Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Page 14
14 DV. MANUDAGUR1. JULI1985. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriog útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoóarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS H ARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNJSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. l'Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 684611. Áuglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022, Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍPUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf. Áskriftarverð á mánuði 360 kr. Verö i lausasölu 35 kr. Helgarblaö40kr. Bömin seld í ánauð „Við erum örugglega að nálgast það hæsta, sem þekkzt hefur í sögunni. Það er kannski helzt, að einhver Suður- Ameríkuríki, sem urðu gjaldþrota á síðustu öld, hafi farið hærra.” Þetta sagði Þorvaldur Gylfason hagfræði- prófessor um erlendu skuldirnar í viðtali við DV fyrir helgina. Þjóðarbúið íslenzka er komið í svipaða stöðu og hús- byggjandinn, sem hefur reist sér hurðarás um öxl. Ekki er nóg með, að slegin séu ný lán fyrir afborgunum, sem falla, heldur á þjóðarbúið ekki einu sinni upp í vextina. Þeir hrannast upp og gjaldþrot blasir við þjóðinni. Til marks um alvöru málsins má nefna, að nú fer fjórða hver króna af vöruútflutningi okkar til að greiða vexti. Fjórði hver fiskur fer í að greiða af syndum fyrri tíma. Þetta virðast ráðamenn þjóðarinnar engan veginn skilja og halda áfram að haga sér eins og millar. Matthías Bjarnason samgönguráöherra þeysist nú um landið til að gleðja kjósendur með áformum um að bora göt á fjöll víða um land. Þetta segir hann að séu arðbærar framkvæmdir, sem kosta megi með erlendum lánum. Þarna stöndum viö andspænis enn einni geðveikisveizl- unni. Vegagerðin viðurkennir hins vegar, að engin leiö sé að reikna arðsemi inn í þessi göt Matthíasar. Hún viður- kennir líka, að engin arðsemi sé í ýmsum fyrirhuguðum stórbrúm. Samt er allt þetta komið á vegaáætlun og kjós- endur álíta Matthías vera mikilmenni. Á sama tíma og þessir draumórar byltast fram og verða að veruleika er ekki hægt að leggja bundið slitlag á ýmsa vegi, þótt 10—50% arðsemi sé í þeim fram- kvæmdum. Þaö er dýrt spaug fyrir gjaldþrota þjóð að hafa stórhuga ráðherra í að bora göt á fjöllin. Matthías er ekki einn um hituna. Samkvæmt nýsam- þykktum lánsfjárlögum á að taka rúma sjö milljarða króna að láni í útlöndum á þessu ári. Þetta finnst lesendum kannski bara vera tala á blaði, en jafngildir þó um þriðjungi af vöruútflutningi þjóðarinnar á þessu ári. Sumt af þessu fer í arðbærar framkvæmdir, sem skila meiru af sér en afborgunum og vöxtum. Annað fer í fram- kvæmdir, sem eru látnar skila arði með handafli. Þar er fremst orkuveizlan, sem fjármögnuð er með því að senda notendum hæstu raforkureikninga Vesturlanda. Mikið af þessu fer svo í atriði, sem hvorki geta skilað arði á eðlilegan hátt né með handafli. Eitt fáránlegasta dæmið eru 553 milljónir króna, sem teknar eru að láni í út- löndum með 8% vöxtum til 15 ára til að endurlána til hús- næðismála á lægri vöxtum og til lengri tíma. Sem dæmi um geðveikina má nefna, að gert er ráð fyrir, að fjárfestar verði 1.150 milljónir króna í land- búnaði á þessu ári, fjórðungi meira að magni en var fyrir tveimur árum. Það er ekki nóg með að þetta sé ger- samlega arðlaust, heldur þarf þar á ofan að borga með því. Það er ekki velferðarþjóðfélagið, sem er að gera okkur gjaldþrota, heldur óráðsían, sem hér hefur verið lýst. Við vorum lengi á hægri leið til helvítis, en síðan 1982 hefur allt verið í þriðja gír. Og ríkisstjóm ársins 1985 heldur uppi hraðanum á fullu. Þrælasala hefur um langt skeið ekki þótt fram- bærilegur atvinnuvegur. Versta tegund þrælasölu er, þeg- ar fólk selur börnin sín í ánauð. Og það erum við einmitt núna að gera með því aö varpa skuldunum á af- komendurna, svo að ráðherrar geti montaö sig fyrir kjós- endum. Jónas Kristjánsson. „Með því að skylda alla nemendur i 9. bekk hlýtur að þurfa að slaka á faglegum kröfum frð því sem nú er. Afleiðingin gæti orðið sú að fyrsta ár framhaldsskólans verði nemendum enn örðugra en það er nú og þykir þó ýmsum ærið stökk úr grunnskóla í framhaldsskóla." SKÓLASKYLDA RÉTTUR EÐA KVÖÐ? I fréttum útvarps þann 18. júní síð- astliðinn var sagt að menntamála- ráðherra hygðist á næsta skólaári framkvæma skólaskyldu í 9. bekk skv. grunnskólalögum. Þetta ákvæði laganna sýnist mér vanhugsað og svo er um fleiri sem málið brennur á. Því miður hafa ýmsar ákvarðanir hæstvirts ráðherra, sem snert hafa 9. bekk nýliðiö skólaár, verið einkar gerræðislegar svo þessi kemur ekki giska á óvart. Hinn 8. mars 1985 hélt Bandalag kennara á Norðurlandi eystra fund þar sem skólaskylda í 9. bekk var rædd. Ætlunin var að fá tvo fram- sögumenn til að mæla með og tvo til að mæla gegn henni. Aðeins tókst að fá einn framsögumann meömæltan skólaskyldunni og má ætla að það sýni afstöðu meirihluta kennara á svæðinu til málsins. Fundurinn sam- þykkti ályktun þess efnis að nemend- ur í 0 og 9. bekk skyldu njóta sömu aöstöðu og aðrir nemendur grunn- skóla með tilliti til námsbóka og ann- ars kostnaðar vegna skólagöngu. Fyrrgreind ályktun fundar BKNE var efnislega samhljóða þingsálykt- unartillögu Málmfríðar Sigurðar- dóttur, Sigriðar Dúnu Kristmunds- dóttur og Kristínar Halldórsdóttur, sem þær lögðu fram á Alþingi í vet- ur: ... „aö ríkissjóöur gegni sömu skyldum hvað varðar fjárframlög við 9. bekk grunnskóla og viö aðra bekki grunnskólans, án þess þó að skólaskylda komi til.” Einu rökin Einu rökin meö skólaskyldu í 9. bekk, sem ég hef séð haldbær, eru þau að óréttlátt sé að 9. bekkingar greiði námsbækur, launakostnað í mötuneytum og akstur í skóla, sem aörir nemar grunnskóla greiða ekki. Hins vegar fæ ég ekki séð að betra sé að leysa það mál með skólaskyldu en með laga- eða reglugerðarbreytingu um skólakostnað. Vilji ráðamanna er allt sem þarf til þess að sérhver 9. bekkingur sæki skóla sér aö kostnað- arlausu. Þau rök hafa heyrst að skóla- skylda sé nauðsynleg tii aö tryggja rétt þeirra barna til skólagöngu sem foreldrar vilja ekki að sæki skóla. Þessi röksemd var góö og gild í byrj- un aldarinnar þegar margir voru þeirrar skoðunar að skólaganga væri aðeins fyrir ónytjunga sem nenntu ekki aö vinna nytsamleg störf. Af- staða fólks til skólagöngu er önnur nú. Eg hef aldrei á nálega aldarf jórð- ungs starfsferli hitt foreldra sem neitað hafa barni sínu um að setjast í Kjallarinn ÞÓRIR JÓNSSON, SKÓLASTJÓRI, ÓLAFSFIRÐI. 9. bekk. Hins vegar eru mörg dæmi þess að unglingar komi í 9. bekk vegna þess að foreldrar vilja það. Skýrslur sýna að um 5% nemenda í 8. bekk koma ekki í 9. bekk að hausti. Þorri þessara nemenda hefur átt í erfiðleikum af ýmsum toga. Eg tel það meira en vafasamt að vandi þeirra leysist með því að skylda þá til setu í 9. bekk. Ymsir fara raunarí nám síðar ef áhugi vaknar. Mér vit- anlega hefur ekki verið kannað hve stór hluti þeirra verður „taparar” í lífinu né heldur orsök „tapsins” ef eitthvert er. Því betur hef ég séð marga nem- endur sem farið hafa sem „taparar” úr skóla eftir 8. bekk verða góða starfsmenn og nýta þegna. Er það sjálfgefiö að lengri nauðungarvist í skóla skapi „vinnara”? Tengiliður milli skólastiga Grunnskólinn er eöli sínu sam- kvæmt skóli fyrir alla. Það er fram- haldsskólinn hins vegar ekki. Af því leiðir aö afstaöa grunnskólans og kröfur hans til nemenda er annars konar en framhaldsskólans. Fr jáls 9. bekkur, opinn öllum sem vilja, er ákjósanlegur tengiliöur milli skóla- stiga. Þar er hægt að blanda saman sveigjanleika grunnskólans og fag- legum kröfum framhaldsskólans. Með því að skylda alla nemendur í 9. bekk hlýtur að þurfa að slaka á fag- legum kröfum frá því sem nú er. Af- leiðingin gæti orðið sú að fyrsta ár framhaldsskólans verði nemendum enn ööugra en það er nú og þykir þó ýmsum ærið stökk úr grunnskóla í framhaldsskóla. I 2. grein grunnskólalaga er sagt að grunnskólinn skuli haga störfum sínum í sem fyllsta samræmi viö eðli og þarfir nemenda og stuðla að al- hliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins. Þetta eru fögur orö en raunar sjálfsagður tilgangur alls skólastarfs á hvaða stigi sem er, en í hópi unglinga, þar sem allt að 5% eru í skólanum gegn vilja sínum, treysti ég mér ekki til að ná þessum mark- miöum. Meira að segja læðist að mér grunur um að það gæti vafist fyrir hæstvirtum menntamálaráðherra þótt harður þykist í hom að taka. Ég las fyrir nokkru grein í Politik- en þar sem þetta var haft eftir fræðslustjóra Helsingörborgar: „Níu ára skólaskyldan hefur alls ekki orðið skólanum til góðs og ég beiti henni líka sveigjanlega, þ.e. út- skrifa nemendur í 9. bekk sem geta komistívinnu.” Verði 9. bekkur skylda hérlendis vona ég að auðsótt verði fyrir þá nemendur sem vilja að fá undanþágu frá skólasetu ef þeir geta fengið vinnu. Ráðherra tekur einhliða ákvörðun Að þessum orðum skrifuðum var ég að hlusta á viðtal við mennta- málaráöherra í kvöldfréttum út- varps. Ljóst virðist að ráðherra hef- ur tekið einhliða ákvörðun um fram- kvæmd skólaskyldunnar án samráðs við Námsgagnastofnun, skólaþróun- ardeild eða nokkum þann sem málið snertir. Röksemdir voru þær einar aö hann sé að tryggja rétt barnanna! — Vont er þeirra ranglæti en verra þeirra réttlæti, sagði Jón Hreggviðs- son á Þingvöllum forðum. Þórir Júnsson. ® „Frjáls 9. bekkur, opinn öllum sem vilja, er ákjósanlegur tengi- liöur milli skólastiga.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.