Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Síða 42
DV. MANUDAGUR I.JOlI 1985.
Jón Páll Sigmarsson — sterkasti maöur heims, var að sjálfsögðu mættur á
staðinn. Hann keppti t.d. við strákana í reiptogi.
ésh
c,
Vv ■ ** cM><*
' * y ‘‘ *$:■ *•'**' , v
Sverrir Auðunsson — knattspyrnukappinn knái frá Kefla vík sést hér (t. v.)
vera að berjast um knöttinn við strák úr Breiðabliki í úrslitaleiknum. Já,
margur er knár, þótt hann sé smár. S verrir var útnefndur maður mótsins.
Það er svo sannarlega f jör í Eyjum
þegar fiskast þar. Það var fiskirí á
dögunum þegar Tommahamborg-
aramótið fór fram í Vestmannaeyj-
um — allir bestu knattspyrnumenn
landsins i 6. flokki voru þar saman
komnir. Netamöskvar voru oft út-
þandir — alls voru skoruð 517 mörk í
120 leikjum, sem fóru fram í mótinu.
Sá sem var iðnastur við kolann var
Kjartan Hjálmarsson úr Fram sem
sendi tuðruna fjórtán sinnum í netið.
Strákarnir úr Keflavík voru mjög
sigursælir — unnu tvöfalt, eða urðu
bæði sigurvegarar í innanhúss- og ut-
anhússknattspymu. Þá var Keflvík-
ingurinn efnilegi, Sverrir Auðuns-
son, valinn leikmaður mótsins.
Gunnleifur Gunnleifsson úr DC var
útnefndur markvörður mótsins og
prúðustu liðin voru Víðir frá Garði og
Breiðablik.
Keflvíkingar lögöu Breiðablik að
velli í úrslitaleik. KR-ingar urðu
sigurvegarar í B-liðakeppninni, unnu
Skagamenn í úrslitum. KR-ingar
urðu einnig sigurvegarar í innan-
hússmóti B-liða, eins og Keflvíkingar
íkeppni A-liða.
Einnig var keppt í knattþrautum
og urðu þessir strákar sigursælastir:
Halda knetti á lofti:
Eldri flokkur: Kristinn Hafliöason,
Víkingi, Andri Sveinsson, KR, Arni
Eyþórsson, Þrótti.
Yngri flokkur: Haukur Hannesson,
IK, Páll Gislason, KR, Guðmundur
Guðmundsson, Fram.
Rekja knött:
Eldri: Július Kristjánsson, UBK,
Sigurður Hákonarson, KR, Einar
Sverrisson, IK.
Yngri: Matthías Stefánsson, KA,
Sigurður Viðarsson, Stjörnunni,
Pálmar Guðmundsson, Reyni S.
tr,.
á
Vel heppnað mót
Tommahamborgaramótið heppn-
aðist mjög vel en það voru Týrarar
sem stóðu fyrir mótinu. Allt skipulag
var til fyrirmyndar og skemmtu
drengimir sér konunglega í Eyjum.
-SOS
Keflvíkingar urðu sigursælir í Eyjum.
Skothittni:
Eldri: Hlynur Marthens, Reyni S.,
Þórarinn Þórarinsson, FH, Andri
Sveinsson, KR.
Yngri: Bergur Hafþórsson, Akra-
nesi, Atli Daðason, UBK, Sigurður
Viðarsson, Stjörnunni.
Magnúsarbakarí sá til þess að strákarair fengju nestis pakka, þegar haldið var frá Eyjum snemma morguns.
Strákarnir fengu þá glóðvolga snúða.
Myndsjá frá Eyjum
Þá var fjör
íEyjum...
— mikil stemmning þegar Tommahamborgaramótið fór
fram fVestmannaeyjum