnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings hefur samþykkt Richard Burt sem næsta sendi- herra Bandaríkjanna í Vestur- Þýskalandi. Burt er nú aöstoöar- utanríkisráöherra fyrir málefni Noröur-Evrópu og hefur komiö nokkuö viö sögu á Islandi. I staö hans kemur Rozanne Ridgeway, samkvæmt atkvæðagreiöslu utan- rUcisnefndarinnar. Eftir er aö samþykkja stööu- veitingar í sjálfri öldungadeildinni en það er ven julega tryggt. Burt kom síöast til Islands 14. mars. Þá sagöi hann aö Banda- ríkjaforseti heföi aldrei samþykkt hinar umdeildu áætlanir um stað- setningu kjamavopna á Islandi. hefur bent á, aö sú fullyrðing var röng. Viljabrú oggöng Nefnd sænskra embættismanna hefur lagt til aö göng og brú veröi lögö yfir Ermarsund. Neöansjágvargöng fyrir lestir yröu lögö á milli Helsingborg og Hels- ingör og fjögurra akreina brú yröi reist yfir sundiö til Kaup- mannahafnar og Malmö. Taka myndi nú ár að ljúka verk- inu sem er áætiað aö myndi kosta um 35 milljarða íslenskra króna. Svíar vilja skrifa strax undir samninga um smiði brúarinnar og gangna en Danir vilja bíöa til haustsins. Þá mun danska þingið ræða um byggingu brúar y fir stóra- belti. Hvítir kjósaSmith Mugabe forsætisráðherra fékk 15 af 20 sætum á þinginu sem eru frátekin fyrir hvíta. Kosningar meöal blökkumanna eru í dag og á morgun. A stefnuskrá Mugabes er aö koma á eins flokks stjórn í Zimbabwe. Flokkur Mugabes heldur nú 58 af 80 sætum á þingi. Flugræningjar kærulausir Áhöfn bandarisku TWA- þotunnar, sem haldið var í þotunni allan þann tíma sem gíslatakan stóð yfir, sagöist í morgun hafa haft mörg tækifæri til aö afvopna fangaveröi sina. „Þeir voru venjulega sjö um borð í vélinni og oft allir steinsofandi meö byssurnar liggjandi sér við hlið,” sagöi Zimmermann flugvélstjóri. „Það heföi verið mjög auðvelt fyrir okkur að ná yfirhöndinni í þotunni en við vildum ekki hætta lífi hinna gíslannaíBeirút.” Gíslamir komnir Bandarísku gíslamir 39, sem veriö hafa í gíslingu hjá shftum í Líbanon í 17 daga, komu í morgun til Frankfurt í Vestur-Þýskalandi. Samningar um lausn gíslanna tókust um helgina. Frá Beirút héidu gíslamir akandi í rútum til Damaskus i Sýrlandi þangaö sem bandarisk C-141 herflutn- ingavél sótti þá og flaug meö til banda- risks herflugvallar við Frankfurt. „Þiö sýnduð festu, styrk og hugrekki í þessari löngu og erfiðu þolraun, Bandarfkin em hreykin af ykkur,” sagði George Bush, varaforseti Banda- ríkjanna, sem geröi hlé á Evrópuferöa- lagi sinu og flaug sérstaklega til Frankfurt til aö vera viðstaddur komu gíslanna. Engin eftirgjöf „Þiö eroö frjálsir og viö fómuöum engum af okkar grundvallaratriðum til aö fá ykkur lausa,” sagöi Bush og átti þá viö þá yfirlýstu stefnu Banda- ríkjastjómar aö semja ekki viö flug- ræningjana eöa aöra hryöjuverka- menn yfirleitt. Eftir að vélin meö gíslana lenti í Frankfurt fór Bush rakleiöis um borð og bauð hvem og einn gíslanna fyrr- verandi velkominn. Gíslamir virtust vera vel á sig komnir eftir prísundina en þreyttir mjög og ólmir í að komast til sins heima. „Það er allt í lagi með mig, ég særðist ekki einu sinni,” sagði Blake Synnestvedt er hann gekk niöur land- ganginn i Frankfurt og var auösjáan- lega frelsinu feginn. Fjölmargir Bandaríkjamenn af flug- stööinni tóku á móti gíslunum, veifuöu bandarískum fánum og sungu lög eins og „God Bless America” og „America the Beutiful”. Eftir stutta móttökuathöfn á flug- vellinum í Frankfurt héldu gíslamir fyrrverandi rakleiöis á bandariska hersjúkrahúsiö i Wiesbaden þar sem þeir munu hvílast i 2 daga áöur en haldiö verður heim. Tastrake hylltur Fyrsti maðurinn til að ganga frá borði í Frankfurt var John Testrake flugstjóri TWA þotunnar sem rænt var. Testrake þykir hafa staðiö sig af- buröa vel eftir aö vélinni var rænt og aldrei sýnt neitt annað en fullkomna yfirvegun og öryggi. Testrake flugstjóri var hylltur sér- staklega er hann sté niöur landgang- inn, á undan Bush varaforseta. Á blaöamannaf undi í Beirút kvaöst Test- rake vel skilja aögeröir flugræningj- anna og kvað þær kref jast engrar frek- ari fordæmingar en sú aðgerö Israels- manna aö halda rúmlega 700 shítum í fangabúöum í Israel. „Þrátt fyrir aö þessu flugránsmáli sé nú lokiö má heimurinn ekki gleyma örlögum fang- anna 700 í Israel,” sagöi Testrake flug- stjóriennfremur. Bandariska flugfélagiö TWA bauö í morgun ættingjum gíslanna fyrrver- andi aö fljúga endurgjaldslaust til Þýskalands til aö heilsa upp á þá og fylgja þeim heim. Lygamælir á opin- bera starfsmenn? „Hryðju- verka- menn mega vara sig” — segirReagan Ronald Reagan Bandaríkjaforseti sagði í sjónvarpsræöu eftir aö gíslarnir 39 voru komnir út úr Sýrlandi aö nú mættu hryöjuverkamenri fara að vara sig. „Við munum berjast gegn ykkur í Líbanon og annars staðar. Viö munum berjast gegn huglausum árásum ykk- ar á bandaríska borgara og eignir.” Reagan sagöi aö Bandaríkin myndu ekki láta undan hryðjuverkamönnum. Hann lagði til að samfélög þjóða stæðu þétt saman gegn hryöjuverkum. Reagan hefur fengið gíslana heim og segir að nú muni réttlætið sigra í baráttunni gegn hryðjuverka- mönnum. „Við munum ekki unna okkur hvíld- ar fyrr en réttlætinu hefur veriö full- nægt. Viö munum ekki unna okkur hvíldar fyrr en samfélag þjóða hefur gegnt skyldum sínum,” sagði Reagan. George Shultz utanríkisráðherra þakkaði sérstaklega Assad Sýriands- forseta fýrir þátt hans í frelsun gísl- anna. Shultz lagöi einnig áherslu á að ekkert samband væri milli frelsunar gíslanna og hinna 735 shita-fanga í Is- rael. Oskar Magnússon, DV, Washington: Fulltrúadeild bandaríska þingsins hefur samþykkt aö varnarmálaráðu- neytingu veröi veitt mjög víðtækt vald til aö láta starfsmenn gangast undir lygapróf. Veröi heimild þessi jafn- framt staöfest í öldungadeild þingsins munu um fjórar milljónir starfsmanna vamarmálaráðuneytisins verða skyldaöar til aö gangast undir lyga- próf. Samþykkt þessarar heimildar endurspeglar auknar áhyggjur stjóm- málamanna og embættismanna hér vegna Walker-njósnamálsins svo- kallaða sem upp um komst fyrir skömmu. Þar var að verki maöur sem haföi starfað um áraraöir fyrir banda- ríska sjóherinn og lengst af haft aö- gang að leynilegum upplýsingum. 1 nýbirtri skýrslu vamarmálaráðu- neytisins, sem hingaö til hefur veriö trúnaöarmál, kemur fram aö á fáeinum síöustu árum hafa lygamælar komiö upp um niu umsækjendur um trúnaðarstöður á vegum ríkisins. Allir þessir níu umsækjendur viöurkenndu að hafa fallist á að njósna fyrir óvin- veittar erlendar þjóðir. Gildi lygamæla hefur veriö mjög umdeilt á meðal embættismanna stjómar Reagans forseta. Varnar- málaráöuneytiö hefur reynt aö auka notkun þeirra eins og ráðuneytiö telur sig hafa heimild til. Meðal annars hafa lygamælar veriö notaðir til aö reyna aö finna út hverjir það eru sem leka upp- lýsingum til fjölmiðlanna. Aðrir benda á aö engin vísindaleg rök séu fyrir notkun lygamæla. „Þingleg móðursýki vegna njósna- máls má ekki yfirbuga heilbrigða skynsemi," voru ummæli eins þing- mannsummálið. Umsjón: Þórír Guðmundsson og Hannes Heimisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.