Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Page 10
10
Útlönd
Útlönd
Útlönd
DV. MÁNUDAGUR1. JULI1985.
Utlönd
OLÍA:
VERDFALL?
Dollarar
29
lan. Febr. Mars
OLÍUVERÐ ÁRIÐ1985
Apríl
Áf ram lækkandi?
Olíuverö hefur fariö lækkandi á
markaðinum í Rotterdam og kemur
til meö aö lækka enn meira. Eina
spurningin er hversu mikið þaö mun
lækka. Lágt verð olíunnar stafar af
mikilli framleiðslu allra OPEC-ríkj-
anna nema Saudi-Arabíu og nú lítur
út fyrir aö Saudi-Arabar hafi fengiö
sig fullsadda af að halda aftur af
olíuframleiðslu sinni til aö vega á
móti framleiðslu hinna OPEC-ríkj-
anna.
OPEC-ríkin funda 5. júlí í Vín. Það
er neyðarfundur sem til var kallaö
vegna óánægju Saudi-Araba. „Þessi
staða mála getur ekki gengið öllu
lengur,” segir olíumálaráöherra
Saudi-Arabíu, Ahmed Zaki Yamani.
,,Og ef við aukum framleiðslu. . .
mun verð falla verulega, fara undir
20dollara.”
Yfirlýsingar Yamanis kunna að
vera meira en innantóm orð í þetta
skiptið. Fyrr í þessum mánuði
sagði Fahd konungur að Saudi-
Arabía myndi ekki öllu lengur axla
þá byrði eitt landa að stiUa fram-
leiðslu sína eftir heildarframleiðslu
og eftirspum í heiminum.
Einir gegn samn-
ingsbrjótum
Á fundinum í Vín munu Saudi-
Arabar í raun standa einir gegn
bandalagi samningsbrjóta innan
OPEC. Þetta eru ríki eins og Nígería,
Iran, Ekvador og Sameinuðu fursta-
dæmin. Þau ríki hafa farið einna
mest yfir framleiðslukvóta sína.
Vegna brota þessara ríkja hafa
Saudi-Arabar þurft að skera svo
niður sína framleiðslu að undanfarið
hafa þeir ekki framleitt nema 2,5
mUljónir tunna á dag af olíu á meðan
kvóti þeirra hefur veriö 4,4 mUljónir.
Þessi litla oliuframleiösla hefur
neytt Saudi-Arabíu til að búa við 19
mUljarða fjárlagahaUa á þessu ári.
Laun embættismanna ríkisins hafa
lækkaö. Erlendir verkamenn hafa
verið sendir til síns heima. Ríkis-
fyrirtæki hafa ekki getaö borgað
erlendar skuldir sínar. Enn mikil-
vægara er að olíuframleiðslan er orð-
in svo lítil aö Saudi-Arabar hafa ekki
getaö framleitt nóg gas tU að anna
eftirspurn hjá hinum geysistóru ný-
byggöu olíuefnastöðvum sinum í
Yanbu og JubaU. I stuttu máli sagt
er efnahagur Saudi-Arabíu farinn að
kikna undan byrðum OPEC sem
Saudi-Arabar hafa þurft að gera
algerlega sjálfir.
Lækkað um sjö prósent
Þrátt fyrir Utla olíuframleiðslu
Saudi-Araba hefur olíuverð lækkað
um sjö prósent á undanförnum 12
mánuöum. Talað er um að möguleiki
sé á allt að 20 prósent lækkun á næst-
unni ef Saudi-Arabía lætur verða af
hótun sinni að auka framleiöslu sína.
Slík 20 prósent hækkun getur haft
ýmsar afleiðingar. Oliufyrirtæki og
f jármálaspekingar segja að snögg og
mikil lækkun geti komið bönkum,
flestum bandarískum, sem hafa
lánað mikið fé til fátækra olíufram-
leiðsluríkja, á hausinn. Olíufram-
leiðsluríkin sjálf myndu fara mjög
illa út úr slíkri verðlækkun.
En breska vikuritið Economist
bendir á að 20 prósent olíulækkun
myndi hafa geysileg áhrif á þjóðar-
framleiðslu um allan heim. Talið er
að á olíuna megi skrifa um fimm
prósent heildarverðmæta heims-
framleiðslunnar. Það þýðir, sam-
kvæmt einföldu reikningsdæmi, að 20
prósent verðfall á olíu myndi taka
eitt prósent af verði þess sem fram-
leitt er í heiminum að meðaltali.
Heildarframleiösla heimsins myndi
því í raun aukast um eitt prósent.
Það er í raun gífurlega mikið. Þrjú
prósent vöxturinn sem nú er gert ráð
fyrir á næstu 12 mánuöum yrði fjög-
ur prósent.
„Munurinn milli þriggja prósenta
vaxtar og fjögurra prósenta vaxtar
er munurinn milli uppgjafar og
vonar fyrir hina 31 milljón atvinnu-
lausra í OECD-löndunum (helstu iðn-
ríkjum veraldar) og fyrir stjómir og
atvinnulítinn almúga Suður-Amer-
íku. Allar alvarlegar kannanir sýna
þá niöurstööu og skuldalönd
Rómönsku Ameríku, nú þegar þau
hafa breytt stefnu sinni, geta borgað
vexti af þeim milljörðum sem þau
skulda og útvíkkað efnahagslíf sitt ef
vöxturinn í OECD-löndunum er
aö meðaltali þrjú og hálft prósent í
að minnsta kosti fimm ár. Meö
þríggja prósenta vexti yrði það
tvísýnt. Eitthvað minna myndi
orsaka byltingar eöa gjaldþrot,”
segir Economist.
Taka Saudi-Arabar
áhættuna?
Erfitt er að spá fyrir hvað muni
gerast í Vín á þriðjudag. „Það er
engin leiö að segja til um hvort
Saudi-Arabar eru raunverulega
reiðubúnir að hætta á aö markaður-
inn hrynji,” segir leiöandi olíusér-
f ræðingur í Miðausturlöndum.
Margir eru sannfærðir rnn að
einungis slíkt áhættuspil Saudi-
Araba sé nauðsynlegt til að rétta
OPEC við á ný: að aðeins mikil
framleiðsluaukning Saudi-Arabíu —
og meöfylgjandi verðfall — geti
sannfært þrjóskustu OPEC-meðlim-
ina um aö það borgi sig ekki lengur
aösvindla.
Dollar eða meira?
I öllu falli verða OPEC-ríkin að ná
einhvers konar samkomulagi í Vín.
Það myndi teljast vel heppnaður
fundur ef þeim tækist að ná sam-
komulagi um aö takmarka fram-
leiðsluna nægilega mikið til að halda
verðlækkunum við einn dollar á
tunnuna.
En hvernig sem samkomulagið
verður þá er ljóst aö það er ekki
pappírsins virði ef það verður eins
þverbrotið og núgildandi samkomu-
lag.
Olíuvinnsla i Saudi-Arabiu: oft hafa Saudi-Arabar sagst hafa fangifl sig
fullsadda af samningsbrotum OPEC-vina sinna. Maina þeir þafl i þetta
sinn, þó þafl kosti stórkostlegt verflfall á oliu?
Umsjón: ÞórirGuðmundsson
RENAULT11
meiriháttar bíU
á góöu veröi
AVIEW..AKILL O KROTINN SIWIUISWI Mf.